Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Innri styrkur eflist međ virkni - Jóna Björg Sćtran

6.12.2011

Innri styrkur eflist međ virkni

Allt í einu er kominn desember – og jólaundirbúningur kominn í fullan gang. Auglýsingar um „gjafirnar sem gleðja“ berast okkur Jóna Björg Sætran  inn um bréfalúguna, á sjónvarpskjánum, í útvarpinu og víðar að. Já, nú er svo komið að það er eiginlega hvergi „friður“ fyrir auglýsingum því þær birtast líka óumbeðið með  netpóstinum og á símaskjánum.  Mörgum þykir þetta ágætt og alveg sjálfsagt en það eru vafalítið einnig margir sem vildu gjarnan geta lokað augum og eyrum fyrir öllum þessum áminningum um hvað sé nauðsynlegt að versla til að gleðja þá sem þeim þykir vænt um.

Það komu nýlega fram í fjölmiðlum fréttir um að nú væri verslun með dýrari heimilistæki farin að nálgast það sem hún var fyrir hrun. Einnig kom fram að nú hefði verið slegið nýtt verslunarferðamet til Boston!  Af þessum fréttum og ýmsum öðrum mætti ætla að fjárhagur landsmanna væri kominn í þokkalegt lag og að almenningur gæti leyft sér þá hluti sem þóttu sjálfsagðir fyrir hrun.  Á  sama tíma berast samt fréttir af því að fjöldi fólks hafi vart í sig og á. Mér sýnist eitthvað stangast á varðandi fréttir um afkomu fólks á Íslandi 2011 því kaldur raunveruleikinn blasir við fleiri einstaklingum en margan grunar og á harkalegri hátt en stundum áður. Nú þegar atvinnuleysið hefur verið svo alls ráðandandi sem raun ber vitni í um þrjú ár eru fjölmargir einstaklingar sem hafa verið lengi án vinnu og hafa þurft að treysta á bætur og aðstoð frá samfélaginu.  Fólk sem vill vinna – en fær ekki vinnu.

Ef þú ert í hópi þeirra sem hefur verið lengi án atvinnu þá kannast þú ef til vill við óþægindatilfinningu sem á það til að læðast að þér að morgni dags þegar þú ert að reyna að koma þér á fætur.  Þér finnst ef til vill sem þú getir alveg eins haldið þig áfram í rúminu – eða að minnsta kosti getir þú farið uppí aftur þegar þú hefur komið börnunum af stað í skólann.  En er það rétt? Er ekki í raun og veru alveg heilmikið sem bíður þess að þú opnir augun og njótir? Stundum þarf maður bara að fá smá aðstoð við að pússa rykið af gleraugunum sínum.  Lífið kallar á þig og samferðafólk þitt þarfnast þín. Þú býrð yfir ótal hæfileikum og dýrmætri reynslu. Þú skiptir máli. Það eru ótal tækifæri til staðar – það er bara að opna hug sinn og hjarta, finna leiðir til að greiða úr flækjum, marka sér nýja stefnu og taka eitt skref í einu. Það eru ótal vegvísar – og víða hægt spyrja til vegar á lísfsleiðinni.

Langvarandi atvinnuleysi getur leitt til þess að það reynist dálítið erfitt er að koma sér í gang á morgnana og það getur líka hæglega leitt af sér langvarandi leiða, einangrun, kvíða og svo enn meiri kvíða og jafnvel þunglyndi.  Þá er mikilvægt að leita leiða til að skoða hvað veldur og hvernig hægt er að breyta aðstæðum sér í hag. Þreytan sem þú finnur innra með þér gæti minnkað við meiri virkni. Virkni getur komið þér í gang. Það getur verið átak að koma sér af stað í byrjun en þá er að hafa í huga að örlítil breyting getur haft mikil áhrif til hins betra. Fáein skref geta orðið að betri  sjálfsmynd, bættu sjálfstrausti,  jákvæðri framtíðarsýn, raunhæfri markmiðasetingu, skipulagningu og sjálfsaga til framkvæmda. Þannig er hægt að komast vel á veg til virkni sem eykur framkvæmdagleði, vellíðan og lífsfyllingu.

Það getur vissulega reynst mörgum erfitt að hugsa með tilhlökkun til næstu daga og vikna núna þegar komið er fram í desember og jólin nálgast,  jólin sem eiga að vera hátíð allra og allir eiga að hafa það svo gott, skemmtilegt og notalegt. Ef þú kannast við hugrenningar af þessu tagi þá langar mig að biðja þig að leiða hugann að því að það er mögulegt að bægja erfiðum hugsunum meðvitað frá sér og taka eitt skref í einu til að koma sér í gang.  Þó svo að alls konar neikvæðum hugsunum hafi  tekist að hafa haft yfirhöndina í huga þér um tíma, þá eru hugsanir ekkert annað en hugsanir, þær eru ekki sannleikur! Það sem þú hugsar er ekki endilega staðfesting á staðreyndum.  Þú þarft því ekki að trúa þeim.

Líttu í kringum þig. Loftaðu út. Hreyfðu til húsgögnin. Fáðu hreyfingu á orkuflæðið í kringum þig. Sestu niður með fólkinu þínu, hlustaðu og ræddu málin.  Farðu út að ganga.  Leiddu hugann að stoltu stundunum í lífi þínu. Hvað hefur veitt þér gleði og ánægju í gegnum lífið? Rifjaðu það upp og leyfðu þér að kalla fram gömlu gleðitilfinninguna smátt og smátt. Síðan skaltu skrifa niður 6 – 9 atriði sem þig langar til að ná að gera núna á næstunni. Hvað af þessu er mikilvægast? Hvað ætlar þú að gera fyrst? Svo er að hefjast handa. Ef þú þarft aðstoð – þá er að biðja einhvern um aðstoða þig. Á morgun skaltu taka listann fram aftur. Hvað náðist af listanum? Hvað tekur þú fyrir næst?
Mundu að það munar um allt, allt skiptir máli. Einföld framkvæmd og  smá virkni geta komið miklu í gang.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur,  Jóna Björg Sætran www.blomstradu.net


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk