Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Uppspretta

Á Uppsprettu getur þú óskað eftir láni eða lánað öðrum. Lántakandi setur fram sínar hugmyndir og óskir á vefnum og laðar þannig að sér lánveitendur. Uppspretta er ekki banki heldur miðlar lánsfé á milli lántakenda og lánveitenda. Uppspretta leggur áherslu á gagnsæi upplýsinga en með hverri lánsumsókn birtist lánshæfi lántakanda og einnig er hægt að spyrja lántakanda spurninga áður en lagt er fram lánsframlag.
Ţetta er auðveld leið til að fá lánað og góður kostur fyrir lánveitendur til að fá góða ávöxtun á lágar upphæðir. Í gegnum Uppsprettu getur fólk hjálpast að við að koma verkefnum í framkvæmd.

Örlán eru lán á milli fólks og eru frá 50.000 til 3.000.000 og lánstími getur verið allt að 3 ár. Lántakandi setur inn upplýsingar í lánsumsókn um tilefni láns, lánsupphæð, lánstíma og hámarksvexti sem hann er tilbúinn að greiða.  Á bak við hvert lán geta verið margir lánveitendur. Lánveitendur velja lánsumsóknir sem þeim lýst vel á á grundvelli þeirra upplýsinga sem lántakandi setur fram í lánsumsókn ásamt upplýsingum um lánshæfi lántakanda. Upplýsingar um lánshæfi er fengið frá Creditinfo Iceland.

Lánveitendur leggja inn á reikning sinn hjá Uppsprettu áður en þeir bjóða í lán. Lánveitendur bjóða í lán með því að bjóða lágmarksvexti sem þeir eru tilbúnir að fá fyrir sitt lánsframlag. Þegar uppboðstíma er lokið eru það lánveitendur sem buðu lægstu vextina sem munu leggja fram lánsframlag upp í lánið. Ef þú ert ekki á meðal loka lánveitenda þá er upphæðin lögð aftur inn á reikninginn þinn.

Lántakandi getur sent upplýsingar til vina og vandamanna til að vekja athygli á lánsumsókninni og sett tengil á lánsumsóknina á Facebook. Þannig er hægt að laða að fleiri lánveitendur til að styðja við hugmyndina en ella.

Lánsupphæð að frádregnu þjónustugjaldi er lögð inn á reikning lántakanda á Uppsprettu. Notendur geta millifært til og af Uppsprettu reikningnum sínum á einfaldan hátt þegar þeir eru skráðir inn í þjónustuna. Lántakandi greiðir af láninu mánaðarlega. Þegar lántakandi endurgreiðir lán er greiðslunni dreift á reikning allra lánveitenda hjá Uppsprettu. Ef kemur til vanskila þá sér Intrum um áframhaldandi innheimtu.

Örlán geta oft skipt sköpum fyrir lántakanda. Smærri lánsframlög geta samanlagt hjálpað hugmyndum að verða að veruleika. Um leið og lánveitendur ávaxta lánsféð eru þeir að hjálpa fólki að koma verkefnum í framkvæmd.

Ţað skiptir ekki máli hvort þú leggur fram 5.000 kr. lánsframlag eða 500.000 kr.  Öll lánsframlög skipa máli fyrir lántakandann.


Ţetta er tilvalin leið fyrir fólk sem er að vinna í einhverri nýsköpun eða atvinnusköpun. Náum árangri saman!

Til að hefja viðskipti þarf að skrá sig inn á vefinn www.uppspretta.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk