Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Hvađa skilabođ senda „umbúđirnar" ţínar til mín? - Jóna Björg Sćtran

17.12.2009

Hvađa skilabođ senda „umbúđirnar" ţínar til mín?

Já, „hvaða umbúðir eru utan um þig"? Þér þykir þetta hugsanlega einkennilega spurt en við skulum aðeins velta þessu fyrir okkur núna með morgunkaffinu.

Umbúðir, hvað ég á við? Jú, umbúðir geta verið svo margt en þegar á heildina er litið þá ná þær í þessari merkingu hér til margra þátta sem allir samtvinnast og eiga drjúgan þátt í að móta þá skoðun sem aðrir gera sér af þér. Þetta á ekki síst við þegar við hittum einhvern í fyrsta sinn. Fyrstu kynni verða alltaf einstök og eru gríðarlega mikilvæg - eiginlega ómetanlega mikilvæg - ekki síst vegna þess að þau verða aldrei nokkurn tíma endurtekin. Það er því betra að vanda til þeirra strax í upphafi.

„Umbúðirnar" er það sem aðrir sjá, upplifa og skynja með einum eða öðrum hætti þegar þeir hitta þig, eða jafnvel er nóg fyrir þá að heyra röddina þína í síma. Umbúðirnar geta þannig táknað fatnað, hárgreiðslu, snyrtingu, notkun ilmefna, notkun snyrtivara, andlitssvip og tjáningu. Ritstíl, ávarp og kveðju í tölvupósti má einnig flokka undir umbúðir. Hér þarf einnig að minna á það hvernig þú berð þig, þ.e. hvernig þú gengur, hvernig þú beygir þig niður, hvernig þú heilsar fólki og hvort þú horfir á fólkið sem þú ert að tala við eða horfir eitthvað allt annað.  

Ţað hvernig fólk „upplifir" þig, nær mjög líklega ekki aðeins til þín sem persónu, heldur myndar fólk sér þá oft ósjálfrátt ákveðna skoðun á þeirri þjónustu sem þú býður, hver svo sem hún er. Það má segja að þetta sé ekki sanngjarnt, en svona er það nú samt og lítið við því að gera, annað en að nýta sér að geta unnið með þekktar staðreyndar.

Ástæðan fyrir því að ég fór að spjalla um mikilvægi klæðaburðar er lítil frásögn sem rifjaðist upp fyrir mér í sl. viku. Vinkona mín, sem er bandarísk en býr almennt á Íslandi, var á ferðalagi í heimalandi sínu fyrir nokkru og tók sér leigubíl sem er nú ekki beint í frásögu færandi. Í Bandaríkjunum býr mikill fjöldi innflytjenda víðs vegar að úr heiminum. Menningarflóran blómstrar og margir njóta þess að geta verið þeir sjálfir, finna síður fyrir þrýstingi gagnvart því að þurfa að gera eins og allir hinir. Bandaríkin hafa oft verið nefnd „land tækifæranna". Þetta kannast líka mörg okkar sem eldri erum við að hafa heyrt sem smábörn frá ömmu eða langömmu sem átti frænku eða frænda sem freistaði gæfunnar forðum og fór til Vesturheims í leit að fleiri tækifærum til vaxtar, meiri hamingju og gleði. Jæja, það er nú önnur saga, yfirfull af jafnt gleði og sorgum.

Vinkona mín var eitthvað hálf þreytt en eftir að hafa ekið nokkurn spöl í leigubílnum fannst henni sem þessi leigubíll væri eitthvað frábrugðinn öðrum leigubílum sem hún hafði tekið af sömu gerð bæði fyrr um daginn og nokkru áður. Allir málmfletir voru gljáfægðir, hvergi var blettur á áklæðinu, gluggarúðurnar tandurhreinar þrátt fyrir að það hafði ringt fyrir skömmu, húddið var líka glansbónað. Henni varð litið fram í bílinn og á mælaborðið. Þar var allt líka gljáandi og hreint. Hún fór að fylgjast með bílstjóranum. Bílstjórinn var maður á miðjum aldri, frekar dökkur á hörund. Hann var klæddur í dökk jakkaföt, hvíta skyrtu og var með dökkblátt bindi. Hendurnar á stýrinu voru dálítið þrútnar og fingurnir lítið eitt krepptir og þegar bílstjórinn tók stóra vinstri beygju sá hún glitta í glæsilegan skyrtuhnapp þarna rétt framan við ermina.
Ţessi ágæta vinkona mín er búin að búa svo lengi á Íslandi að hún veit að það er nú ekki beint til siðs að fara að gefa sig á tal við bláókunnugt fólk í útlöndum. Hinsvegar er hún nú einu sinni bandarísk og fékk það svotil í æð eða með móðurmjólkinni að það er álíka dónalegt að sitja bara og þegja - og segja svo áfram ekki neitt. Hún gat ekki orða bundist lengur. Hvað var eiginlega í gangi? Af hverju var bílstjórinn svona fínn, það vantaði bara að hann væri borðalagður með heiðurspeninga hangandi í grænum eða bláum silkiborðum. Var hugsanlegt að hún hafi farið upp í rangan leigubíl? Það gæti nú svo sem hafa gerst - en samt virtist hann vera að fara í áttina þangað sem hún ætlaði.

Á næsta rauða ljósi áræddi hún að láta vaða og lét þau orð falla að sér þætti sérlega hreint og fínt þarna í leigubílnum. Leigubílstjórinn þakkaði henni fyrir með sterkum erlendum hreim, hann talaði hægt og bar orðin allt að því ofurskýrt fram. Þegar komið var á áfangastað greiddi hún bílinn og ætlaði út en áður en hún náði að opna hurðina á bílnum var bílstjórinn kominn út og búinn að opna fyrir henni.  Þetta var glæsilegasti leigubílstjóri sem hún hafði séð.  Kannski ekki sá fallegasti eða myndarlegasti en samt sem áður sá glæsilegasti. Hann brosti til hennar og um leið rétti hann henni lítið pappaspjald, viðskiptakortið sitt. „Gjörðu svo vel", sagði hann, „þegar þig vantar næst leigubíl þá ertu hérna með símanúmerið á leigubílastöðinni þar sem ég vinn og þú hefur hér líka númerið á bílnum mínum. Mér þætti heiður í að fá að aka þér aftur. Njóttu dagsins!"

Vinkona mín var næsta orðlaus, þetta var ekki sagt sem innantóm orð heldur sagt af kurteisi og með hlýju í röddinni. Hún gat ekki orða bundist og spurði hvers vegna bíllinn væri svona gljáfægður jafnt innan sem utan, já og hvers vegna hann, bílstjórinn, væri svona glerfínn?
„Jú, frú" sagði bílstjórinn, „ég ber mikla virðingu fyrir sjálfum mér og vinnunni minni. Ég er að vísu leigubílstjóri, ég ek fólki út um alla borg og vinnudagurinn getur orðið langur. Ég legg metnað minn í að þegar fólk ekur með mér, þá ekur það í besta, fallegasta og vinsælasta leigubílnum í borginni. Ég lít ekki á mig sem venjulegan leigubílstjóra heldur segi ég við sjálfan mig á hverjum morgni að ég sé sá besti á stöðinni, ég á mér markmið og ég vinn að þeim á hverjum degi. Farþegarnir mínir eru svo ánægðir að það er mjög oft hringt á stöðina og beðið sérstaklega um mig. Ég hlakka til að fá að aka þér aftur. Njóttu dagsins!"

Hvaða umbúðir eru utan um þig og þá þjónustu sem þú ert að bjóða? Hvernig mættir þú í vinnuna í morgun? Hvernig mætir þú út í búð? Hvernig mætir þú á fund? Hvað segir útlit þitt, framkoma og líkamstjáning um þig? Hvað segir þetta allt um þig? Ertu að senda „rétt" skilaboð til annarra?

Veltu þessu aðeins fyrir þér. Getur verið að þú viljir breyta þeim skilaboðum sem þú hefur verið að senda frá þér. Þarftu þá ekki að byrja á því að breyta hugarfarinu og síðan að breyta umbúðunum? Skrifaðu niður óska lýsinguna á því hvernig þú vilt að aðrir skynji þig og þjónustuna þína.

Góða skemmtun. Blómstraðu og njóttu þess að vera þú!

Bestu kveðjur

Jóna Björg Sætran menntunarfræðingur
Námstækni ehf.
http://www.blomstradu.net/
jona@namstaekni.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk