Auđur Kapital
Auður Capital var stofnað árið 2007 af þeim Höllu Tómasdóttur og Kristínu Pétursdóttur. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu stofnenda, starfsmanna og valinkunnra athafnakvenna. Auður hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME.
"Við stofnuðum fyrirtækið vegna þess að við sáum þörf fyrir öðruvísi og mannlegra fjármálafyrirtæki."
Auður veitir óháða og áhættumeðvitaða ráðgjöf á sviði fjárfestinga. Sú nálgun kom viðskiptavinum okkur í gegnum auga stormsins í bankahruninu í október 2008 á án þess að tapa fé.
Auður er skuldlaust fyrirtæki með sterka fjárhagsstöðu. Fyrirtækið skilaði hagnaði á árinu 2008 og hefur hvorki óskað eftir né þegið ríkisstyrki.
Við höfum hagnað að leiðarljósi, en okkur er ekki sama hvernig við högnumst og höfnum því viðhorfi að velja þurfi á milli fjárhagslegs arðs og samfélagslegs arðs. Við teljum mikilvægt að velja bæði.
Við tölum hreint út um hlutina og viljum að þeir séu gagnsæir og auðskiljanlegir.
Við vitum að auðurinn felst ekki síst í því fólki sem um hann sér og því gildismati sem leiðir það í lífinu.
Langtímaárangur og gagnkvæmur ávinningur eru hornsteinar í hugmyndafræði Auðar.
Ef þú ert að leita að aðila til að stýra þínum fjárauð, þá er Auður óháður og áhættumeðvitaður samstarfsaðili sem á sér það markmið að vinna að gagnkvæmum ávinningi og hámarks ávöxtun til lengri tíma.
Ef þú ert að leita eftir fjárfesti eða ráðgjafa sem getur, auk fjármagns, komið með þekkingu, áhrif, tengsl og hvatningu, þá gæti Auður verið rétti samstarfsaðilinn.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








