Niðri fyrir en ekki úr leik - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
22.3.2010
Niðri fyrir en ekki úr leik
Við þurfum öll að takast á við mótlæti í lífinu, hvort sem er í starfi, ástarsamböndum eða fjölskyldu. Mótlæti getur dregið okkur niður
og haft í för með sér neikvæðar tilfinningar eins og kvíða og ótta. Hins vegar neyðir það okkur oft líka til að taka áhættu, læra og þroskast. Þegar við erum að ná okkur eftir áföll eins og t.d. starfsmissi, skilnað eða andlát ástvinar getum við þurft að takast á við ýmsar aðrar tilfinningar eins og reiði, lágt sjálfsmat og sjálfsefasemdir. Þessar tilfinningar eru hluti af bataferlinu og því ekki gott að flýta sér of mikið. Með tímanum koma síðan aðrar tilfinningar eins og viðtaka og von. Þegar við náum að sleppa fortíðinni upplifum við oft aukið sjálfsálit og meiri bjartsýni.
En hver er leiðin að því? Terri Needels, klíniskur sálfræðingur í Hawaii segir að fólk eigi ekki að einblína á það sem það missti eða virkaði ekki. Það þurfi í staðinn að endurskrifa handritið og líta á sjálft sig með öðrum hætti - t.d. í öðru starfi, á öðrum vinnustað eða með öðrum maka."
Þetta er víst auðveldara sagt en gert. Sumir eru pirraðir eða kenna sjálfum sér um mótlætið á meðan aðrir dragast jafnvel niður í þunglyndi. Aðrir aftur á móti ná sér fljótt og sýna seiglu. Hægt er að auka seiglu með því að æfa sig og læra af reynslunni. Þeir sem hafa náð miklum árangri, hvort heldur er í viðskiptum, námi, íþróttum eða á öðrum sviðum lífsins, hafa undantekningalaust þurft að takast á við bakslög, en náð sér á strik aftur. Þeir líta á vonbrigði sem tækifæri til að gera eitthvað nýtt. „Stór missir færir manni stærsta tækifærið til breytinga", segir Needels. „Hann gerir fólk opnara fyrir því að prófa nýja hluti."
Hér fyrir neðan eru nokkur góð ráð til að auka seigluna og sigrast á lífsins vonbrigðum:
- Viðurkenndu bakslagið. Áttaðu þig á því að enginn kemst hjá því að takast á við bakslög og að þú munir kannski aldrei skilja fyllilega hvað gerðist.
- Horfstu í augu við ótta þinn. Það er eðlilegt að vera óörugg/ur, ekki loka þig af og forðast óvissuna.
- Sýndu þolinmæði. Íhugaðu hvað þú ætlar að gera, en farðu þér hægt þar sem það mun aðeins gera illt verra að flýta sér um of. Það er mikilvægt að vinna sig í gegnum þessar óþægilegu tilfinningar þar sem þær eru mikilvægt skref í að öðlast styrk á nýjan leik.
- Farðu út fyrir öryggismottuna. Taktu áhættu. Leggðu þig eftir starfi sem þú heldur að þú valdir ekki. Með því að ögra sjálfum sér öðlast maður seiglu og betra sjálfsálit.
- Finndu hetjuna þína. Hugsaðu um fólk sem hefur sigrast á erfiðleikum, eins og t.d. Christopher Reeve (Superman) sem lamaðist fyrir neðan háls þegar hann datt af hestbaki. Notaðu slíka einstaklinga sem fyrirmynd.
- Vittu hvað þú vilt. Þegar þú ert með markmið er auðveldara að gera áætlanir og halda áfram.
- Hugsaðu í lausnum. Vertu ekki fórnarlamb heldur sýndu frumkvæði og hugsaðu lausnamiðað.
- Taktu eitt skref í einu. Umfang verkefnis, eins og t.d. að finna nýtt starf eftir uppsögn, getur stundum virst óviðráðanlegt. Einblíndu á öll þau skref sem þarf að taka, ekki aðeins verkefnið í heild sinni.
- Leitaðu stuðnings. Ekki er gott að einangra sig eða byrgja tilfinningar sínar inni, frekar að segja fólki sem maður treystir frá þeim eða skrifa niður hvernig manni líður. Talaðu við vini, fjölskyldu eða sérfræðing. Einnig getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur lent í svipaðri reynslu.
- Vertu góð/ur við sjálfa/n þig. Vonbrigði eru uppspretta streitu og því er mikilvægt að huga að heilsunni, leggja áherslu á að hvílast vel, stunda reglulega hreyfingu og borða hollan mat.








