Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Líttu í spegilinn ! - Jóna Björg Sćtran

25.11.2010

Líttu í spegilinn !

Já, hvernig væri að líta sem snöggvast í spegilinn og kynnast ögn betur persónunni sem þú sérð þar? Þekkir þú þennan einstakling? Hversu vel þekkir þú þessa persónu? Þið hafið jú farið í gegnum sætt og súrt um all nokkra hríð, það ferðalag hefur jafnvel tekið nokkra áratugi. Þessi tími hefur að öllum líkindum flogið afar hratt hjá þegar litið er til baka, þó svo að stundum hafi tíminn virst standa algjörlega í stað .........  hefur hreinlega aldrei ætlað að líða.

Ótal verkefni
Ţað er ekki ólíklegt að þú hafir átt mjög annríkt allan þennan tíma. Þú hefur haft í ótal mörg horn að líta, verkefnin sem hafa komið til þín hafa verið óteljandi og stundum hrúgast inn á viðkvæmum stundum.  Þú hefur hlaupið í öll verk, ekki bara þín eigin - heldur jafnvel líka annarra í kringum þig. Ef grannt er skoðað þá kannast þú jafnvel við það að hafa oft á tíðum yfirtekið verkefni sem aðrir hafa ætlað að sinna vegna þess að þér hefur fundist þeim verkefnum mun betur borgið í þínum höndum en t.d. maka þíns eða barna þinna. Þannig hefur þú drifið í að taka til inni hjá unglingnum af því að þér blöskraði ólyktin af óhreinu fötunum á gólfinu eða hálftómu gosdósunum og pizzakössunum. Hvað hefði nú gerst ef þú hefðir látið þetta ógert og hreinlega leyft unglingnum að upplifa einu sinni eiginn sóðaskap í sinni (næstum því) verstu mynd? Og hvað með þvottinn sem þú drífur í að þvo þó svo að maki þinn hafi sagst ætla að sjá um þetta seinna í vikunni? Já og svo braustu saman handklæðin þarna um daginn - sem sagt þú braust þau aftur saman vegna þess að unglingurinn þinn sem átti að sjá um það braut þau ekki eins og þú hafðir beðið um að það yrði gert. En - þau voru samt samanbrotin inni í skápnum á baðherberginu. Hvaða máli skiptir það í raun hvernig þau eru brotin saman? Er ekki miklu mikilvægara að unglingurinn þinn stóð við sitt, hann setti handklæðin í þurrkarann eins og þú baðst um  - og svo braut hann þau saman og setti á sinn stað.  Mundir þú eftir því að hrósa honum fyrir það - eða fórstu strax að tal um það sem hann gerði öðruvísi en þú baðst um?

Hvað segir spegilmyndin?
Ef þú lítur nú í spegilinn - veltu þá fyrir þér hvaða samband þú hefur ræktað við spegilmynd þína - þ.e. þig? Manneskjan sem þú sérð í speglinum, hvort er þetta besti vinur þinn eða mesti óvinur þinn? Hvernig talar þessi persóna um þig í áheyrn annarra. Er hún stolt af þér og hrósar þér - eða er hún gjörn á að afsaka allt í fari þínu, skammast hún sín fyrir þig? Finnst henni allt ómögulegt við þig? Talar hún um hvað þú sért illa fær um að gera hlutina rétt, þér sé alltaf að „mistakast" eitthvað? Ef hún talar svona um þig í áheyrn annarra, hvernig hefur hún þá  talað um þig þegar hún heldur að enginn heyri til? Hvers konar hugsanir hafa verið ríkjandi í huga hennar um ágæti þitt, glæsileika þinn, hæfni þína og hæfileika á ótal sviðum. Skyldu þær hugsanir hafa verið jákvæðar og hvetjandi - eða  er líklegra að þær hafi verið í svipuðum niðurrifstón og það hvernig hún talaði um þig við aðra? Hafa hugsanirnar ef til vill verið mörgum sinnum neikvæðari heldur en það sem hún sagði?

