Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Morgunstund gefur gull í mund - Jóna Björg Sćtran

19.12.2011

Morgunstund gefur gull í mund

Þetta gamla góða orðatiltæki hefur vafalítið fylgt mörgum okkar frá því að við vorum lítil, þ.e. okkur sem erum á „góðum aldri“.  Ég Jóna Björg Sætran  minnist þess að þetta var oft sagt við mig sem litla hnátu  - og svo síðar sem ungling til þess að fá mig til að drífa mig á fætur svo hægt væri að nýta tímann vel. Þá þótti það löstur að liggja fram eftir, það átti að fara snemma á fætur og ganga til nauðsynlegra starfa.  Gera eitthvað nytsamlegt.

Í síðasta pistli fjallaði ég lítillega um að það getur stundum reynst erfitt að koma sér í gang á morgnana, erfitt að fara fram úr, einfaldara að liggja bara áfram og bíða eftir því að dagurinn líði. Ég vona að þeir sem hafa upplifað þessháttar líðan núna í skammdeginu hafi haft gagn af síðustu skrifum mínum þar sem ég lagði áherslu á að það að koma sér fram úr að morgni og koma sér með einhverjum hætti í gang geti minnkað þessa ótrúlegu þreytu sem oft fylgir skammdeginu. Við skulum vinna aðeins meira með þetta.

Núna þegar rétt tæp vika er til jóla er margt sem sækir á hugann. Það er ótal margt sem á eftir að gera bæði til að gera hreint og fínt á heimilinu fyrir jólin – og svo eru það allar jólagjafirnar og jólakortin. Heilt fjall af verkefnum – og það er hátt upp á toppinn á fjallinu sem er farið að minna ískyggilega mikið á óskreytt jólatré í kvöldskugganum. Hvernig á að vera hægt að gera þetta allt saman?

Hvernig væri að leiða hugann að þeim gleðistundum sem þú hefur átt með ástvinum og vinum yfir jólahátíðir liðinna ára. Ef þær fyrirfinnast ekki skaltu loka augunum og hverfa aftur til barnæskunnar og halda áfram að leita í safni minninganna þar til þú getur numið staðar við minningu um notalega jólasamverustund. Lokaðu aftur augunum andartak til að upplifa gleðitilfinninguna og eftirvæntinguna sem gagntók þig. Hvað var það sem gerði þessar stundir að gleðistundum, dýrmætum augnablikum sem þú vildir ekki hafa misst af fyrir nokkurn mun? Hvað var verið að gera? Hverjir voru til staðar? Hvernig var þessi gleðitilfinning? Hvernig tilfinning er það að rifja þetta upp núna?Hvar finnur þú þessa tilfinningu í líkama þínum?

Þessa upprifjunaraðferð getum við alltaf notað, hvar og hvenær sem er. Gamla og góða minningin getur orðið þér dýrmæt hjálparhækja sem þú getur stuðst við ef einmanaleikinn eða þunginn knýr á dyr.  Núna fyrir þessi jól skaltu leggja áherslu á að hengja upp gleðilega jólaskrautið, hafa góðu minningarnar í kringum þig. Pakkaðu hinum niður, líkt og gömlu jólaskrauti sem er lagt til hliðar. Það er stundum skrýtið til þess að hugsa að við getum verið þakklát fyrir allar minningarnar okkar, líka þær sem minna okkur á eitthvað sem við vildum hafa haft öðruvísi. Allt það sem þú hefur upplifað hingað til hefur átt mikinn þátt í að gera þig að þeirri persónu sem þú ert í dag. Þú hefur frjálsan hug og frjálsan vilja og því getur þú unnið að því að „slípa“ þig til, bæði þína eigin persónu og aðstæður þínar.

 Ef þig skortir sjálfsaga og kraft til að vinna að „umbreytingunni“  þá eru alltaf einhverjir sem þú getur beðið um að aðstoða þig. Það er ekkert sem mælir á móti því að biðja um stuðning, að biðja um aðstoð við að koma sér í gang - en mun verra að biðja ekki um stuðning sem þörf er á.  Þrátt fyrir þróun mannsins og hátækniöld er enn nokkrum erfiðleikum bundið að lesa hugsanir annarra og því getur verið helst til snúið fyrir fólkið í kringum þig að gera sér grein fyrir því að þú þarft á hlustun, skilningi og stuðningi að halda.  Leyfðu fólkinu í kringum þig að taka meiri þátt í lífi þínu.

Hvað var það nú sem gerði gömlu góðu jólaminningarnar dýrmætar? Var það hreingerningaæði, búðaráp með yfirfullt fangið af gjöfum, jólahlaðborð, jólatónleikar  – eða var það gæða samvera með fólkinu þínu, samvera þar sem væntumþykja og samhugur voru ríkjandi?  Hvernig væru draumajólin þín? Hvað er það sem skiptir mestu máli?

Skrifaðu niður nokkur vel valin lykilorð sem lýsa því hvernig þú vilt að þér og fólkinu þínu líði um jólin. Hverjir skipta þig mestu máli? Hvers vegna? Hvernig kemur þú þeim skilaboðum til þeirra? Lítil ódýr jólagjöf getur oft komið kærleikanum og væntumþykjunni mun betur til skila  heldur en sú dýra og fyrirferðamikla. Rifjaðu upp hvað skiptir máli og síðan er að vinna út frá því.

Njóttu jólanna, njóttu þess að vera í núinu og leyfa þér að líða vel með það.

Bestu jólakveðjur

Jóna Björg Sætran   www.blomstradu.net

 


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk