Gerđ viđskiptaáćtlana
Af hverju viðskiptaáætlun?
Upphaf viðskiptaáætlunar felst í hugmyndinni að viðskiptum og niðurstaða hennar er mikilvæg við mat á því hvort hugmyndin sé líkleg til árangurs eða ekki. Þannig verður áætlunin hluti af áætlanagerð fyrirtækisins og uppfærist reglulega eftir því hvaða breytingar verða á rekstrarumhverfinu.
Út frá þeim hugmyndum sem fást með rannsókn á möguleikum hugmyndarinnar eru gerðar áætlanir um sölu, markaðssetningu, framleiðslu og fjármögnun og eru þær notaðar til að kynna fyrirtækið/hugmyndina fyrir fjárfestum eða öðrum sem koma að máli.
Góð viðskiptaáætlun ber því þannig vott um að þeir sem hana skrifuðu hafi unnið heimavinnuna sína og viti nákvæmlega hvert þeir ætli sér og því er þetta mikilvæg undirbúningsvinna sem skilar sér þegar á hólminn er komið.
Ennfremur má líta á gerð viðskiptaáætlunar sem lærdómsferli fyrir frumkvöðulinn, þannig hjálpar það honum að skoða mikilvægustu þættina og gera sér grein fyrir kostum og göllum hennar. Þannig verður markmiðið að sannreyna forsendur hennar fremur en að láta hana líta vel út.
Auk þess að vera rannsókn á hugmyndinni er áætlunin einskonar leiðarvísir frumkvöðulsins í gegnum þá óvissu sem felst í því að stofna og reka fyrirtæki.
Hvað er viðskiptaáætlun?
Ţað má segja að hún skiptist í fjóra hluta; einkunnarorð, forvitnisvaka, almenna fjárfestakynningu og viðskiptaáætlunin sjálf.
Einkunnarorð - leiðarsteinn verkefnisins
Forvitnisvaki - frásögn til að fanga athygli fjárfesta
Fjárfestakynning - kynning fyrir mögulegan fjárfesti
Viðskiptaáætlun - skýrsla með nánari upplýsingum
Framvinda áætlunarinnar er á þessa leið:
1. Í hverju felst vandamálið sem þarf að leysa eða tækifæri sem má hagnýta?
2. Hvernig á að leysa vandamálið eða nýta tækifærið?
3. Hver eru einkenni markaðarins?
4. Í hverju felst forskot á samkeppnisaðila?
5. Hvaða viðskiptalíkan og sölustefnu skal nota?
6. Hverjir munu annast framkvæmdina?
7. Eftir hverju er leitað frá fjárfestum?
8. Hvernig fá fjárfestar eða fjármögnunaraðilar fjárfestingu til baka með ásættanlegri ávöxtun?
9. Hve langt er verkefnið á veg komið og hvaða áföngum þarf að ná?
(tekið úr bæklingi Impru - Viðskiptaáætlun)
Hér að neðan má nálgast bækling Impru um gerð viðskiptaáætlunar.
http://www.nmi.is/files/Impra%20-%20Gerð%20viðskiptaáætlana%20-%20lowres_763996933.pdf
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