Staldraðu aðeins við!
Staldraðu við nú strax í dag og leggðu þig eftir því að kynnast mun betur þessari persónu sem þú sérð í spegilmynd þinni þarna í speglinum.  Kynnstu henni vel og ræktaðu sambandið við hana. Rifjaðu upp hverjir voru draumar hennar, markmiðin hennar, áhugamálin hennar, hver var hún og hver er  hún í dag? Hvar er hún stödd og hvers vegna? Ef hún er ekki sátt, fáðu hana þá til að skilja að hún getur breytt aðstæðum sínum til betri vegar. Hún stendur ekki ein þó henni líði þannig stundum. Það er her manns sem væri örugglega viljugur til að styðja hana og styrkja til heilbrigðari sjálfsmyndar og meiri hamingju. Sestu niður í 20 mín. útaf fyrir þig og gefðu þér tíma til að skoða lífshlaupið og þá síðustu mánuði sérstaklega. Skoðaðu hamingjuna í lífi þínu. Þó margt virðist erfitt, þungt og alveg kol ómögulegt þá er líka alveg víst að þið getið verið sammála um að það er líka margt jákvætt sem hefur gert þig að því sem þú ert í dag. Leyfðu þér að njóta þess. Reyndu að finna hvernig tilfinningar þínar breytast og andleg eða „innri" líðan þín breytist þegar þú rifjar upp jákvæða og eflandi hluti og svo hvað orkan verður öðruvísi og miklu þyngri þegar þú hugsar um alla neikvæðu þættina sem þér er svo tamt að einblína á.

Hvernig viltu að dagurinn þinn verði?
Nú skaltu skrifa niður lýsingu á því hvernig þú vilt að dagurinn gangi fyrir sig og hverja þú ert í mestum samskiptum við og hvernig þau samkipti eru.  Lýstu því líka hvernig þér líður í þessum aðstæðum. Lýstu tilfinningunum sem þú finnur gagnvart þessum atriðum. Þegar þetta er komið þá er fyrst hægt að halda áfram.
Hvað þarftu að gera öðruvísi í dag en í gær til að komast örlítið nær markmiðum þínum, ná farsælli lausn mála? Síðan er að hefjast handa, annaðhvort upp á eigin spýtur eða þá að fá aðra til að aðstoða þig við að komast af stað, komast áleiðis. Það er oft gott að geta fengið örlitla aðstoð til að koma sér í gang. Leggðu áherslu á að gera sem mest af því sem þér fellur vel að gera, langbest ef hægt er að gera það sem þér þykir verulega skemmtilegt. Stundum er það ekki auðvelt, en það hlýtur að vera óskadraumur okkar allra að okkur líði sem allra best - að við njótum þess að vera við sjálf.

Eftir hverju ertu að bíða?
Drífðu í þessu, skoðaðu hvernig lífi þínu er háttað í dag og hvort þú þurfir að breyta einhverju þar. Aðeins þú veist rétta svarið við þessu. Deildu því með spegilmyndinni, sýndu henni þann heiðarleika og virðingu að segja henni sannleikann. Lygavefir geta orðið svo ansi flóknir með tímanum, ekki síst á milli þín og spegilmyndar þinnar. Sýndu henni smá umburðarlyndi og kærleika, hættu að skammast út í hana vegna allra þeirra ótal mistaka sem henni hafa orðið á í gegnum tíðina. Við breytum ekki eftir á, það er sama hvað hefur gerst hingað til, þær aðstæður þurfa á engan hátt að vera lýsandi fyrir framtíð þína. Þú hefur val, nýttu það. Blómstraðu og njóttu þess að vera þú!

Bestu kveðjur

Jóna Björg Sætran, M.Ed., markþjálfi http://www.blomstradu.net/   http://www.coach.is/    http://www.coachingcamp.is/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk