Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Þegar kertið okkar brennur út og áhugi breytist í áhugaleysi - Pistlar frá Þekkingarmiðlun

24.2.2010

Þegar kertið okkar brennur út og áhugi breytist í áhugaleysi

Eftir Ingrid Kuhlman

Efnahagshremmingar og starfsöryggi leiða oft til streitu og kulnunar. Langvarandi álag getur haft þau áhrif að við verðum svekkt. Okkur virðast vandamálin óyfirstíganleg og við eigum erfitt með að safna orku til að láta okkur aðstæðurnar varða og leysa málin. Þess vegna er mikilvægt að þekkja einkenni kulnunar.

Kulnun er ekki annað orð fyrir streitu. Streita er líffræðilegt og læknisfræðilegt hugtak sem vísar til viðbragða líkamans við líkamlegu og tilfinningalegu áreiti. Viðbrögðin geta náð yfir framleiðslu adrenalíns, skammtíma viðnám sem leið til að ráða við ástandið, ofþreytu o.fl. Kulnun á hinn bóginn er sálfræðilegt hugtak sem vísar til ástands þar sem viðkomandi dregur sig í hlé og sýnir minni áhuga. Kulnun er oft afleiðing látlausrar streitu, en ekki það sama og of mikil streita. Streita varðar of mikla pressu sem krefst of mikið af fólki líkamlega og andlega. Stressað fólk getur enn ímyndað sér að ef það nái tökum á öllu þá muni því líða betur. Kulnun aftur á móti þýðir að fólk upplifir tómleika, skort á hvatningu, og því er sama um það. Þeir sem upplifa kulnun eru oft ekki vongóðir um að eitthvað muni breytast til betri vegar.

Streita

Kulnun

Einkennist af mikilli virkni

Einkennist af skorti á virkni

Tilfinningar eru öfgakenndar

Tilfinningalegur sljóleiki

Afleiðingin er flýti og ofvirkni

Afleiðingin er hjálparleysi og vonleysi

Orkutap

Tap á hvatningu, hugsjónum og von

Leiðir til kvíðaröskunar

Leiðir til þess að fólki verður sama og upplifir þunglyndi

Skaðinn er aðallega líkamlegur

Skaðinn er aðallega tilfinningalegur

Margir halda að auðvelt sé að þekkja kulnunareinkenni. Sannleikurinn er hins vegar sá að það kemur fólki oft í opna skjöldu þegar það er við það að brotna niður. Það er vegna þess að við erum hluti af upplifuninni og hugsum ekki endilega rökrétt. Kulnun er hægfara ferill sem verður ekki til yfir nótt en getur lagst yfir mann ef maður veitir ekki viðvörunarmerkjum athygli. Merkin og einkennin eru væg fyrst en versna með tímanum. Ef fólk spyr mann hvað sé að eða nefnir að maður virðist ekki vera maður sjálfur er mikilvægt að veita því athygli.

Þau einkenni sem benda til kulnunar eru margvísleg. Líkamleg einkenni eru örmögnunartilfinning lungann úr deginum, tíður höfuðverkur, bakverkir og breytingar á svefnvenjum eða mataræði. Andleg einkenni eru m.a. tilfinningin að mistakast og efast um sjálfan sig, að finnast maður vera fastur, andleg flatneskja, kaldhæðið og neikvætt viðhorf og sú tilfinning að koma litlu í verk. Hegðunareinkenni eru m.a. að fría sig ábyrgð, einangra sig, fresta meiru en venjulega, taka pirringinn út á öðrum, fjarvistir eða óstundvísi og að neyta áfengis, fíkniefna eða matar til að höndla aðstæðurnar. 

Kulnun fylgir oft eftirfarandi fimm stigum:

  1. Ákafastigið. Á þessu stigi er starfið hvetjandi, verkefnin krefjandi og sjálfsmynd okkar háð frammistöðu. Yfirvinna er upplifuð sem skemmtileg.
  2. Stöðnunarstigið. Á þessu stigi er árangurinn minni en búist var við og við höfum efasemdir um vinnuna. Heilsu okkar hrakar.
  3. Vonbrigðastigið. Okkur hryllir við framtíðina og við upplifum neikvæðni og vanmáttarkennd. Grunnt er á pirringi og við drögum okkur í hlé.
  4. Sinnulausa stigið. Við sýnum uppgjöf gagnvart vinnunni og byrjum að fjarlægjast vinnufélaga, vini og fjölskyldu. Sjálfstraustið bíður hnekki.
  5. Kulnun. Á þessu stigi er um að ræða líkamlegt eða sálrænt hrun. Við neyðumst til að hætta störfum eða fá ný verkefni.

Allir geta fengið kulnunareinkenni en rannsóknir hafa sýnt að sumir eru líklegra en aðrir til að brenna út. Þeir sem eiga í hættu á kulnun eiga oft sameiginlegt að þeir:

  • eru haldnir fullkomnunaráráttu.
  • gera allt sem þeir gera vel og vinna mikið.
  • eru hugsjónarmenn.
  • eru markmiðadrifnir, metnaðarfullir og hafa þörf fyrir að sanna sig.
  • hafa mikla ábyrgðartilfinningu.
  • eru hollir fyrirtækinu eða málstaðnum.
  • eru þjónustulundaðir og hjálpfúsir.
  • eiga erfitt með að segja nei.
  • þekkja eigin takmörk ekki nógu vel.
  • eiga erfitt með að fela vald og ábyrgð.
  • fórna sér.

Fyrirbyggjandi aðgerðir geta m.a. verið að byrja daginn á slakandi venjum eins og t.d. að hugleiða, skrifa í dagbók, gera teygjuæfingar eða lesa eitthvað sem veitir manni innblástur. Annað sem er mikilvægt er heilbrigðar svefnvenjur þ.e.a.s. að hvíla sig á reglulegum tímum en það gefur manni aukna orku og seiglu til að takast á við kröfur og hindranir. Einnig er gott að setja raunhæf tímamörk og fara ekki fram úr sjálfum sér. Að sinna skapandi vinnu er einnig gott ráð þar sem sköpunargáfa virkar sem kraftmikið mótefni gegn kulnun. Prófaðu eitthvað nýtt, byrjaðu á nýju verkefni eða snúðu þér að áhugamáli.

Fyrir vinnustaði er mikilvægt að hafa upplýsingar um kulnun á innranetinu eða í fréttabréfi ásamt ráðleggingum. Einnig er gott að endurskoða starfslýsingarnar til að sjá hvort þær séu kannski of almennar. Ein ástæða streitu á vinnustað er að vita ekki til hvers er ætlast af manni. Hluti af því að upplifa starfsánægju er að ná settum markmiðum. Mikilvægt er að hvetja starfsmenn sem halda að þeir séu með kulnunareinkenni til að leita aðstoðar læknis eða sálfræðinga þar sem einkenni geta versnað enn frekar ef þeir reyna að þrjókast í gegnum ofþreytuna og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk