Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Samningatćkni fyrir konur

Á námskeiðinu eru kynnt helstu hugtök í samningatækni með áherslu á stöðu kvenna og reynslu þeirra af samningum. Mörg vandamál sem taka þarf á í samningaferlum hafa lítið sem ekkert með kyn að gera, en reynsla mótar það hvernig fólk bregst við vandamálum og kyn hefur mikil áhrif á reynsluheim. Rannsóknir sýna einnig að konur spreyta sig sjaldnar í samningum. Á námskeiðinu verður farið í verklegar æfingar þar sem aðferðum samningatækninnar verður beitt. Sérstaklega er dregið fram hvernig reynsluheimur kvenna nýtist í samningum og leitað svara við því hvað konur færa að samningaborðinu sem karlar hafa ekki.

Markmið

Markmið námskeiðsins er að kynna konum grunnhugmyndir samningatækninnar og þjálfa þær í að nota samningatæknina í samskiptum sínum og samningum, sér og fyrirtækjum sínum eða atvinnurekendum til hagsbóta.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað konum sem þurfa að semja á vinnustöðum eða inni á heimilinu. Það hentar konum í öllum starfsstéttum og stöðum, enda er gengið út frá því að samningar séu hluti af daglegu lífi og að hægt sé að fá betri niðurstöður með því að beita markvissum aðferðum en ekki.

Kennslufyrirkomulag

Við höldum námskeið inni í fyrirtækjum sé þess óskað. Lágmarksfjöldi  er 12  á námskeiðum.
8 kennslustundir, tvö skipti.

Verð : 18.000 kr

Kennari: Sif Sigfúsdóttir

Samningatækni fyrir konur í Vestmannaeyjum 25.október 2008
-Ég get haft áhrif á lífsgæði og launin mín!
Tími: Lau. 25. okt. kl. 10:00-16:30
Staður: Viska, fræðslu-og símenntunarmiðstöð Strandvegi 50
Lengd: 6 klukkustundir (30 mín. í hádegisverð).
Leiðbeinandi: Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun og markaðsstjóri Viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands.
Ekkert þátttökugjald.
Fyrir konur í SFR og Stavey í Vestmannaeyjum
Samstarfsverkefni Impru á Nýsköpunarmiðstöð, SFR og Stavey
Skráning á http://www.sfr.is/fraedsla/namskeid/nr/63/  

 Allar nánari upplýsingar gefur Brynja Sigurðardóttir brynjasig@nmi.is  í síma 522-9000 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk