Ert ţú ađ vinna hjá sjálfri ţér? Ertu húsbóndaholl? - Jóna Björg Sćtran
27.10.2010
Ert ţú ađ vinna hjá sjálfri ţér? Ertu húsbóndaholl?
á fleiri en einum vinnustað. Mörgum útlendingum þykir þetta undarlegt fyrirkomulag - en okkur finnst þetta ekkert merkilegt í sjálfu sér, við erum vön þessu og lítum etv. á þetta sem ósköp eðlilegt ástand. Ástæðurnar fyrir þessu eru margar og ekki óalgengt að margir þurfi hreinlega að stunda langan vinnudag, oft margskiptan og dreifðan yfir vinnuvikuna til að hafa nóg (eða svotil nóg) fyrir sig og sína.
Nú þegar verið er að minnka starfshlutföll á vinnumarkaðnum og fjöldi fólkst hefur misst vinnuna sem búið er að starfa við í fjölda ára, þá myndast ákveðið tómarúm. Tómarúm sem getur verið erfitt að fylla, tómarúm sem virðist stækka með hverri vikunni sem líður og bergmálið innan í því verður æ háværara. Bergmálið sem byrjar sem smá hvísl - hækkar sig smá saman eftir því sem á líður ..... og fer loks að kalla og bergmálar þá hærra og hærra........ „komdu þér í gang!". Þó svo að þú hafir misst vinnuna þína, fengið uppsagnarbréfið, þá þarf það ekki að tákna að allt sé búið, því þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar.
Ţegar á reynir þá fer hugurinn á meiri ferð, „Hvað get ég gert til að afla mér tekna?" Þeirri spurningu verður ekki leitað svara við hér, en við vitum samt að möguleikarnir eru fjölmargir. Við getum nefnilega gert svo margt sjálf til að bjarga okkur. Við byrjum á því að taka ákvörðun um að ráða sem mestu sjálf um aðstæður okkar, en láta ekki aðstæður okkar taka völdin og hafa um of áhrif á það hvernig okkur líður innra með okkur.
Ţað eru ótal margar konur (já og líka karlar) sem fara að vinna sjálfstætt - fara að vinna hjá sjálfum sér - heima hjá sér „við eldhúsborðið" og það er einmitt það sem við ætlum aðeins að skoða hér. Hvernig er það að vinna hjá sjálfri sér? Það tekur bæði ákveðni og einsettan vilja til að geta haldið til vinnu á vinnustaðnum sem er innan veggja heimilisins. Það eru margar konur sem byrja á ýmis konar viðskiptum sem þær geta unnið á tíma sem hentar þeim, vinnu sem þær geta unnið heiman frá sér og sparað þannig kostnað við að leigja sér aðstöðu úti í bæ. Það er ekkert annað en gott um þetta að segja og margar konur fara algjörlega á flug þegar þær finna vörur, þjónustu eða önnur viðfangsefni sem þær geta unnið við á þennan hátt og skapað sér sívaxandi tekjur með. Allar viljum við jú skapa okkur sem öruggastar tekjur til að geta gert það sem viljum geta gert, ekki síst fyrir fólkið okkar.
Eitt helsta vandamálið sem margar konur lenda í þegar þær fara að vinna á þennan hátt er að þegar þær eru mættar í vinnuna, t.d. sestar við tölvuna eða saumavélina við eldhúsborðið, að þá er margt sem leitar á samvisku þeirra. Hvernig er þetta með uppþvottinn frá í morgun, þvottinn sem á eftir að strauja, laufblöðin sem þarf að sópa úr innkeyrslunni .......já og svo er það síminn. Sigga frænka hringir til að spjalla og þarf svo endilega að segja þér frá því sem gerðist á ballinu um síðustu helgi, - já og svo er hún að fara á kóræfinu .... ætlar þú ekki að koma á söngskemmtunina..... o.sv.fr.
Ţú kannast vafalítið við þetta ef þú hefur verið í þessum sporum. Þegar aðstæður eru orðnar þannig að þú átt hreinlega erfitt með að einbeita þér að því sem þú ætlaðir þér að byggja upp og fara að skapa þér tekjur við, þá skaltu reyna að skoða markmiðin þín. Hvers vegna ertu að þessu? Hver er ástæðan þín? Farðu að líta á þetta sem að þú vinnir hjá vinnuveitanda sem ber sama nafn og þú. Hversu húsbóndaholl ertu? Ef þú værir að vinna úti í bæ, myndir þú þá hringja í vinnuna og tjá vinnuveitanda þínum að þú mættir nú eiginlega ekki vera að því að mæta í dag, allavega ekki fyrr en eftir hádegi því þig langaði eiginlega mest til að sofa út. Hve lengi myndir þú halda vinnunni með þeim hætti.
Farðu að skilgreina hvað þú þarft að gera - og hvenær. Líttu á sjálfa þig sem kröfuharðan vinnuveitanda sem krefst þess að þú ljúkir ákveðnum hlutum á tilskyldum tíma. Á mörgum vinnustöðum er bannað að vera á Facebook í vinnutímanum? Hvernig er það hjá þér? Kíkir þú inn á Facebook til að fá síðust fréttir og gleymir þér þar? Gleymir þú þér líka ef þú færð sms frá vinkonu þinni?
Gerðu þér verkáætlun að kvöldi fyrir næsta dag. Mættu á „réttum tíma" í vinnuna hjá sjálfri þér. Taktu ákvörðun um að vinna skipulega, einbeittu þér að því að standa þig vel í vinnunni, til að þú uppfyllir kröfur vinnuveitandans og getir átt raunhæfa von um kauphækkun á næstunni.
Berðu virðingu fyrir sjálfri þér og því sem þú nýtir tíma þinn í. Njóttu þess að vera þú sjálf og njóttu þess að vera þinn eiginn herra. Gangi þér vel - enn betur en hingað til.
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, M.Ed., http://www.blomstradu.net/








