Brautargengi
Brautargengi er námskeið fyrir konur um gerð viðskiptaáætlana og stofnun og rekstur fyrirtækja.
Fyrir hverja er Brautargengi?
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd
Markmið
- Ţátttakendur ljúki við vinnu við eigin viðskiptaáætlun
- Öðlist þekkingu á grundvallaratriðum við stofnun fyrirtækis
- Fái hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem lúta að fyrirtækjarekstri s.s. markaðsmálum, fjármálum og stjórnun
- Ţátttakendur fái tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur
Námsefni
- Markviss uppbygging þátttakenda
- Stefnumótun
- Stjórnun og starfsmannamál
- Markaðsmál
- Fjármál
- Tölvuvæðing og internetið
- Hagnýt atriði við stofnun og rekstur fyrirtækis
Kennsluhættir
Fyrirlestrar, verkefnavinna og heimavinna. Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru. Brautargengi er 75 tíma námskeið og kennt er einu sinni í viku, samtals í 15 vikur.
Frekari upplýsingar
Upplýsingar um Brautargengi á Akureyri veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir, mailto:selma@nmi.is, sími 460 7970. Námskeiðsgjald á Akureyri er 40.000 kr.
Upplýsingar um Brautargengi í Reykjavík veitir Hallfríður Benediktsdóttir, hallfridurb@nmi.is, sími 522 9267 Námskeiðsgjald í Reykjavík er 45.000 kr.
Innifalið
- Kennsla og leiðsögn
- Hópeflisferð
- Námsgögn
- Verkefnamappa
- Kaffi og meðlæti
- Handleiðsla
Inntökuskilyrði
Meginskilyrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri og að þátttakandi skuldbindi sig til þess að vinna að gerð viðskiptaáætlunar sinnar í heimavinnu en gera má ráð fyrir að sá þáttur taki amk 10 klst. á viku.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








