Losaðu þig við 50 atriði - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
8.7.2010
Losaðu þig við 50 atriði
Gail Blanke er höfundur bókarinnar Throw Out Fifty Things: Clear the Clutter, Find Your Life. Að sögn Blanke er líf okkar það fullt af rusli fortíðarinnar - frá uppþornuðum túpum að gömlum deilumálum - að það er mesta furða að við náum yfirleitt að fara á fætur á morgnana. Þó að Blanke, sem er stjórnendaþjálfari og fyrirlesari - hvetji viðskiptavini sína til að byrja á því að ráðast á draslið heima hjá sér og á skrifstofunni, þá er lokatakmarkið að fjarlægja allan farangur sem heldur aftur af fólki, íþyngir því og kemur í veg fyrir að það lifi lífinu til fulls.
Blanke útlistar eftirfarandi reglur:
- 1. Ef það - hluturinn, trúin, sannfæringin, starfið, minningin eða jafnvel manneskjan - íþyngir þér, stíflar þig eða lætur þig líða illa með sjálfa(n) þig, gefðu það, seldu það, slepptu því og haltu áfram.
- 2. Ef það situr bara þarna, tekur pláss og hefur ekkert jákvætt fram að færa til lífs þíns, gefðu það, seldu það, slepptu því og haltu áfram. Ef þú heldur ekki áfram, ertu að fara aftur á bak. Losaðu þig við allt það sem er neikvætt þar sem það hjálpar þér við að finna aftur það sem er jákvætt.
- 3. Ekki dvelja of lengi við ákvörðunina um að henda því eða halda því. Ef þú þarft að vega rökin með og á móti of lengi eða þjást yfir því að taka réttu ákvörðunina, er best að losa þig við það.
- 4. Vertu ekki hrædd/ur. Við erum að tala um líf þitt. Það eina sem þú átt fyrir vissu. Þú hefur ekki tíma, orku né pláss fyrir efnislegan eða sálrænan úrgang.
En hvernig hefur það að losa sig við efnislega hluti - gamla lykla, gamalt meik, sokka sem passa ekki saman, úrelt gögn - áhrif á draslið í huganum okkar? Blanke segir að við getum ekki haldið áfram ef við sleppum ekki fortíðinni. Og besta leiðin til að sleppa fortíðinni sé að kasta út 50 hlutum og byrja á efnislegum hlutum sem hafa verið að stífla líf okkar.
„Síðan kemur að þeim andlegu og tilfinningalegu hindrunum sem halda aftur af okkur, röddinni sem segir okkur: „Ég er ekki nógu góð/ur", „Ég hefði átt að sjá það koma", „Sjáðu öll mistökin sem ég hef gert." Fyrst þegar maður hendir þeim hlutum getur maður haldið áfram. Þá fyrst nær maður stjórn á eigin lífi. Maður þróar með sér nýjan hugsanagang, nýjar venjur. Það frelsar mann á ótrúlegan hátt", segir Blanke. „Gott er að geyma þá hluti sem gefa manni góða tilfinningu, eins og t.d. tennisspaðann sem maður notaði þegar maður var ungur og veitti manni mikla ánægju."
Blanke segir að mesta draslið í lífi okkar stafi af óákveðni - að ákveða ekki hvað við þurfum eða hver við erum. Tilgangurinn með að henda 50 hlutum sé að ákveða hver við viljum vera. Hvað ættirðu að geyma sem mun gera þér það kleift, og hvað gæti staðið í vegi þínum? Að halda öllu opnu er ekki eins orkugefandi og að sleppa einhverju, að hennar mati.
Blanke hvetur fólk að losa sig við fullkomnunarþörfina þar sem fullkomnun sé ekki til. „Ef þú ert að rembast við að vera fullkominn ertu að eyða miklum tíma í að sjá eftir ófullkomnun þinni, á meðan þú ættir að vera að verja tíma í að halda áfram. Auðvitað komum við til með að gera mistök. Það er bara hluti af þessu. Eina leiðin til að gera ekki mistök er að hreyfa sig ekki, reyna ekki neitt, taka ekki þátt. Auk þess er það að gera mistök eina leiðin til að læra. Merki heilbrigðs fyrirtækis er viðbrögð þess þegar eitthvað fer úrskeiðis: „Frábært, hvað getum við lært af þessu?" Óheilbrigt fyrirtæki mun aftur á móti segja: „Hver gerði þetta?"
Blanke hvetur viðskiptavini sína til að velja lag sem hvetur þá áfram. Hún segir að eitt af því sem hjálpi fólki sé að hafa lag sem veitir innblástur. „Og það skipti engu máli hvort maður geti sungið eða ekki, stundum eru verstu söngvararnir þeir bestu."
Nánari upplýsingar á http://www.throwoutfiftythings.com/








