Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Grćnt Reykjavíkurkort komiđ út í prentútgáfu - Guđrún Tryggvadóttir

19.10.2010

Grćnt Reykjavíkurkort komiđ út í prentútgáfu

Nú er komið út Grænt Reykjavíkurkort sem er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og byggir á vefútgáfu Græna Íslandskortsins á vefnum Náttúran.is en hún tekur fyrir allt Ísland með yfir 3.000 skráningum í 100 flokkum. 

Tilgangur grænna korta víða um heim er að gera vistvæna kosti á sviði viðskipta, menningar og ferðaþjónustu sýnilegri og aðgengilegri. Græn kort hafa nú verið þróuð í yfir 600 sveitarfélögum, borgum og hverfum í 55 löndum. Ísland er fyrsta landið sem flokkar allt landið eftir Green Map kerfinu. 

Prentútgáfa Græna Reykjavíkurkortsins er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og byggir á vefútgáfu Græna Íslandskortsins á vefnum Náttúran.is en hún tekur fyrir allt Ísland með yfir 3.000 skráningum í 100 flokkum. 

Green Map er lifandi kerfi og lagar sig að þeirri þróun sem á sér stað í þjóðfélaginu. Það er von útgefanda að græn kort verði með öllu ónauðsynleg innan fárra ára enda verði græn hugsun þá orðin sjálfsögð, ekki undantekning, eins og nú er. En þangað til er öllum frjálst að fá skráningu á Grænt Reykjavíkurkort og Grænt Íslandskort svo framarlega sem að starfsemi viðkomandi uppfylli þau skilyrði og viðmið sem sett eru af Green Map kerfinu.   Græna Reykjavíkurkortið er Svansmerktur prentgripur, prentað á Svansvottaðan pappír í Svansmerktu prentsmiðjunni Odda.   Hægt er nálgast kortið ókeypis hjá Höfuðborgarstofu eða panta það á vef Náttúran.is gegn greiðslu kostnaðar við pökkun og heimsendinguna.   Græna Reykjavíkurkortið er hannað af Guðrúnu A. Tryggvadóttur & Signýju Kolbeinsdóttur og er samvinnuverkefni vefsins Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® SystemReykjavíkurborgar og Háskóla Íslands.


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk