Haustlitirnir geta fćrt ţér nýja strauma - Jóna Björg Sćtran
8.9.2011
Haustlitirnir geta fćrt ţér nýja strauma
Það er allt í einu komið haust. 
Sumarið er liðið með mishlýjum sumardögum, sólin tók sér ansi marga frídaga að mati margra, sumir vildu meira regn – aðrir minna, já, gæðunum var misskipt að vanda. Meira að segja öskufallið var flestum sem fengu til tjóns og ama, aðrir tóku að safna ösku og nýttu hana til listrænna verka.
Já, sumarið er liðið og komið haust. Það gerðist vafalítið margt óvænt hjá þér í sumar, ótal margt sem þig óraði ekki fyrir á Sumardaginn fyrsta. Margt breyttist, bæði í kringum þig og innra með þér. Þegar þú hugsar tilbaka hugsar þú með hlýhug og sældartilfinningu til ákveðinna augnablika, en með trega og söknuði til annarra og svo voru það þessar stundir sem urðu nær óyfirstíganlega erfiðar og sárar, eitthvað sem gerðist, kom uppá – skaust inn í líf þitt með engum fyrirvara og þú færð ef til vill aldrei neinar skýringar á. Þau eru mörg þessi blessuð „verkefni“ sem okkur er úthlutað í lífinu. Allt það sem gerðist í sumar hefur gert þig að örlítið annarri og reynslumeiri persónu en þú varst í vor. Öll reynsla hefur áhrif á líðan okkar, hugsanir, tilfinningar, framkvæmdir og frestun framkvæmda. Nú er að taka allt hið góða inn og vinna áfram með það og vinna svo líka með það sem var miður til að það hafi ekki eins neikvæð áhrif á líðan okkar.
Vertu þakklát fyrir allt það sem sumarið færði þér, þakklát fyrir hið góða. Leggðu þig svo eftir því að hugsa með hlýhug til þess sem miður var, það getur mildað þau neikvæðu áhrif sem þau náðu að hafa á þig.
Njóttu þess svo að fylgjast með náttúrunni utan dyra næstu vikurnar. Njóttu þess að fylgjast með litaskrúði náttúrunnar, taktu eftir því hvernig allt er að breytast. Í dag sérðu að vísu að blómin í kringum þig hér á Íslandi eru að fölna og skrælna en á sama tíma vaknar líf annars staðar – einhverstaðar annars staðar á jarðkringlunni okkar eru fræ að vaxa og breytast í stæðilegar jurtir, ný blóm að springa út og allt að fara í blóma. Við fáum hinsvegar brátt að njóta fegurðar haustlitanna hér á Fróni, litadýrðin verður ekki síðri, bara öðruvísi. Líttu út um gluggann. Taktu eftir laufblöðum runna og trjáa í kringum þig. Kannski sérðu bara grænan gróður, allt fellur saman í eina sjón en þegar þú ferð út á eftir og gengur nálægt gróðrinum sérðu eitt og eitt gult laufblað. Á morgun verða þau líklega orðin fleiri – og eftir eina eða tvær vikur verða hugsanlega komnar gular, appelsínugular eða rauðleitar litabreiður í landslagið.
Stundum haustar ekki aðeins utandyra heldur líka innra með okkur, í hjartastað - þar sem við finnum sárast til. Þá er gott að hugsa til þess að á eftir hausti kemur alltaf vor á ný. Þetta er gangur lífsins og eins gott að enginn mannlegur máttur getur stjórnað honum til lengri tíma. Þá fyrst yrði nú allt ómögulegt.
Hvernig væri nú að tengja haustlitabreytingar laufblaða trjánna við breytingar sem verða sífellt innra með okkur og í kringum okkur? Það er ekki til nein kyrrstaða, allt er orka og við getum haft svo óendanlega mikil áhrif á breytingarnar hjá okkur og í nánasta umhverfi okkar með því hvernig við hugsum, hver afstaða okkar er til okkar sjálfra og annarra sem við erum í samskiptum við. Margir tala um gulan lit sem lit viskunnar, appelsínuguli liturinn er krafturinn og rauði liturinn eldurinn sem hitar allt svo um munar. Hvaða tækifæri eru að spretta fram allt í kringum þig þessa dagana og á næstu vikum? Horfðu vel á gulu laufblöðin og farðu inn á við, hvað kemur upp í hugann? Hvaða tækifæri getur þú skapað þér? Hættu að hugsa um það sem þú hefur ekki, hugsaðu um allt það sem þú hefur NÚNA og hvað þú getur gert úr því.
Njóttu þess að vera þú sjálf. Þú ert þess megnun að gera svo margt – og hefur um svo margt að velja. Gefðu þér tíma fyrir þig, útaf fyrir þig. Ef þú hefur lítið næði til þess, farðu þá aðeins fyrr á fætur eða sestu niður eftir að hinar fara að sofa. Þér er mikilvægt að taka aðeins stöðuna á sjálfri þér, gera þér grein fyrir því hvernig þér líður innra með þér. Lætur þú þig líða áfram af í sömu hjólförunum, hring eftir hring – eða hefur frestunaráráttan verið talsvert lengi í heimsókn hjá þér upp á síðkastið. Kannski – kannski ekki. Finndu hvað þú vilt og taktu stefnuna – svo er hægt að finna leiðina.
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, M.Ed., markþjálfi / Life Coach
jona@namstaekni.is www.blomstradu.net www.coach.is www.namstaekni.is








