Sóknarbraut
Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um rekstur fyrirtækja með áherslu á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Námskeiðið er 36 kennslustundir sem skiptast í 9 hluta. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar. Menntunin fer fram á fræðilegum og faglegum grunni og á námstímanum vinna þátttakendur að ákveðnu verkefni sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd.
Námskeiðslýsing og dagskrá
Tilgangur námskeiðsins er að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, þjálfun, viðtölum og verkefnum sem tengjast þeirri hugmynd sem hver einstaklingur vinnur að hverju sinni.
Meðal verkefna sem unnin verða eru viðskiptaáætlun, kynning á viðskiptahugmynd, skipulagning kynningarbæklings og heimasíðu.
Dagskrá námskeiðsins á Ísafirði og nánari námskeiðslýsingu má nálgast hér.
Dagskrá námskeiðsins í Vestmannaeyjum og nánari námskeiðslýsingu má nálgast hér.
Ţátttakendur
Námskeiðið Sóknarbraut hentar sérstaklega vel einstaklingum sem starfa sem stjórnendur í minni fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa hug á að hrinda í framkvæmd viðskiptahugmynd eða stofna eigið fyrirtæki. Sóknarbraut er opin jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun. Hver þátttakandi vinnur að ákveðinni viðskiptahugmynd undir handleiðslu verkefnisstjóra og kennara meðan á námskeiðinu stendur.
Námstími og verð
Kennslan fer fram með fyrirlestrum og verkefnum í kennslutímum. Námskeiði er 36 klukkustundir sem dreifast á 9 skipti. Kennt er í 4 tíma í senn aðra hverja viku. Náminu lýkur með kynningu nemenda á verkefnum sínum.
Námskeiðið kostar 35.000 kr. og eru öll námskeiðsgögn innifalin.
Umsækjendum er bent á að kanna möguleika á styrk frá viðkomandi stéttarfélagi.
Hér til vinstri er tengill á frekari námslýsingu fyrir námskeiðið Sóknarbrautar. Einnig getur þú sett þig í samband við eftirfarandi aðila til að fá frekari upplýsingar:
Sigurð Steingrímsson, verkefnistjóra hjá Impru, sigurdur@nmi.is, sími 460-7972
Selmu Dögg Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Impru, selmadogg@nmi.is, sími: 460-7975
Örnu Láru Jónsdóttir, verkefnisstjóra hjá Impru, arnalara@nmi.is, sími: 450-4050
Frosta Gíslason, verkefnisstjóra hjá Impru, frosti@nmi.is, sími: 481-3355
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








