Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Letsgó .... Enskukennsla 3 ára barna ... eđa? - Jóna Björg Sćtran

26.11.2009

Letsgó .... Enskukennsla 3 ára barna ... eđa?

Lítil dótturdóttir mín, 3ja og hálfs árs gömul hnáta, hefur heldur betur komið ömmu sinni á óvart með óvæntri enskukunnáttu sinni. Ég hélt mér hefði misheyrst núna um helgina þegar ég taldi mig heyra barnið bregða fyrir sig ýmsum stuttum setningum á ensku. Orðin komu í réttu samhengi við ýmsar athafnir voru með áhersluþunga og ótrúlega réttum framburði.

Litla hnátan er eins og margir jafnaldrar hennar í leikskóla og það fyrsta sem mér datt í hug var að þar væri farið að kenna börnunum ensku. Mér er kunnugt um að svo er gert með allgóðum árangri á sumum leikskólum - en þó frekar í deildum eldri leikskólabarna. Í ljós kom að svo var ekki. Hinsvegar sagði hnátan mér stolt að Dora hefði kennt sér þetta, Dora í barnasjónvarpinu.
Ţekkir þú þessa ágætu kennslukonu? Ef svo er ekki, þá er Dora aðalpersónan í erlendu barnaefni sem hefur náð gríðarlega miklum vinsældum og er það líklega ekki síst að þakka víðtækri markaðssetningu.

Ţetta atvik varð til þess að ég fór enn einu sinni að hugsa um hvað eðli og inntak barnaefnis í sjónvarpinu hefur mikið að segja fyrir litlar og óharðnaðar sálir ekki síður en fyrir stálpaðri börn. Fyrrnefnd Dora kemur fram í stuttum bandarískum sjónvarpsþáttum þar sem auk skemmtiefnis er m.a. lögð áhersla á að kenna ungum áhorfendum ýmislegt sem telst jákvætt í mannlegum samskiptum. Hér ætla ég mér ekki að vera með neina stjörnugjöf enda hef ég ekki séð nægilega marga þætti til að slíkt teldist raunhæft. Þarna er hinsvega ágætis dæmi um gildi vandaðs sjónvarpsefnis fyrir börn. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft - og í víðtækari merkingu en við gerum okkur oft grein fyrir.

Allt myndefni hefur áhrif á okkur, hvort sem um er að ræða ljósmyndir, teikningar eða hreyfimyndir. Sum áhrifin eru að fullu meðvituð, önnur ómeðvituð en hafa samt mótandi áhrif á undirmeðvitundina. Þetta leiðir hugann m.a. að því efni sem haldið er að börnum okkar og barnabörnum í formi bóka, tölvuleikja og kvikmynda sem ætluð eru börnum. Ef efnið höfðar til barnanna og þau fá og viðhalda áhuga á efninu drekka þau í sig þar sem þar er kennt. Barn sem ekki er farið að tala móðurmál sitt hreint fer jafnvel að slá um sig með erlendum orðaforða svo eftir er tekið.

Í tengslum við þetta fer ég ósjálfrátt að velta því fyrir mér hvernig kennsluefnishöfundar gætu komið efni sínu mun betur til skila til nemenda ef höfundarnir gætu nýtt sér alla þá tækni sem skemmtanaiðnaðurinn býr yfir. Hugsið ykkur hvað það gæti verið gaman að læra - bæði í skólanum og eins fyrir skólann. Ég er viss um að árangurinn yrði miklu meiri. Þar skiptir í mínum huga ekki mestu máli að allir fái 10 á prófum heldur að nemendur á öllum aldri fái námsefni við hæfi, skemmtilegt og jákvætt námsefni sem byggir auk annars á að efla sjálfstraust nemandans.
Mikið yrði þá gaman - bæði í skólunum og heima. 

Let´s go! Thank you! 

Leyfum börnunum og barnabörnunum að blómstra jafnt í leik sem námi!
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, menntunarfræðingur
Námstækni ehf.
http://www.namstaekni.is/


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk