Sjö venjur þeirra sem eru hamingjusamir - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
14.4.2011
Sjö venjur þeirra sem eru hamingjusamir
Flestir eru eins hamingjusamir og þeir ákveða að vera. - Abraham Lincoln
Hamingjusamasta fólkið í veröldinni deilur sjö mjög áberandi venjum. Ef þú ert að leita eftir að auka almenna hamingju þína er gott að íhuga þessar venjur:Vertu hluti af einhverju sem þú trúir á. Þetta getur verið hvað sem er. Sumir taka virkan þátt í félagsstörfum, aðrir finna athvarf í trúnni og enn aðrir slást í hóp með samtökum sem þeir hafa miklar mætur á, eða finna ástríðu í starfi sínu. Sama hvað um er að ræða, sálfræðilega útkoman er sú sama. Þeir helga sig einhverju sem þeir hafa mikla trú á, og það færir þeim hamingju og tilgang.
- 1. Verðu tíma með vinum og fjölskyldu. Ánægjulegt líf er líf sem við deilum með vinum og fjölskyldu (í þessari röð). Því nánari sem tengslin eru og því oftar sem við eigum í samskiptum við þau, því hamingjusamari verðum við.
- 2. Íhugaðu hið góða. Fólk einblínir frekar oft of mikið á neikvæða útkomu og ver litlum tíma í að velta fyrir sér árangri sínum. Það er okkur eðlislægt að vilja leiðrétta óæskilegar aðstæður og einbeita okkur að því, en það verður að vera heilbrigt jafnvægi í meðvitund okkar. Það er mikilvægt að íhuga á meðvitaðan og opinn hátt það góða á meðan við vinnum ötullega að því að leiðrétta það sem er miður gott. Áframhaldandi almenn meðvitund um daglegan árangur getur haft jákvæð áhrif á almenna tilfinningalega hamingju okkar.
- 3. Notfærðu þér það sem þú býrð yfir. Fólk er yfirleitt hissa þegar það sér líkamlega fatlaðan einstakling sýna sterk einkenni tilfinningalegrar hamingju. Hvernig getur fólk með það takmarkaða möguleika verið svona hamingjusamt? Svarið liggur í því hvernig það notar það sem það býr yfir. Stevie Wonder er blindur, en hann notfærir sér heyrnina í ástríðu sinni fyrir tónlist, og hann er í dag með 25 Grammy verðlaun til sönnunar.
- 4. Skapaðu góðan endi eins oft og mögulegt er. Máttur enda er hreint ótrúlegur. Það hvernig atburður endar hefur djúpstæð áhrif á almenna upplifun fólks á reynslunni í heild sinni. Ímyndaðu þér skáldsögu sem ögrar hugsunum þínum og er sæmilega vel skrifuð. Endirinn er hins vegar hreint út sagt glataður. Jafnvel þó að sagan hafi verið hrífandi þangað til í blálokin, myndirðu líklega ekki mæla með bókinni við vini. Fólk man alltaf endinn. Ef endirinn er ánægjulegur, skapar upplifunin hamingju. Gott er að ganga alltaf frá lausum endum, skilja við hlutina á góðum nótum og skapa ánægjulega endi í lífi þínu eins oft og hægt er.
- 5. Nýttu persónulega styrkleika við að koma hlutum í framkvæmd. Öll búum við yfir sérstökum styrkleikum. Öll höfum við mismunandi hæfileika og færni. Tilfinningaleg hamingja er eðlileg þeim sem nýta styrkleika sína við að framkvæma hluti. Það að ljúka við verkefni skapar ávallt árangurstilfinningu. Ef árangurinn er eingöngu byggður á persónulegri færni þinni er lífeðlisfræðilega umbunin ómetanleg.
- 6. Njóttu litlu hlutanna. Bestu hlutirnir í lífinu eru ókeypis - og í flestum tilfellum ekki einu sinni hlutir. Þeir birtast í formi fábrotinnar ánægju og sýnast á mismunandi stöðum og handahófskenndum augnablikum. Þetta snýst allt um það að gefa sér tíma til að taka eftir appelsínugulu sólarlaginu í vatninu á meðan þú heldur í hendinni á þeim sem þér þykir vænt um. Að taka eftir þessum augnablikum og taka þátt í þeim reglulega mun færa þér ófyrirsjáanlega hamingju.
Birtist í Morgunblaðinu 11. ágúst 2009
Ingrid Kuhlman








