Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Njóttu ţess ađ vera í núinu! - Jóna Björg Sćtran

4.11.2010

Njóttu ţess ađ vera í núinu!

Stöldrum rétt aðeins við. 
Hvers  vegna erum við að flýta okkur svona gríðarlega mikið? Erum  við að flýta okkur um of til að verða rík, flott og falleg? Til hvers? Eru markmiðin okkar raunhæf? Erum við að gera of miklar og óraunhæfar kröfur til okkar sjálfra og þeirra sem sem við búum með.

Eins og okkur öllum (- etv. er réttara að segja mörgum) er alltof kunnugt, þá eru afleiðingar „hrunsins mikla" að hrjá þjóðfélagið okkar. Í kvöldfréttum RÚV þann 27. okt. 2010,  var skuggaleg frétt um hve gífurleg neyð ríkir í dag  í samfélaginu, um neyð fólks varðandi  að hafa mat fyrir sig og sína. Hér var þó einkum dregin upp lýsing ásamt myndskeiði af neyðinni af höfuðborgarsvæðinu, biðinni  hjá afgreiðslu matarúthlutunar hjá Mæðrastyrksnefnd. Þetta er vafalítið svipað víða á landinu enda þótt ekki sé fjallað eins mikið um það í myndrænu formi í fjölmiðlum. Stundum gæti maður hreinlega haldið að það væri eingöngu á höfuðborgarsvæðinu sem ríkti veruleg fátækt á mörgum heimilum. Að mínu mati er þetta er hálfgerð blekking þegar fjallað er svo einhliða um þessi viðkvæmu mál. Í sama fréttatíma var fjallað um átak á vegum Rauða krossins við tilfinningalegum vanda margra unglinga, átak sem ég vona að verði langvarandi og fái þá athygli sem nauðsynlegt er til að hjálpa viðkvæmum unglingum í erfiðleikum unglingasamfélagsins.

Ţað er vafalítið mjög mismunandi hvernig þjóðfélagsþegnarnir skynja og upplifa neyðina sem víða ríkir í dag, raunverulega neyð. Fjöldi fólks hefur eða er að missa atvinnuna, margir er í miklum fjárhagslegum erfiðleikum, sumir sjá enga lausn í augsýn en bíða enn og vona að fari að rofa til. Aðrir sem eru að miklu leyti „áhorfendur" að ástandinu, „hafa í sig og á" hafa samt sem áður þurft að að breyta mjög miklu í neytendamynstri sínu. Enn aðrir fylgjast með fréttunum - horfa á ástandið úr fjarlægð en halda sínu striki. Enn aðrir loka augunum fyrir neyðinni og láta sér fátt um finnast, þetta kemur þeim ekki við. Þeir bjarga sér.

Hvernig er þetta með okkur mörg? Erum við enn að reyna að láta allt ganga sinn vanagang - eins og fyrir hrun? Hvers vegna? Er enn verið á kafi í efnahagslegu og yfirborðskenndu lífsgæðakapphlaupi, streði eftir dauðum hlutum sem skipta ekki í raun nokkru einasta máli í lífinu.  Það eru svo ótal margar gervi þarfir sem er sífellt verið að reyna að koma inn hjá fólki.

Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu í dag? Gefðu þér tíma og hugsaðu málið til hlítar. Hvaða þarfir eru brýnastar? Hverju má breyta? Hvert er hægt að leita ef á þarf að halda? Hvað getur þú gert til að hjálpa til með öðrum?  Hvað hefur þú sem þú getur „þakkað almættinu fyrir"? Hverjar eru sterku hliðarnar þínar og hvernig getur þú nýtt þér þær til að komast sem best í gegnum andstreymi lífsins? Þú býrð vissulega yfir mögum dýrmætum hæfileikum, en etv. hafa óveðurskýin byrgt þér sýn um hríð. Hvernig væri að styrkja „rétta vöðva" - skoða markvisst hvað það er sem þú vilt hafa öðruvísi í dag, og hvernig þú getur breytt aðstæðum þínum - þrátt fyrir „ástandið" í dag!

Ég er svo heppin og lánsöm að mitt aðalstarf felst í því að vinna með fólki - í margvíslegum skilningi, m.a. sem markþjálfi. Markþjálfun gengur m.a. út á það að hlusta með virkri hlustun á viðmælandann sem finnur sínar eigin lausnir á eigin vanda, - með aðstoð leitandi og krefjandi spurninga markþjálfans. Síðustu mánuði hefur verið magnað að finna hve margvíslegar mannauðsglæðandi lausnir einstaklingar geta fundið á eigin „vanda" með því einu að spá, „spekúlera", hugsa ögn dýpra en venjulega, skerpa eigin hugsun og leitun, umyrða og skerpa, heyra og skilja betur eigin hugsanir, eigin óskir, eigin dýpstu þrá og langanir.      

Ţví spyr ég; Hvað er þér mikilvægast í dag? Hve mikils virði er það þér? Hvað ertu tilbúin/n til að leggja á þig til að svo megi verða? Þetta er aðeins byrjunin - en það mikilvægasta, að gera sér grein fyrir því sem maður vill.

Hvað er það í dag sem þú vilt? Vertu í núinu. Njóttu líðandi stundar því hún lætur ekki sjá sig síðar. Líðandi stund þýtur svo hratt áfram. Brosið í dag getur leitt af sér annað bros á morgun. Leiðindi í dag geta líka leitt af sér leiðindi á morgun. Skoðaðu því hvað er þess virði að njóta þess í dag, eitthvað sem getur gert þér gott í núinu og jafnvel fleytt þér áfram í jákvæðu flæði til morguns - og jafnvel lengur. Gerviþarfir sem uppfylla aðeins stundargaman ættu að vera komnar úr tísku fyrir löngu síðan, allavega fyrir 2 - 3 árum síðan. Við höfum svo margs að njóta í dag, - þrátt fyrir allt.

                Njóttu líðandi stundar, njóttu þess að vera í núinu.

                 Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!

Kær kveðja,
 Jóna Björg Sætran M.Ed,
 http://www.blomstradu.net/


               

               


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk