Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Pistlar um umhverfismál - Guðrún Tryggvadóttir

16.2.2010

Pistlar um umhverfismál

Atvinnumál kvenna hefur fengið liðsauka en á næstunni munu birtast fróðlegir pistlar um umhverfismál frá Guðrúnu Tryggvadóttur sem rekur umhverfisvefinn www.náttúran.is
Kæru kynsystur!

Það er skemmtilegt fyrir mig að fá tækifæri til að skrifa pistla inn á þennan ágæta vef Atvinnumála kvenna. Mig langar að byrja á að kynna mig aðeins og segja frá því af hverju ég er nú að byrja að skrifa pistla inn á þennan vef.

Fyrir nokkrum árum síðan, nánar tiltekið í janúarmánuði 2004, fór ég með litla hugmynd til frekari þróunar á Brautargengisnámskeið sem síðan leiddi til þess að ári síðar fékk ég fyrsta stóra styrkinn til verkefnisins, en hann var einmitt frá Félagsmálaráðherra vegna styrkja til atvinnumála kvenna. Því er skemmst frá að segja að þegar ég fékk svar um að mér hafi verið úthlutað styrk var ég svo glöð að eftir hopp og hí og trallala henti ég mér á gólfið (bókastaflega) og hló og grét af gleði á víxl. Þetta var svona líkt því þegar að strákarnir okkar í landsliðinu komust að því að þeir væru komnir í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum. Ég missti mig hreinlega!

Fyrir mér opnuðust dyr að því að verkefnið mitt gæti orðið að veruleika. Kæmist uppúr því að vera bara hugmynd og í það að raungerast. Eftir þetta var ekki aftur snúið og ég hélt ótrauð áfram við að þróa verkefnið, nú í samvinnu við sérfræðinga sem ég gat borgað fyrir að vinna með mér. Þetta voru aldrei peningar fyrir mig beint, heldur til þess að greiða fyrir sérfræðiaðstoð sem var nauðsynlegt næsta skref á eftir eigin áætlanavinnu.

Tveimur árum og rúmlega 40 styrkumsóknum (nokkrar sem fengu jákvæðar viðtökur), viðtölum og samningaviðræðum síðar, var verkefnið fullfjármagnað. Þá loks gat vinna hafist við framleiðslu umhverfisvefsins www.náttúran.is
8 manns unnu sleitulaust í 8 mánuði við þróun vefsins sem síðan var opnaður af umhverfisráðherra þ. 25. apríl, á Degi umhverfisins, við hátíðlega athöfn að Kjarvalsstöðum.

Þrjú ár tók að fjármagna og þrjú ár eru síðan að Náttúran.is fór í loftið

Mér finnst mikilvægt að konur (og karlar auðvitað líka) geri sér grein fyrir því að hlutirnir taka tíma og þeir taka á. Til þess að koma hugmynd sinni í framkvæmd er og hefur verið, (ekki síður í góðærinu) nauðsynlegt að leggja hreinlega allt í sölurnar og vinna a.m.k. 12-16 tíma á sólarhring. Líka um helgar og sumarfrí eru í mesta lagi falin í kynnisferð til Akureyrar eða ferð á ráðstefnu, sem nýtist í rekstrinum eða til kynningar á verkefninu líka. Þessi mikla vinna er þó ekki í samræmi við laun enda þeim sem slíkum oft varla fyrir að fara.

Við verðum líka að viðurkenna að sérstaklega illa er búið að frumkvöðlum og sjálfstætt starfandi einstaklingum í hinu íslenska samfélagi. Réttur okkar er ekki á við hinn almenna launþega. Atvinnuleysisbætur eru þar ekki inni í myndinni svo þegar farið er af stað í að raungera hugmynd er eins gott að vera tilbúin í að vinna frekar kauplaust í einhvern tíma en treysta á hjálp frá ríkinu því enginn hjálpar þér þegar að illa gengur í fyrirtækinu þínu.

Af hverju þá að standa í þessu?

Það sem að knýr mig áfram er og hefur alltaf verið óbilandi trú á því að ég geti allt sem ég tek mér fyrir hendur og fæ áhuga á. Þetta hljómar kannski sem gort en er staðreynd. Ég er með innbyggða einfeldnisvara sem virka svona líka vel. Ég veit ekkert af hverju en ég sé ekki fjöllin sem ég þarf að klífa nema eitt í einu og legg svo á tindinn. Þegar önnur fyristaða kemur í ljós, þá undirbý ég leiðangurinn eins og vel og mér er kostur og fer í aðra ferð og svo koll af kolli.

Þar sem ég er myndlistarmaður að mennt og hef alltaf starfað sjálfstætt að uppbyggingu hugmynda hefur þessi vinna kannski ekki verið neitt svo ólík öðrum verkefnum sem ég hef unnið að.  Náttúru-verkefnið er svo mikilvægt í mínum huga að það er allt á sig leggjandi til að það vaxi og dafni. Það snýst nefnilega ekki um neitt minna en það að hjálpa til við að byggja upp sjálfbært samfélag og hlúa að framtíð barnanna minna og barnanna þinna.

Í næstu pistlum mun ég taka fyrir hina ýmsu þætti sem að snúa að umhverfishugsun í daglegu lífi og benda á lausnir og aðferðir sem geta hjálpað okkur að ná því takmarki að spara fé og auðlindir og lifa hreinna og heilbrigðara lífi.

Mér er líka hugleikið að benda á að við konur verðum að standa fast á því að jafnrétti ríki í þjóðfélaginu, á vinnustaðnum og ekki síst á heimilinu sjálfu. Að vera móðir, húsmóðir, eiginkona og atvinnurekandi er ekki einfalt og ég sé enga ástæðu til að láta það málefni verða útundan í umræðunni um betra samfélag.

Áfram stelpur!

Guðrún A. Tryggvadóttir, myndlistarmaður og frumkvöðull að Náttúran.is.

Sjá ferilskrá Guðrúnar hér: http://www.natturan.is/greinar/1132/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk