Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Er fariđ ađ hausta innra međ ţér? - Jóna Björg Sćtran

16.9.2010

Er fariđ ađ hausta innra međ ţér?

Já, nú er heldur betur farið að hausta. Appelsínurauðum og gulum laufblöðum fjölgar ört, golan er komin á fleygiferð, rigningardroparnir eru orðnir ákveðnari þegar þeir falla á andlitið og nú dugar ekki lengur að vera á stuttermabol í gönguferðum með hundinn. Þrátt fyrir að búa á suðvesturhorni landsins varð ég ekki vör við haglélið sem talað var um í síðustu viku .... ég er nú alveg sátt við það. Nú er bara að fara að taka til lopapeysuna og lopavettlingana, hafa allt til taks fyrir kuldabola - þá er líka hægt að taka honum fagnandi. Hver árstíð hefur sinn sjarma, það er bara að búa sig undir þær aðstæður sem eru framundan.

Ţegar fer að kólna í veðri þá er það eina skynsamlega í stöðunni að klæða sig í hlýrri fatnað. Núna tökum við jafnvel fram skjólfatnað sem var lagður til hliðar yfir sumartímann. Ef þú ert með börn á þínum vegum þá hefur þú vafalítið hugað að því að þau hafi hlý föt fyrir veturinn, þú vilt ekki að þeim verði kalt. Þú hefur jafnvel leitt hugann að því hvort aðrir í fjölskyldunni hefðu það sem þeir þurfa helst á að halda fyrir haustið og veturinn. En hvað með þig? Við erum svo oft fljótar að hugsa um þarfir annarra að við tökum tilhlaup til að sinna þeim - en stökkvum yfir okkar eigin þarfir. Kannast þú eitthvað við það?

Við getum yfirfært undirbúninginn fyrir veðrabreytingar yfir á svo margvíslegar breytingar sem geta orðið á persónulegum högum okkar á lífsleiðinni. Hvað gerum við til að undirbúa okkur fyrir þær? Hvað gerir þú til að rækta sjálfa þig, ekki bara líkamlega í gönguferðunum og líkamsræktinni, heldur hvað gerir þú til að næra þig af innri uppbyggingu?

Nú þegar haustið er gengið í garð - þá er um að gera að huga dálítið að okkar eigin líðan og velferð, undirbúa okkur þannig fyrir næstu mánuði sem verða vafalítið dálítið krefjandi hjá mörgum. Gefðu þér tíma til að setjast niður og skoða aðeins sjálfa þig, aðstæður þínar, daglegt líf þitt, hvað þú ert ánægð með, hvar þú þart að styrkja þig. Hugleiddu líka hvað þú sért að gera fyrir sjálfa þig. Hvernig sérðu sjálfa þig blómstra í vetur, njóta þess að vera þú sjálf? Láttu þetta verkefni fá forgang hjá þér. Ljúktu því innan 24 klst.

Ţegar laufblöðin fara að falla af trjánum og fylla niðurföllin í heimkeyrslunum og á götunum þá fer allt að flæða í rigningunni, ekki satt. Það sama gerist hjá okkur - við tökum ekki endalaust við. Við verðum að hreinsa burt gömlu, fölnuðu laufblöðin sem hafa fallið hjá okkur sjálfum, innra með okkur og opna þannig farveg fyrir nýjar hugmyndir, nýjar leiðir til að njóta lífsins gæða til hins ítrasta. Lífið er svo yndislegt að við þurfum að fara vel með það, skoða alla valkosti vel og vandlega. Ef þú rekst á fyrirstöðu í lífinu, eitthvað sem þú ert að glíma við og finnst óyfirstíganlega erfitt - hugsaðu þá um það sem stórgrýti. Það er almennt hægt að færa til stórgrýti með ýmsum aðferðum. Stundum þarf ekki nauðsynlega mikið afl til þess - heldur aðeins „rétta aðferð", aðferð sem getur reynst tiltölulega auðveld og með litlar aukaverkanir. Við megum aldrei halda að við séum einar með okkar vanda - hver svo sem hann er. Það er alltaf einhver sem er tilbúin til að aðstoða okkur við að finna okkar eigin lausnir á okkar eigin vanda. 

Gefðu sjálfri þér tíma fyrir þig. Gefðu þér frelsi til að blómstra með því að vera þú sjálf. Þú þarft ekki að vera stöðugt að bera þig saman við aðrar konur. Slíkt er algjör óþarfi. Þú ert einstök og býrð yfir einhverju sem enginn önnur kona býr yfir. Þó svo að við viðurkennum að við séum ekki ómissandi (sem betur fer) þá getum við samt viðurkennt að við séum einstakar, hver og ein okkar er mikilvæg, hver á sinn hátt. Með því að sameina krafta okkar verðum við öflugar. Stundum þarf aðeins lítið bros, smá uppörvun, smá hrós eða smá spjall og þar með er búið að færa stórgrýtið fyrrnefnda úr vegi.   Farðu í smá hausttiltekt innra með þér, byggðu á því jákvæða og leitaðu eftir því að finna hvað þú getur gert til að leyfa sjálfri þér að blómstra.  Þegar þú nærð að blómstra ..... líka að vetrarlagi, þá opnast enn fleiri blóm í kringum þig. Þá ert þú líka sterkari fyrir ef það skellur allt í einu á innri stórhríð án fyrirvara. Til að svo megi verða þarf að vinna vel í sínum málum. Elskaðu sjálfa þig, berðu virðingu fyrir sjálfri þér, farðu vel með sjálfa þig - leyfðu þér að BLÓMSTRA.

Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!

Bestu kveðjur

Jóna Björg Sætran M.Ed.,
http://www.blomstradu.net/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk