Pistlar frá Þekkingarmiðlun
9.11.2009
Veldur hver á heldur
Ástæða þess að mikið hefur verið rætt og ritað um starfsánægju og vellíðan á vinnustað er að sterk tengsl eru á milli hennar og árangurs í starfi. Allir þekkja það að nenna ekki að vinna leiðinleg verkefni eða að hafa svo mikla ánægju af starfinu að það er erfitt að hætta.
2.11.2009
Menning kröftugra vinnustaða
náttúruhamförum eða efnahagskreppunni sem við upplifum í dag? Þetta eru erfiðar en mikilvægar spurningar sem vert er að velta fyrir sér.
26.10.2009
Vinnustaðurinn á óvissutímum
Eftir Ingrid Kuhlman
Íslensk fyrirtæki róa nú mörg hver lífróður og standa fyrir einhverri mestu áskorun síðari tíma. Mörg hafa þurft að grípa til uppsagna, breyta starfshlutfalli starfsmanna og lækka laun þeirra, eða eru í startholunum með slíkar aðgerðir.
19.10.2009
Að þróa með sér lærða bjartsýni
það gerir, og séu því sjálfu um að kenna. Bjartsýnt fólk, sem mætir sömu bakslögum, skýrir ólánið á allt annan hátt. Það telur að mótlætið sé aðeins tímabundið bakslag eða jafnvel áskorun, og að það sé ekki því sjálfu um að kenna."
12.10.2009
Milli þess sem var og verður

Gary Hamel, einn þekktasti fræðimaður heims á sviði breytinga, sagði að það eina sem menn gætu gengið að sem vísu væru breytingar. Aldrei fyrr hafa þessi orð verið eins sönn og einmitt núna í dag þar sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir einhverri mestu áskorun síðari tíma.
5.10.2009
Listin að lifa í núinu
eldri svaraði: „Það gerist ekkert næst. Þetta er það."Lífið gerist í núinu.
21.9.2009
Að komast í hugflæði

Ímyndaðu þér að þú sért að renna þér niður skíðabrekku. Athyglin er öll á hreyfingar líkamans, stöðu skíðanna, vindinn sem streymir um andlitið og snævi þakin trén sem þjóta fram hjá. Í meðvitundinni er ekki pláss fyrir átök eða mótsagnir; þú veist að truflandi hugsun eða tilfinning gæti orðið þér að falli. Ferðin er það fullkomin að þú myndir vilja að hún varaði að eilífu.
14.9.2009
Að þróa með sér jákvætt viðhorf
Eftir Ingrid Kuhlman
Margir eru þeirrar skoðunar að viðhorf þeirra sé afleiðing ytri aðstæðna. Þeir gleyma því að viðhorf okkar er afleiðing þess hvernig við ákveðum að túlka það sem gerist í kringum okkur. Tökum sem dæmi veðrið. Margir hér á Íslandi láta t.d. haglél eða snjókomu hafa neikvæð áhrif á skapið.
7.9.2009
Er hamingjan ofmetin?
Eftir Ingrid Kuhlman
Hamingja er ekki að fá það sem þú vilt heldur að vilja það sem þú hefur
Árið 2008 komu út 4000 bækur um hamingju samanborið við aðeins 50 bækur átta árum áður. Vinsælustu námskeiðin í Harvard háskólanum eru um jákvæða sálfræði, og að minnsta kosti 100 aðrir háskólar bjóða sambærilegt nám.
1.9.2009
Bestu fyrirtæki heims byggja á sterkum og traustum gildum
Eftir Þórhildi Þórhallsdóttur
Horfst í augu við ískaldan raunveruleikann
Það er ögrandi verkefni að vera stjórnandi í dag. Samtíminn felur í sér gríðarlega áskorun og flókin verkefni og í mörgum tilfellum er verkefnið barátta um að koma fyrirtækinu í gegnum þessa rósturtíma.








