Hamingja í daglegu lífi - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
5.4.2010
Hamingja í daglegu lífi

Daglegt líf er hægt að glæða meiri hamingju. Þetta er spurning um val þar sem viðhorf okkar hefur mikil áhrif á hvort við erum hamingjusöm eða ekki. Við þurfum að takast á við ýmsar uppákomur yfir daginn og sumar þeirra valda okkur hugsanlega ekki hamingju. Við getum valið að dvelja við þessa óánægjulegu atburði, eða við getum ákveðið að neita að hugsa um þá og hafa frekar yndi af ánægjulegum augnablikum. Við upplifum öll stöðugt mismunandi aðstæður, en við þurfum ekki að láta þær hafa áhrif á viðbrögð okkar og tilfinningar.
Ef við látum ytri aðstæður hafa áhrif á skap okkar, verðum við að þrælum þeirra. Við missum frelsi okkar og látum ytri krafta ákvarða hamingju okkar. Við getum á hinn bóginn leyst okkur undan ytri aðstæðum og ákveðið að vera hamingjusöm. Við getum gert margt til að auka eigin hamingju.
En hvað er hamingja? Hamingja er tilfinning innri friðar og ánægju. Við upplifum yfirleitt hamingju þegar við erum laus við áhyggjur, ótta eða neikvæðar tilfinningar, og þetta gerist yfirleitt þegar við erum að gera eitthvað sem við höfum ánægju af eða þegar við fáum, vinnum eða öðlumst eitthvað sem við metum mikils. Þó að hamingja virðist vera afrakstur jákvæðra atburða, kemur hún oft innan frá.
Fyrir marga er hamingjan skammvinn þar sem þeir láta breyttar ytri aðstæður hafa áhrif til verri vegar. Ein besta leiðin til að viðhalda hamingju sinni er að öðlast innri frið með því að stunda hugleiðslu daglega. Eftir því sem ró færist yfir hugann verður auðveldara að taka þá ákvörðun að vera hamingjusamur.
Hér fyrir neðan eru nokkur góð ráð til að auka hamingju í daglegu lífi:
- 1) Leitastu við að breyta því hvernig þú lítur á hlutina. Líttu alltaf á björtu hliðarnar. Leyfðu ekki huganum að hugsa um neikvæða hluti og erfiðleika. Finndu góðar og jákvæðar hliðar á hverju máli.
- 2) Hugsaðu í lausnum, ekki vandamálum.
- 3) Hlustaðu á afslappandi, upplífgandi tónlist.
- 4) Horfðu á það sjónvarpsefni sem fær þig til að hlæja.
- 5) Verðu á hverjum degi tíma í að lesa nokkrar síður í bók eða grein sem veitir þér innblástur.
- 6) Fylgistu með hugsunum þínum. Skiptu um gír um leið og þú tekur eftir því að þú ert farin(n) að hugsa neikvæða hluti og skiptu þeim út fyrir jákvæðar hugsanir.
- 7) Veltu alltaf fyrir þér því sem þú ert búin(n) af afreka en ekki því sem þú hefur ekki náð að gera. Oft erum við í upphafi dagsins með langan lista af verkefnum sem við ætlum að ljúka. Í lok dagsins erum við yfirleitt pirruð vegna þess að við komum þeim ekki öllum í verk. Betra er að einblína á það sem þú náðir að gera, sem er yfirleitt heilmikið, og vera ánægð(ur) með afraksturinn í stað þess að einblína á óunnin verkefni og líða illa. Það væri ekki réttlátt gagnvart sjálfum/sjálfri þér.
- 8) Gerðu eitthvað sem veitir þér orku og ánægju á hverjum einasta degi. Það getur verið eitthvað einfalt eins og að lesa bók, borða það sem þér finnst gott, horfa á uppáhaldsþáttinn þinn eða fara í jóga eða góða göngu.
- 9) Gerðu daglega eitthvað sem gleður aðra. Þetta getur verið hlýleg orð eða hrós, að aðstoða samstarfsmenn, gefa makanum axlanudd o.fl. Möguleikarnir eru endalausir. Þegar þú veitir öðrum ánægju, eykst ánægjan þín auk þess sem aðrir munu reyna að veita þér ánægju.
- 10) Gakktu ávallt út frá hamingju, en ekki óhamingju. Væntu þess besta.
- 11) Öfundaðu ekki fólk sem er hamingjusamt. Þvert á móti, vertu ánægð(ur) fyrir þeirra hönd.
- 12) Umkringdu þig hamingjusömu fólki og reyndu að læra af því listina að vera hamingjusamur. Hafðu í huga að hamingja er smitandi.
- 13) Gerðu þitt besta til að gæta hlutleysis þegar hlutirnir ganga ekki eins og þú óskaðir. Þetta mun hjálpa þér við að halda ró þinni og stjórna skapi þínu og viðbrögðum. Hlutleysi er ekki það sama og afskiptaleysi heldur er frekar um að ræða jafnvægi og viðurkenningu á því góða og slæma. Það tengist sterklega innri friði, og innri friður veitir okkur hamingju.
- 14) Brostu oftar. Rannsókn ráðgjafans Leslie Gibson sem birtist í tímaritinu Florida Trend árið 1992 sýndi að leikskólabörn brosa að meðaltali 400 sinnum á dag á meðan fullorðnir brosa aðeins 15-16 sinnum á dag. Við mættum því öll taka okkur á.








