Neikvæðar tilfinningar erfast - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
15.7.2010
Neikvæðar tilfinningar erfast
Neikvæðar tilfinningar, svo sem kvíði og depurð, eru að stórum hluta til erfðafræðilegar að sögn Chris Baeken við Frjálsa Háskólann í Brussel. Hingað til héldu fræðimenn að neikvæðar tilfinningar stöfuðu af atburðum í fortíðinni.
Chris Baeken gerði rannsókn meðal ungra kvenna á aldrinum 24 ára og sýndi þeim myndir af ungabörnum. Það er þekkt að slíkar myndir framkalla yfirleitt sterkar tilfinningar hjá ungum konum.
Konunum voru sýndar myndir af hlæjandi og glöðum ungabörnum en einnig myndir af börnum með alvarleg húðvandamál. Í ljós kom að þær konur sem hafa sterka tilhneigingu til að forðast þjáningar stöldruðu miklu lengur við síðustnefndu myndir. Jafnvel konur sem aldrei höfðu átt í geðrænum vandamálum virtust viðkvæmari fyrir því að sjá og meðhöndla neikvæðar tilfinningar samanborið við þær sem eru ekki kvíðnar að eðlisfari.
Baeken telur að taka þurfi með í reikninginn í taugarannsóknum í framtíðinni erfðafræðilega frumgerð fólks þegar kemur að tilfinningum. Eftir er að rannsaka í hve miklum mæli erfðir ráða tilfinningalegri hefðun, að sögn belgíska prófessorsins.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








