Lánatryggingasjóđur kvenna
Lánatryggingasjóður kvenna
Þann 8. mars sl. var skrifað undir samkomulag um endurreisn Lánatryggingasjóðs kvenna en sjóðurinn var starfandi frá árinu 1997-2003.
Lánatryggingarsjóðurinn er samstarfsverkefni velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og eru stjórnarmenn þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir og Jón Steindór Valdimarsson.
Um þessar mundir stendur yfir vinna við endurskoðun lánareglna og ennfremur er verið að leita eftir samstarfi við fjármálastofnanir. Væntanlega verður auglýst eftir umsóknum um lánatryggingu í sumar.
Umsýsla lánatryggingasjóðs er hjá Vinnumálastofnun og er verkefnastjóri Ásdís Guðmundsdóttir á Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar verða settar inn á heimasíðuna fljótlega.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








