Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Hvað ætlar þú að gera fyrir sjálfa þig í sumar? - Jóna Björg Sætran

26.5.2011

Hvað ætlar þú að gera fyrir sjálfa þig í sumar?

Gleðilegt sumar! Jóna Björg Sætran
Við bjóðum hvert öðru gleðilegt sumar samkvæmt ákveðinni dagsetningu á dagatalinu nærri óháð því hvernig viðrar þann daginn. Stundum er sól, stundum er rigning og svo snjóar meira að segja stundum löngu eftir að dagatalið segir til um að það sé komið sumar. Eldgos brjótast svo út alveg óháð árstíðunum.

Hversu mikla þýðingu og einlægni leggjum við í þessa annars ágætu kveðju; „Gleðilegt sumar“?
Bauðst þú t.d. sjálfri þér gleðilegt sumar á Sumardaginn fyrsta? Leist þú á sjálfa þig í speglinum, horfðist í augu við sjálfa þig, sendir þér hlýja kærleiksstrauma og sagðir upphátt  með miklum innileik; „Gleðilegt sumar!“?  Er staðreyndin ekki sú að okkur er svo mikið í mun að biðja öllum öðrum gleði og alls góðs að við viljum alveg óvart gleyma okkur sjálfum?

Hvað ætlar þú að gera til að sumarið 2011 verði þér gleðilegt og ánægjulegt? Hvers konar minningar viltu allra helst að komi upp í hugann fyrsta vetrardag 2011 þegar þú lítur um öxl, horfir yfir sumarið?

Hvað vilt þú gera fyrir sjálfa þig í sumar? Hér er ekki verið að ýta undir sjálfselsku og eigingirni, langt því frá. Það er hinsvegar staðreynd að okkur verður að líða vel til að við getum létt öðrum lífið í amstri dagsins,  í hverfulleika lífsins.  Ef þér líður vel og ef þú ert ánægð og glöð þá eru miklar líkur á því að fólkinu sem þú umgengst muni líða betur en ef að þú værir sífellt óánægð, neikvæð og döpur.

Settu þér persónulegt markmið fyrir sumarið. Veldu þér a.m.k. eitthvað eitt sem þú vilt að breytist á jákvæðari veg núna í sumar. Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvernig þú ætlar að fara að því að ná þessu markmiði þínu. Það sem skiptir öllu máli er að þú vitir hvað þú vilt og það er mjög mikilvægt að þú gerir þér einnig grein fyrir því hvers vegna þú hefur valið þér þetta markmið. Þú skalt líka hugleiða hvaða jákvæðu breytingar þetta muni hafa á vellíðan þína og ánægju.

Stærsta gjöfin sem þú getur gefið sjálfri þér er að gefa þér tíma fyrir þig sjálfa. Þú þarft að eiga gæðastundir með sjálfri þér, smá tíma sem er aðeins fyrir þig til að gera það sem einmitt þig langar til að gera. Þetta þarf ekki að vera löng stund til að hún geti gagnast þér vel. Sumar konur þurfa t.d. hreinlega  að taka frá smá tíma frá skyldustörfunum til að hafa tíma til að hugsa.

Hver eru áhugamálin þín? Ertu að sinna þeim? Hér er ekki nein skylda að segja að helstu áhugamálin séu samvera við fjölskylduna, útivist í náttúrunni og ferðalög. Það er heldur ekki bannað að segja það. Mörgum konum finnst því miður að þær verði stöðugt að setja vilja og óskir annarra í forgang, þær reyna að sjá til þess að allir fái sitt – að allir fái að sinna áhugamálum sínum.  Þeim finnst óþægilegt að svara þessari spurningu á annan hátt en að setja maka og börn í fyrsta sætið á verkefnalistann en um leið  eiga þær erfitt með að sannfæra sjálfa sig og aðra um réttmæti  valsins.

Hverju vilt þú breyta hjá þér í sumar? Veldu nú eitthvað eitt og skrifaðu það svo niður þar sem þú lýsir því  í fyrstu persónu og eintölu að aðstæður þínar séu eins og þú vilt breyta þeim. Lýstu því einnig hvaða áhrif það hefur haft á líf þitt (þarna horfir þú t.d. 3 mánuði fram í tímann).

Svo skaltu gera gera annað í sumar. Leggðu áherslu á að tala jákvætt um sjálfa þig, ekki afsaka þig við aðra að ósekju. Hugsaðu líka jákvætt um sjálfa þig. Hrósaðu sjálfri þér. Þakkaðu fyrir allt það góða sem þú hefur og öllu því sem þú ert að breyta til betri vegar í lífi þínu.

Gefðu þér gæðastund með sjálfri þér innan við 24 klst. frá því að þú hefur lesið þennan pistil og skrifaðu niður lýsingu á því sem þú vilt að verði að veruleika hjá þér í suma.  Skrifaðu þetta sem  frásögn líkt og það væri kominn fyrsti vetradagur og þú sért að líta tilbaka yfir sumarið 2011.

Byrjaðu nú – og líttu svo á næsta pistil hér eftir viku!

Bestu blómstrandi sumarkveðjur, njóttu þess að vera þú sjálf!

Jóna Björg Sætran, M.Ed., ACC markþjálfi  og  Feng Shui ráðgjafi
Námstækni ehf. www.namstaekni.is

 Blómstraðu

 

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk