Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Gleðjumst saman - því það er svo gaman! - Jóna Björg Sætran

3.12.2009

Gleðjumst saman - því það er svo gaman!

Sl. sunnudagsmorgun var ég vakin af værum svefni, okkur afa og ömmu væri boðið í „aðventu"brunch"" NÚNA! Úps! Þetta væri búið að standa til lengi - en það hefði bara „gleymst" að bjóða okkur!

Ekki amalegt að vera vakin með slíkum fréttum fyrsta sunnudagsmorgun í aðventu!
50 mín. síðar var staðfest að undur og stórmerki gerast enn, meira að segja hjá afa og ömmu. Nær sextugu vorum mætt í hinn enda borgarinnar, í snjónum ....... já og búin að skafa af öllum ljósum á bílnum og bílnúmeraplötunni líka, ..... ég þakkaði fyrir að vera komin á vetrardekkin.

Barnabörnin komu hlaupandi á móti okkur, fagnandi því að loksins væru nú afi og amma mætt, nú mætti því setjast að borðum og borða glóðvolg rúnnstykkin ........... og svo væru nefnilega skreyttar piparkökur frá Piparkökudeginum í leikskólanum í dessert .......... fyrir þá sem væru duglegir að borða, já ......... og svo ætti að kveikja á aðventuljósinu og líka á fyrsta kertinu. .......... Já, litlu stýrin voru hálf óðamála, prinsinn litli tók undir með þessum eldri og altalandi! Já, það ríkti mikil gleði.

Loksins komumst við innfyrir anddyrið - nýlagað kaffið ilmaði vel og annar ilmur lokkaði líka  -  af glóðvolgum hátíðarrúnnstykkjum úr bakaríinu, eitthvað sem ekki er eins algengt nú og var eitt sinn árið 2007!

Þarna áttu öll fjölskyldan indæla morgunstund. Aðventuljósið var kveikt við hátíðlega athöfn - sem í raun setti  aðventuljósinu á mun hærri sess í huga mér heldur en áður. Þetta varð allt að því helg athöfn. Þetta varð allt annars eðlis en þegar maður hefur kannski alltof oft náð í aðventuljósið upp á loft + stungið því í samband við töfraheima rafmagnsins + og síðan hefur það lýst alla aðventuna.

Þarna var spjallað, frændsystkinin léku sér og sungu eitthvað af jólalögum sem ég heyrði óminn af úr  fjarska fram í stofu.  Þó gáfu þau sér smá tíma til að stilla sér upp og fylgjast með lotningu á það þegar fyrsta kertið í aðventukransinum var tendrað. 

Þessar tvær litlu athafnir fengu mig til að hugsa um hve mikilvægt það er að koma saman og gleðjast saman yfir litlu. Oft var þess þörf, nú er þess nauðsyn.

Þessa dagana dynja í eyrum okkar enn og aftur „æseivs"umtal, uppsagnir, biðraðir eftir matarúthlutun, greiðsluerfiðleikar, febrúar"óvissa" o. fl. Ekki beint uppörvandi umfjöllunarefni svona í byrjun jólaföstu. Stundum væri gott að geta sópað öllum þessum leiðindaumræðuefnum fjölmiðlanna undir eitt stórt Alladin töfrateppi. Síðan gætum við Íslendingar sammælst um að hugleiða samtímis og nýta sameiginlega hugarorku allra landsmanna til að fá Alladin töfrateppið til að hefja sig til flugs .... til sinna heima, til þeirra sem tóku einna mestan þátt í að vefa þennan örlagavef. Það er ekki ólíklegt að það séu helst þeir eða þau sem geti rakið örlagavefinn upp á ný svo allir geta vaknað upp á ný við fulla vinnu, ótæmandi verkefnalista atvinnuveganna og uppbyggingu lands vors til bæði sjávar og sveita. Mikið væri nú lífið þá dásamlegt!

Núna, á meðan þetta undarlega „millibilsástand" ríkir hér á landi, þá er öllum mikilvægt að leita í kimum hugans að því sem betur má fara hjá hverjum og einum. Hvað af verkefnum þínum er að gefa eitthvað af sér? Hvað er þér til trafala?  Hvernig viltu hafa tilveruna - raunhæft séð?  Hvað þarf til þess að sú mynd rætist? Lausnin gæti verið nær en þú heldur.

Ein öflugasta leiðin til að ýta undir frjóa hugsun og möguleika okkar til að hugsa út fyrir hefðbundna ramma til að fá enn ferskari og öflugri hugmyndir - er finna gleðina í hjarta sér og gleðjast með þeim sem skipta okkur mestu máli hér á Hótel Jörð.  Finnum tilefni, þau þurfa ekki að vera stór - við getum gert þau stærri. Eflum fjölskyldu- og vinatengsl. Þegar upp verður staðið er það fólkið okkar og velferð þess sem skiptir okkur mestu máli.

Njótið hvers annars. Blómstraðu og hjálpaðu þeim hinum til að blómstra líka!

Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, M.Ed.
Námstækni ehf.
www.blomstradu.net


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk