Hvað þarf til að þú trúir meira á eigið ágæti? - Jóna Björg Sætran
2.12.2010
Hvað þarf til að þú trúir meira á eigið ágæti?

Það var mér afar ánægjulegt og kærkomið að fá svo mikið af jákvæðum viðbrögðum við efninu og því hvernig ég setti það fram í pistlinum. Óneitanlega er alltaf gott að fá að vita þegar eitthvað sem maður sendir frá sér hefur hitt í mark - og að því er virðist ..... hefur haft jákvæð og á einhvern hátt umbætandi áhrif á einn eða fleiri lesendur.
Oftar en ekki getur það hent að þú finnir hjá þér þörf til að segja eitthvað / skrifa eitthvað / framkvæma eitthvað - eitthvað sem þér finnst samt að einhver annar ætti frekar að tjá sig um. Þú lætur það þessvegna ógert. Hvers vegna ættir þú að vera að tjá þig um þetta?
Er þetta ekki stundum svona hjá þér? Þig langar e.t.v. að tjá þig við einhvern sem þér þykir vænt um - tjá þig um eitthvað sem þú telur að viðkomandi gæti nýtt sér til vaxandi vellíðunar, t.d. til að efla sjálfstraustið. Þú bíður eftir „rétta tækifærinu" - en þetta eina sanna tækifæri lætur eitthvað standa á sér, eða þá að það kemur á slíkri fleygiferð að þér tekst einhvernveginn ekki alveg að „fanga augnablikið" og svo er það bara allt í einu liðið hjá og þú finnur það ekki aftur.
Hvers vegna erum við alltaf að bíða eftir rétta augnablikinu til að tjá okkur um svona lagað? Er það ekki óþarfi? Hvernig væri hreinlega að „búa til" rétta augnablikið, búa meðvitað til ákveðnar aðstæður sem þér finnst þægilegt að tjá þig í.
Taktu mið af börnunum í kringum þig. Þau eru ekki sífellt að bíða eftir ákveðnum aðstæðum eða augnablikum til að tjá sig um það sem þeim liggur á hjarta. Þau hreinlega segja það sem þeim býr í brjósti. Oft á tíðum verður þetta til þess að það sem barnið tjáir sig um hefur magnþrungin áhrif á aðstæður. Viðmælanda barnsins getur jafnvel þótt sem heimurinn í kring hringsnúist, eldur gjósi hið innra eða þá að allt frjósi um stund, svitinn sprettur fram og viðkomanda margvefst tunga um tönn þegar á að svara barninu.
Ef börnin, sem eiga í raun að læra af okkur sem teljum okkur miklu meiri reynslubolta á vel flestum sviðum lífsins, eru svona óhrædd við að tjá sig - getum við þá ekki reynt aðeins meira á okkur en hingað til með það að markmiði að tjá hug okkar og hjarta af meiri hreinskilni en áður.
Tjáir þú þig mikið um þín hjartans mál við þá sem eru þér nákomnir, við þá sem eru í þínum „innsta hring"? Gerir þú það af hreinskilni við þig, vegna þess að þú berð það mikla virðingu fyrir þér að þú vilt að viðkomandi geri sér grein fyrir því hver þú ert, hvernig þú hugsar um samferðafólk þitt, hver séu gildi þín og hvaða stóru drauma þú átt?
Hvað er það versta sem gæti gerst ef þú tjáir hug þinn af hreinskilni og góðum hug og viðkomandi kýs að „misskilja" orð þín á „versta veg"? Hrósaðu fólkinu þínu þegar þér finnst ástæða til. Ef þú átt erfitt með að finna ástæðu til að hrósa, leitaðu þá vel að „litlu hlutunum í lífinu" sem skipta líka máli, það gæti verið að þú færir að meta samskipti ykkar á annan og dýpri hátt en áður. Mundu að leggja áherslu á hið jákvæða og gefandi í samskiptum ykkar. Þú hlýtur að geta fundið ýmislegt þegar þú sest niður í ró og næði og punktar niður hin og þessi atriði í samskiptum ykkar sem hafa skipt þig máli á jákvæðan hátt.
Ef þú hefur mikla trú á ágæti viðmælanda þíns, tjáðu þig þá um það. Tjáðu og sýndu væntumþykju þína og ást. Ekki bíða lengur eftir „rétta augnablikinu" til þess eins að uppgötva að það hafi liðið hjá, svo hægt og hljótt og án þess að nokkur hafi tekið eftir því. Trúðu meira á eigið ágæti. Þú getur svo miklu meira en þú heldur. Finndu hvað þú vilt og leitastu síðan við að njóta þess að ná markmiðum þínum. Það er mun auðveldara í góðum hópi samferðafólks heldur en ef þú leggur leið þína til lengdar utan vegar án góðra samskipta við aðra.
Nú rétt í lokin skulum við víkja stuttlega að efni pistilsins í sl. viku, „Líttu í spegilinn". Hvað gerðir þú? Laukstu við að lesa pistilinn - eða hættir þú lestrinum fljótlega? Fannst þér efni hans ekki nýtast þér - en hins vegar fannst þér að þetta myndi einmitt henta Gunnu frænku, Sigga bróður - eða jafnvel mömmu og pabba? Þú áframsendir jafnvel pistilinn áfram til þeirra vegna þess að þeim veitti svo sannarlega ekki af því að efla sjálfsvitund sína, sjálfsvirðingu og sjálfstraust.
Ef þetta síðastnefnda henti þig, þá er það einmitt eitt merki þess að þú gætir haft persónulegt gagn af efni pistilsins. Það væri þá ekki aðeins til þess að lesa hann til enda og hugleiða inn á hann, heldur ekki síður til að horfast í augu við þig, kynnast mannverunni í speglinum sem fylgir þér svo ótrauð áfram hvert sem er. Þú ættir að skoða þína innri líðan. Ekki horfa lengur fram hjá þér og því hvernig þér líður innra með þér. Einmitt, horfðu inn á við. Ef það reynist of erfitt, æfðu þig þá á því að sjá þig fyrir þér í kvikmynd þar sem þú leikur aðalhlutverkið. Í því tilviki kemur það í þinn hlut að sjá alla kosti aðalleikarans (þ.e. þín) og það hvernig leikrænir tilburðir (framkoma og tjáning) bera merki þess að þarna sé á ferð einstaklingur sem hefur mikið sjálfstraust, býr yfir mikilli þekkingu á sínu sviði og hefur ótal hæfileika sem hann nýtir sér sífellt betur og betur. Heilsteyptur einstaklingur sem nýtur þess að njóta gleðinnar í lífi sínu.
Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú! http://www.blomstradu.net/
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran








