Seigla á vinnustað - Pistlar frá Þekkingarmiðlun
22.7.2010
Seigla á vinnustað
Hvernig stendur á því að að sumir þrífast þegar þeir standa andspænis áskorunum og mótlæti í starfi á meðan aðrir fyllast skelfingu og draga sig inn í skelina? Og hvers vegna virðist sama fólkið komast áfram á meðan aðrir dragast afturúr í ólgusjó lífsins?
Flestir halda að blanda af vitsmunagreind, löngum vinnutíma og mikilli reynslu geri fólki kleift að lifa af í mögulega óvinveittu vinnuumhverfi. Það eru raunar þeir sem búa yfir seiglu sem eiga auðveldast með að takast á við áskoranir eins og stöðugar breytingar á vinnustað og umbrot, yfirvofandi uppsagnir, skilafresti verkefna, erfið skoðanaskipti og linnulausa samkeppni frá samkeppnisaðilum.
Góðu fréttirnar eru aftur á móti að þó að sumir virðist vera fæddir með meiri seiglu en aðrir þá geti fólk með minni seiglu lært að efla færnina til að höndla erfiðleika og þrífast og blómsta.
Stjórnunarráðgjafarnir Salvatore Maddi og Deborah Khoshaba gerðu 12 ára rannsókn á starfsmönnum sem tókust á við stöðugar skipulagsbreytingar á vinnustað sínum Illinois Bell Telephone company (IBT). Á hverju ári í tólf ár var rætt við um 450 verkstjóra, stjórnendur og leiðtoga auk þess sem þeir svöruðu persónuleikaprófum, fóru í frammistöðumat og læknisskoðun. Meðan á þessu tímabili stóð þurfti fyrirtækið að takast á við gríðarlegar breytingar þegar fjarskiptamarkaðurinn í Bandaríkjunum var einkavæddur. Starfsfólk fjarskiptafyrirtækja þurfti að fara frá því að vera í einokunarstöðu og yfir í það að berjast á hörðum samkeppnismarkaði.
Á þessu 12 ára tímabili misstu um 50% þeirra starfsmanna sem tóku þátt í rannsókninni vinnuna auk þess sem tveir þriðju þurftu að takast á við streituvaldandi atburði í lífi sínu eins og skilnað, hjartaáföll, þunglyndi, kvíða, og áfengis- og vímuefnamisnotkun. Samt sem áður og þrátt fyrir gífurleg umbrot í vinnuumhverfinu kom í ljós að rúmlega einn þriðji þeirra komust ekki aðeins í gegnum streituna og stöðugu breytingarnar heldur virtust í raun og veru blómstra.
Rannsakendur fundu að ef þessir einstaklingar urðu áfram hjá IBT komust þeir í toppstöður og ef þeir yfirgáfu fyrirtækið stofnuðu þeir annaðhvort sitt eigið fyrirtæki eða komust í áhrifastöðu hjá öðrum vinnuveitanda.
Hver er þá skýringin á því að sumir ekki aðeins lifa af heldur beinlínis blómstra í slíkum erfiðum aðstæðum? Fræðimennirnir komust að því að þeir sem búa yfir seiglu til að ná sér eftir mótlæti eiga þrennt sameiginlegt: Einurð, stjórn og áskorun.
Í book sinni Resilience at Work halda Salvatore Maddi og Deborah Khoshaba því fram að þrautseigja sé sérstakt mynstur viðhorfa og færni sem hjálpi manni að þróa með sér seiglu, lifa af og þrífast undir álagi. Þegar tekist er á við mótlæti séu þessi þrjú atriði - einurð, stjórn og áskorun - mikilvægust af öllu. Þrautseigja þýðir að maður hafi þá trú að best sé að taka virkan þátt í atburðum og tengjast fólki (einurð) frekar en að draga sig í hlé, halda áfram að reyna að hafa áhrif á útkomuna og finna leiðir út úr erfiðleikunum (stjórn) frekar en að gefast upp, og reyna að finna hvernig hægt sé að vaxa í gegnum streituna (áskorun) frekar en að vera fórnarlamb og harma örlögin sín. Þeir sem litu á breytingarnar sem áskorun höfðu tilhneigingu til að líta eftir mögulegum tækifærum sem breytingarnar gætu haft í för með sér og höfðu það viðhorf að breytingar væru óhjákvæmilegur hluti af lífinu. Þó að þeir hafi ekki haft sérlega gaman af streitunni voru þeir í stakk búnir til að lifa af, jákvætt viðhorf þeirra hjálpaði þeim að vera tilbúnir fyrir ný tækifæri og opnir fyrir nýjum möguleikum.
Fólk sem hefur mikla þrautseigju hefur gaman af áframhaldandi breytingum og erfiðleikum. Það upplifir meiri hollustu þegar vinnan verður erfiðari og flóknari og lítur á streitu sem eðlilegan hluta af lífinu frekar en ósanngjarnan.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








