Markaðskort
Markaðskortið auðveldar okkur að meta markaðsstærð og markaðshlutdeild fyrirtækis. Jafnframt má nota það til að meta áhrif einstakra aðgerða á markaðsstöðu fyrirtækisins. Þessi nýstárlega nálgun er auðveld í notkun og handhægt verkfæri fyrir stjórnendur við að taka ákvarðanir.
Kortið er þróað með það fyrir augum að hver sem er geti notað það. Grunnhugmyndin er einföld, eins og oft er um góðar uppfinningar. Markaðskortið leiðir okkur áfram í því að beita kerfisbundnum vinnubrögðum við að greina stærðarhlutföllin á markaðinum sem eru oft afar óljós í huga okkar.
Þessari handbók er ætlað að auðvelda mönnum að hjálpa sér sjálfir. Það þarf að lesa í gegnum hana til að læra að nota markaðskortið. En fyrst er stuttur inngangur um kortið og notagildi þess.
Markaðskortið er landabréf markaðskonunnar !!
Á sama hátt og ferðamaður notar landakort til að átta sig á hvaða leið er best að fara til að komast á áfangastað getum við notað markaðskortið til að greina landslag markaðarins. Það er almennt viðurkennt að til að ná árangri í harðri samkeppni þýðir ekki að miða markaðssetninguna við allan markaðinn heldur þarf að skipta honum niður eftir fyrirfram ákveðnu mynstri. Ef þetta er gert, verða allar aðgerðir til að auka söluna markvissari og líklegri til að skila árangri. Ef þessum undirbúningi er sleppt er líklegt að aðgerðirnar verði eins og skot í myrkri, kannski hæfir það og kannski ekki.
Dæmi um hefðbundna markaðshlutun er skipting markaðarins í landfræðilega hluta (Reykjavík, Austurland, Svíþjóð, Asía o.fl.), lýðfræðilega hluta (aldur kaupenda, störf, tekjur, menntun, þjóðerni o.fl.), einstaklingseinkenni (lífsstíll, persónuleiki o.fl.) og kaupvenjur (jólainnkaup, magn, tryggð við vörumerki o.fl). Markaðskortið leiðir okkur í gegnum markaðshlutunina á skipulegan og nýstárlegan hátt. Þegar upp er staðið hefur markaðurinn verið kortlagður þannig að fyrirtækinu ætti að reynast auðvelt að ná til mismunandi hópa kaupenda með markvissum hætti og með lágmarkstilkostnaði. Það hlýtur að vera draumur allra markaðskvenna!
En áður en kemur að lýsingunni og skýringardæmunum eru nokkur orð um hvers vegna og hvernig markaðskortið varð til.
Verkfærið sem hér er kynnt er árangur þriggja ára þróunarstarfs sem stjórnað var af Dann Brandt Laursen. Hann hefur víðtæka menntun á sviði viðskipta og markaðsmála og stundar rannsóknir hjá Institut for Anvendt Erhvervsökonomi við háskólann í Óðinsvéum í Danmörku. Hann hefur starfað fyrir fjölda fyrirtækja sem ráðgjafi á sviði rekstrar og markaðssetningar. Laursen hóf að þróa aðferðafræðina sem liggur að baki markaðskortinu þegar hann, við rannsóknir sínar og fyrirtækjaráðgjöf, hafði orðið var við gríðarlega þörf í fyrirtækjunum fyrir einfalda og skilvirka lausn. Hann setti sér það markmið að þróa hagnýtt markaðsverkfæri sem byggði á vísindalegri þekkingu á þessu svið.
Eftir þriggja ára þróunarstarf lá niðurstaðan fyrir: Verkfæri sem gagnlegt er að nota við að móta ákvarðanir fyrir nánustu framtíð fyrirtækisins. Jafnframt því sem það eykur yfirsýn yfir markaðsmöguleikana og tryggir öruggari markaðssetningu/ ákvarðanir.
Hér að neðan má finna bækling Impru um Markaðskort
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








