Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Máttur kvenna

Máttur kvenna er fjarnám fyrir konur sem vilja bæta rekstrarþekkingu sína.

Námskeiðið er 11 vikna námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer svo fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Náminu lýkur með vinnuhelgi og formlegri útskrift.
Innifalið í verðinu eru öll námsgögn og 2 vinnuhelgar með gistingu og fæði.

Námsgreinar

Bókhald
Upplýsingatækni
Markaðs- og sölumál 
Fjármál
Áætlanagerð

Eitt af aðalmarkmiðum Háskólans á Bifröst er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með því að veita nemendum framúrskarandi fræðslu og þjálfun á þeim sviðum sem skólinn sérhæfir sig á.
Háskólinn á Bifröst leggur mikla áherslu á gott samstarf við nær­umhverfi sitt og tengingu við atvinnulífið. Algengt er að konur reki eða séu í forsvari fyrir þjónustu­fyrirtæki á landsbyggðinni. Ferðaþjónusta og verslun eru gott dæmi um það. Margar hafa þessar konur áratuga reynslu af fyrirtækja­rekstri. Á fjölmörgum smærri stöðum eru fyrirtæki þeirra kjölfestan í þeirri einkareknu þjónustu sem íbúunum stendur til boða og er alger forsenda þess að gera byggðirnar samkeppnishæfar og halda í íbúa. Mikilvægt er fyrir uppbyggingu efnahagslífs þjóðarinnar að sköpunarmáttur kvenna á landsbyggðinni sé nýttur.

Markmiðin með Mætti kvenna eru:

  • Efla tengslanet kvenna
  • Auka hæfni kvenna í atvinnurekstri
  • Auka arðsemi fyrirtækja
  • Efla atvinnulíf á landsbyggðinni á þeim sviðum sem líklegust eru til að stuðla að vexti og uppbyggingu
  • Skapa fleiri störf
  • Snúa vörn í sókn

Nánari upplýsingar um Mátt kvenna veitir verkefnastjóri símenntunar, Geirlaug Jóhannsdóttir, í síma 433 3015 eða með tölvupósti: geirlaug@bifrost.is.

 


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk