Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Bestu starfsmennirnir með þeim fyrstu að hætta á óvissutímum - Pistlar frá Þekkingarmiðlun

2.7.2010

Bestu starfsmennirnir með þeim fyrstu að hætta á óvissutímum

Eftir Ingrid Kuhlman

Á tímum hópuppsagna eru hæfileikaríkustu starfsmennirnir með þeim fyrstu að yfirgefa vinnustaðinn. Þeir eru yfirleitt með gott tengslanet og nógu skynsamir og virkir til að yfirgefa sökkvandi skip, áður en þeir lenda sjálfir í uppsögn. Þetta segir vinnusálfræðingurinn Marc van Veldhoven við Háskólann í Tilburg í Hollandi.

„Sá sem hefur möguleika á að fara grípur hann oft. Í fyrirtækjum þar sem hópuppsagnir eiga sér stað eru yfirleitt litlir möguleikar á að þróast áfram, alla vega til skamms tíma. Um er að ræða stöðnun á mörgum sviðum. Þetta ýtir starfsmönnum út, sérstaklega unga og efnilega fólkinu. Afleiðingarnar af þessu eru að mörg fyrirtæki eiga erfitt með að komast í gang aftur eftir samdrátt þar sem bestu starfsmennirnir eru farnir.

Aðrir starfsmenn vilja gjarnan vera áfram hjá sínum vinnuveitanda af því aðþeir hafa ekki aðra möguleika eða eru tryggir fyrirtækinu sem þeir hafa starfað hjá í mörg ár. Óvissa varðandi starfið leiðir til þess að þeir leggja sig meira fram og tilkynna sjaldnar veika. Þeir vilja ekki fá mínuspunkta í kladdann", að sögn Van Veldhoven.

Félagslegt tengslanet og status
Vinna skiptir miklu máli á samdráttartímum, að mati Van Veldhoven. „Hún tryggir laun, félagslegt tengslanet og status. Rannsóknir hafa sýnt fram á að starfsóöryggi skapar jafn mikla streitu og uppsögn. Starfsmenn sem eru ekki vissir um hvort þeir haldi vinnunni upplifa vanmátt. Þeir eru ekki aðeins smeykir við að fá uppsagnarbréfið heldur líka með áhyggjur af því að þurfa að vinna meira eða sætta sig við tilfærslu eða launalækkun."

Fólki sem fær uppsögn reiðir oft betur af til lengri tíma litið
„Til lengri tíma leiða rannsóknir í ljós að fólki sem er sagt upp reiðir oft betur af en þeim sem fengu að vera áfram. Þó að uppsögnin sé reiðarslag fyrir marga þá komast þeir í annað starf á endanum og upplifa að þeir hafi meiri stjórn á starfsframa sínum en þeir sem sitja eftir. Þeir upplifa það sem í fræðunum hefur verið kallað „survivor‘s syndrome": þeir hafa minni stjórn á hlutunum, færri möguleika og fá stundum lægri laun. Þeir upplifa tilfinningar eins og reiði og kvíði, kaldhæðni, vantrú, óöryggi, hefnd og gremja í garð stjórnenda. Þeir upplifa sektarkennd gagnvart fyrrverandi samstarfsmönnum og eru oft undir meira álagi vegna þess að þeir þurfa að setja sig inn í önnur og ný störf og axla jafnvel meiri ábyrgð. Þeir missa ekki aðeins samstarfsmenn sína heldur líka eldmóðinn og kraftinn. Uppsögn getur líka skapað spennu eða jafnvel eyðilagt samskipti við fyrrverandi félaga á vinnustað."


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk