Vaxtarsprotar
Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa gert samkomulag um stuðningsverkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum landsins. Verkefnið er nefnt Vaxtarsprotar.
Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni. Þau svæði sem verkefnið mun beinast að á árinu 2008 eru annars vegar Þingeyjarsýslur (vormisseri) og hins Dalir og Reykhólahreppur (haustmisseri). Verkefnið er unnið í samstarfi við landbúnaðarráðunauta á hverju svæði sem og atvinnuþróunarfélög.
Fyrir hverja er verkefnið?
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar. Íbúar í þéttbýli geta einnig tekið þátt, en ábúendur á lögbýlum hafa forgang. Þátttakendur vinna með eigin viðskiptahugmyndir. Fulltrúum starfandi fyrirtækja er einnig velkomið að taka þátt með það að markmiði að vinna að frekari framþróun eða mótun nýjunga í rekstri sínum. Þátttaka í Vaxtarsprotum er án endurgjalds.
Ferli verkefnisins
Verkefnið byggir á ákveðnu ferli sem má lýsa á eftirfarandi hátt:
- Kynning á verkefninu.
- Fræðsla og leiðsögn við hugmyndavinnu og undirbúning viðskiptahugmynda (bæði í námskeiðaformi og gegnum einstaklingsmiðaða leiðsögn).
- Kynning á möguleikum á fjárstyrkjum frá Impru og Framleiðnisjóði og leiðsögn við gerð umsókna.
- Eftirfylgni og áframhaldandi leiðsögn.
Ţátttaka í verkefninu ein og sér felur ekki í sér vilyrði fyrir fjárstyrkjum. Hvert og eitt verkefni verður metið með tilliti til verklagsreglna sem gilda um styrkveitingar hjá forsvarsaðilum verkefnisins. Virk þátttaka í fyrri stigum verkefnisins eykur hins vegar líkur á að verkefni séu vel undirbúin og þar með aukast líkur á styrkjum.
Leiðsögn og frekari upplýsingar
Ţátttakendum í verkefninu mun á verkefnistímanum standa til boða leiðsögn hjá starfsmönnum Impru og stuðningsaðilum í heimabyggð. Framkvæmd verkefnisins á haustmisseri 2008 er unnin í samstarfi við Búnaðarsamtök Vesturlands og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða.
Hér til vinstri eru tenglar á námskeiðsdagskrá Vaxtarsprota og nánari upplýsingar um fræðsluhluta verkefnisins. Þar er einnig að finna kynningarbækling verkefnisins fyrir haustmisseri 2008. Elín Aradóttir verkefnisstjóri hjá Impru veitir nánari upplýsingar um verkefnið í síma 4607970 eða gegnum tölvupóst elina@nmi.is.
Fræðsluhluti Vaxtarsprota samanstendur af 32 klst. námskeiði. Hin eiginlegu námskeiðsskipti eru átta talsins en einnig verður boðið upp á tvær opnar vinnusmiðjur fyrir þátttakendur. Aðalkennari á námskeiðunum er G. Ágúst Pétursson viðskiptaráðgjafi og leiðbeinandi í frumkvöðlafræðum.
Viðfangsefni námskeiðs
- Kynning á námskeiðsferlinu og námskeiðsgögnum, hugmyndavinna, stefnumótun og markmiðasetning.
- Gerð viðskiptaáætlana, vöru- og þjónustuþróun.
- Verkefnastjórnun og áætlanagerð.
- Opin vinnusmiðja*, þátttakendur vinna í eigin verkefnum.
- Markaðsmál, markaðsgreining og markaðsupplýsingar.
- Rekstrarform fyrirtækja og ýmis hagnýt atriði um fjármál.
- Gerð markaðsáætlana.
- Opin vinnusmiðja*, þátttakendur vinna í eigin verkefnum með áherslu á fjárhagsáætlanagerð.
- Kynningartækni og upprifjun.
- Kynning þátttakenda á viðfangsefnum sínum. Útskrift af námskeiði.
* Vinnusmiðjur teljast ekki til námskeiðskennslustunda
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








