Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Markaðssamskipti - auglýsingar

Markaðssamskipti

Nú þegar við höfum skoðað markhópana okkar og kaupferlið þá þurfum við að gera okkur grein fyrir því hvernig við ætlum að hafa samskipti við þá. Hvernig á að ná til þeirra og hvað virkar best og hvernig getum við lágmarkað kostnað okkar?

Nefna má fjóra flokka af markaðssamskiptum við markhópa, auglýsingar, bein sala, bein samskipti og fjölmiðlaumfjöllun. Í þessum pistli ætlum við að líta nánar á auglýsingar.

Hvað á auglýsing að gera ?

Í fyrsta lagi þarf hún að vekja athygli tilfinningar hjá tilvonandi kaupanda ásamt því að upplýsa neytandann um vöruna.  Einnig hafa auglýsingar það hlutverk að minna viðskiptavininn á vöruna og fá hann til að koma aftur.

Að vekja athygli - við tökum eftir auglýsingum sem eru á einhvern hátt öðruvísi og óvenjulegar en það gefur auga leið að það er góð leið til að draga viðskiptavininn að vörunni. Stundum eru þessar auglýsingar ágengar og sem dæmi mætti nefna auglýsingar tryggingafélaganna um forvarnir sem oft eru mjög ágengar . Auglýsingar virka misvel eftir því í hvaða miðli þær birtast, eru það ljósvakamiðlar, blöð, tímarit eða veraldarvefurinn.   Þar þarf enn og aftur að gera sér grein fyrir markhópnum, hvar er hann og hvaða tímarit, blöð les hann eða á hvaða sjónvarpsstöðvar horfir hann.

Upplýsingar um vöruna - sem neytendur viljum við einnig fá upplýsingar um vöruna okkar, hvaða eiginleika hún hefur, hvað kostar hún osfrv. Hvaða ávinning höfum við af því að kaupa þessa tilteknu vöru.  Þannig geta neytendur tekið rökstudda ákvörðun um kaupin.  Miðlar sem nýtast best fyrir slíkar auglýsingar eru prentmiðlar og veraldarvefurinn en ljósvakamiðlar henta síður þar sem að oft er um mikið magn upplýsinga að ræða og við getum ekki tekið við miklu magni af upplýsingum. Öðru máli gegnir um prentmiðla og vefinn þar sem við getum tekið okkar tíma og borið saman vörur og þjónustu.  Líftími auglýsingar í sjónvarpi er stuttur og við getum ekki flett til baka og skoðað hana aftur.

Minna fólk á vöruna - þurfum að minna viðskiptavinina okkar á að kaupa vöruna. Það er engin tilviljun að Coka Cola þurfi alltaf að auglýsa þrátt fyrir stóran viðskiptahóp og mikla sölu. Oft þarf ekki mikið til, örlítil áminning gæti dugað. Því er eftirsóknarvert að hafa gott kennimerki (logo) fyrirtækis þar sem það getur kveikt á viðskiptavininum aftur, ef hann sér merkið þá man hann eftir vörunni.

Auk þess sem hér að ofan er talið þá getur auglýsing innihaldið ýmsar upplýsingar, svo sem um það hvernig á að nálgast vöruna þar sem við verðum að gæta að því að fram komi hvar hún er seld, símanúmer, vefsíður, netföng svo eitthvað sé nefnt.  Hvenær er fyrirtækið opið eru einnig mikilvægar upplýsingar svo að viðskiptavinir grípi ekki í tómt.

Einnig getur hún innihaldið hvatningu um að kaupa vöruna þar sem að gefið er til kynna að aðeins fáein eintök séu til, fyrstir koma fyrstir fá eða tilboð sem gilda bara í dag eða þessa viku.

Með því að ávarpa til markaðinn þinn þá nærðu beint til þeirra sem þú vilt ná til. Dæmi um þetta væri ávarpið: Ertu á aldrinum 16-20?

Til að auka traust á vörunni okkar þá getum við sett inn traustvekjandi skilaboð til væntanlegra notenda. Hægt er að nota þekktan einstakling til að flytja skilaboðin fyrir okkur, einhvern sem allir þekkja og geta treyst.

Með tilfinningalegum skilaboðum eigum við við skilaboð sem að snerta við okkur á einhvern hátt, láta okkur hlæja, gráta, þykja vænt um og svo framvegis. Dæmi um þetta eru auglýsingar frá Umferðarstofu eða tryggingafélögum sem reyna að höfða til tilfinninga okkar þegar verið er að reyna að koma í veg fyrir hættulegan akstur.   


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk