Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Njótum hverrar stundar. - Jóna Björg Sćtran

21.6.2011

Njótum hverrar stundar.

Fyrir nokkru skrifaði ég þessi orð á Facebook síðuna mína sem nefnist Blómstraðu:    

            Hver dagur skiptir miklu máli.
           
Sérhver stund skiptir miklu máli.
            Farðu vel með sjálfa/n þig og njóttu lífsins til hins ítrasta.
            Gerðu þér grein fyrir því hvað skiptir þig raunverulega máli í þessu lífi.
            Settu þér skrifleg markmið út frá því sem þér er mikilvægast.
            Þú þarft ekki að fylgja fjöldanum, fylgdu frekar eigin
hjarta.

Þessi orð virtust hitta ýmsa lesendur beint í hjartastað.

Við erum svo ansi oft að flýta okkur svo mikið að við gleymum að njóta líðandi stundar. Svo þegar við sitjum hljóð í kirkjunni og fylgjum látnum ástvinum síðasta spölinn þá læðast ýmsar hugsanir að manni varðandi það hvernig maður ver tíma sínum. Mér er minnisstætt blaðaviðtal sem ég las fyrir um 3 áratugum þá búsett erlendis. Viðtalið var við mann á besta aldri sem hafði orðið alvarlega veikur og var við það að missa heilsuna. Eftir langa sjúkdómslegu komst hann hægt og rólega til heilsu á ný. Fyrir veikindin hafði hann anað áfram í lífinu, gleymdi að líta til hægri og vinstri, það var bara farið beint af augum. Við veikindin breyttist allt. Lífsviðhorfið breyttist. Verðamætamatið breyttist. Nú eftir að hann náði heilsu varð líf hans allt annað og innihaldsríkara en áður. Hann fór hægar yfir, en naut þess að lifa lífinu lifandi.  

Ég veit að mörg ykkar hafa svipaða reynslu að baki. Okkur liggur svo lífið mikið á. Það á ekki eitthvað alvarlegt að þurfa að gerast til að við áttum okkur á alvarleika lífsins. Hvers vegna höfum við ekki vit fyrir okkur sjálfum og hægjum á okkur í tæka tíð til að njóta ilmsins af lífinu á meðan við höfum tækifæri til? Líðandi stund kemur ekki tilbaka. 

Á sama hátt getum við skoðað það hvernig okkur líður í dag og hverju við viljum gjarnan breyta því aðstæður okkar hingað til þurfa ekki að vera lýsandi fyrir framtíðina. Við höfum vald til að breyta aðstæðum okkar, en hvar er vænlegast að byrja? Við erum svo gjörn á að vilja breyta öðrum til að okkur líði betur. Við viljum að okkar nánustu komi fram við okkur á annan hátt. Við viljum að yfirmaðurinn á vinnustaðnum sjái betur hvað við erum miklum kostum búin og bjóði okkur launahækkun. Við viljum að vinnufélagarnir séu jákvæðari. Við viljum bæði eitt og annað. Við viljum að aðstæður séu þannig að okkur líði betur, séum hamingjusamari, glaðari, að við séum öruggari á allan hátt.

Hvernig væri að taka verulega til í sálartetrinu, sjá hvað má losa sig við þaðan? Hvaða bagga ertu að þvælast með - og hefur haft á bakinu í jafnvel áratugi? Er ekki kominn tími á að losa sig við andlegt áreiti af leiðinda minningum - gera sér grein fyrir því að það sem er búið er búið. Það gerist margt á einni lífsleið enda eru margir hliðarstígar og moldartroðningar. En - í dag er nýr dagur og þú getur leitað eftir því jákvæða og uppbyggilega. Horfðu til framtíðar björtum augum og reyndu að telja fram allt það sem þú getur þakkað fyrir í dag. Hvernig viltu hafa nánustu framtíð? Skrifaðu það niður, settu þér raunhæf og tímasett markmið og gerðu þér síðan áætlun um framkvæmdir. Hvaða breytingar viltu gera á fari þínu, því hvernig þú kemur fram við aðra? Hvernig viltu breyta viðmóti þínu? Hvernig viltu breyta þvi hvernig þú talar við og HLUSTAR á þína nánustu? Breyttu samkvæmt því sem þér finnst rétt, þú þarft ekki að fylgja fjöldanum, fylgdu þínu eigin hjarta.

            Njótum líðandi stundar, Njótum þess að uppgötva hvernig við getum haft jákvæð áhrif á aðstæður okkar með því að skoða hvað má betur fara í fari okkar sjálfra. 

Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!

Kær kveðja

Jóna Björg Sætran http://www.blomstradu.net/ hjarta! Njóttu þess að vera þú!


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk