Krásir - matur úr hérađi
Krásir - matur úr héraði
Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir sem er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Í verkefninu verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.
Ţátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum.
Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða ferðaþjónustu td. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum, gististöðum eða í veitingahúsum á landsbyggðinni.
Tilgangur verkefnisins er að styrkja þróun í svæðisbundinni matargerð og efla ferðaþjónustu með því að framleiða og selja matvörur sem byggja á hráefni, sögu og þekkingu á ákveðnum svæðum. Ennfremur er markmiðið að auka samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og lítilla fyrirtækja sem framleiða matvörur og auðvelda þeim sameiginlega markaðssetningu á svæðinu, Þeir, sem taka þátt í verkefninu, taka þátt í fræðslu um þróun, vinnslu og meðferð matvæla og fá auk þess fjárhagslegan og faglegan stuðning við þróun á nýjum afurðum. Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og faglegri vinnu við þróun á nýjum matvörum.
Markmið
-
Að auka framboð á matvörum sem hafa sterka skírskotun til svæðis eða sögu og menningar á viðkomandi svæði.
-
Að koma nýrri vöru á markað.
-
Að vinna að faglegum úrlausnum við þróun á viðkomandi vöru.
-
Að verkefnin skili fyrirtækjum það miklum ávinningi að kostnaðurinn við vöruþróunina skili sér til baka innan 2-3 ára frá því að sala hefst.
-
Að auka þekkingu á þróun, framleiðslu og markaðssetningu.
-
Að auka og efla samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.
Framkvæmd
Verkefnið hefst með 2 daga námskeiði þar sem þátttakendur fá fræðslu um þróun, vinnslu, meðferð og öryggi matvæla. Kennt verður í janúar 2009 á 3-4 stöðum á landinu, en staðirnir verða valdir með hliðsjón af búsetu þátttakenda. Kennarar koma frá Matís, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra og Hólaskóla, Háskólanum á Hólum. Að námskeiði loknu hefst hin eiginlega þróunarvinna þar sem þátttakendur munu vinna að sínum verkefnum með aðstoð frá Impru auk sérfræðings á tilteknum sviðum. Þjónusta Impru er án endurgjalds en styrknum er ætlað að standa undir hluta af öðrum kostnaði, t.d. ráðgjöf sérfræðinga, prófunum, mælingum eða öðrum þáttum við þróunina.
Forsendur
Forsendur þess að verkefni geti fengið stuðning eru m.a. eftirfarandi:
- Einhver nýjung, þróun eða nýbreytni frá þeim vörum sem eru í boði í dag.
- Tenging við ferðaþjónustuna á svæðinu.
- Sala sé líkleg til að skila þróunarkostnaði til baka á innan við 2-3 árum.
- Verkefnið raski ekki samkeppni á viðkomandi svæði.
Umsóknarfrestur er til og með 12.janúar 2009.
Umsóknareyðublað má nálgast hér http://www.nmi.is/files/Umsóknareyðublað%202_617436270.xlsx
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








