Umbreyting - Traust - Ţjónusta 2010 - Jóna Björg Sćtran
14.1.2010
Umbreyting - Traust - Ţjónusta 2010
Feng Shui meistara.Hvað táknar það nú? Jú, eins og ég hef stundum áður minnst á, þá þýðir ekki alltaf að gera það sama ef þú vilt að árangurinn verði annar en sá sem þú átt að venjast.
Nú er að kasta sér út í alls konar breytingar og umbreytingar ..... í leið að nýjum leiðum að markmiðunum. Það er óþarfi að nota alltaf sömu uppskriftina, ekki satt, miklu meira spennandi að prófa nýjar leiðir, skoða enn betur hvað maður er fær um að gera - svo framarlega sem það skaðar ekki aðra! Við þurfum ekki endilega að ákveða alveg fyrirfram hvernig við viljum að mál þróist, hvaða leiðir við ætlum að fara. Jú, að sjálfsögðu þurfum við að vita hvert við ætlum okkur að komast, hver markmiðin okkar eru. Við þurfum hinsvegar alls ekki að vita nákvæmlega hvernig við förum að því að ná þeim.
Segjum til dæmis að þó ótrúlegt sé, að þá sért þú ekki enn búin/-n að skrifa niður markmiðin þín fyrir þetta nýbyrjaða ár, 2010. Hvers vegna ætli það sé? Veistu alls ekki hvað þú vilt? „Jú, jú, svona nokkurn veginn" heyrist mér þú muldra ..... „en ............ ég veit ekki á hverju ég á að byrja!" „Það er svo margt sem mig langar til að gera, ýmislegt sem ég vil hafa öðruvísi, en á hverju er best að byrja?"
Jæja, það var þá gott að þetta kom fram. Það er nefnilega til mjög einföld lausn á þessu. Prófaðu að telja upp í huganum nokkur atriði sem þig langar til að gera að markmiðum þínum þetta árið. Nú, ef þú ert með þetta skrifað niður, þá skaltu endilega ná í blaðið og líta yfir það, staldra við hvert atriði - lygna aftur augunum í ca. 15 sek. og reyna að sjá einmitt þetta markmið fyrir þér - reyndu líka (í aðrar 15 sek.) að kalla fram hjá þér svipaðar tilfinningar og þú gerir ráð fyrir að muni hrærast í brjósti þér þegar þú hefur náð þessu ákveðna markmiði. Farðu svona yfir öll markmiðin á listanum - hvort sem hann var niður skrifaður eða sveif um á skýi í huga þér. Númeraðu markmiðin. Nú, ef listinn er talsvert langur og þú ert jafnvel að lesa þetta í kaffipásunni í vinnunni, þá skaltu halda þig við 2 - 3 atriði af listanum og halda svo áfram þegar þú ert komin/-n heim.
Nú eru markmiðin þín farin að hrærast og dafna í undirmeðvitundinni þinni. Það er aldrei að vita nema þú getir jafnvel teiknað nokkrar myndir eða tákn til að minna þig á það sem þig langar til, minna þig á gulrótina eða rúsínuna í pylsuendanum ..... sem verður þín í lok ársins ef þú vinnur ötullega og af einbeitingu og festu að því að komast alla leið á áfangastað. Þú getur jafnvel valið þér einhverja tónlist, eitthvað lag, sem á að minna þig á markmiðin þín. Já, og hvernig líst þér á að velja þér líka einhvern lit til að tengja við markmiðin?
Ţetta var undirbúningurinn. Þá er það vinnan við að velja á hverju á að byrja. Veltu því fyrir þér hvað af þessum markmiðum stendur hjarta þér næst. Hvað af þessu er þér mikilvægast? Berðu markmiðin saman tvö í einu, hvert markmiða"par" á fætur öðru. Hvort er þér t.d. mikilvægara, markmið númer eitt eða tvö? Segjum að þú komist að þeirri niðurstöðu að þér sé mikilvægara að ná markmiði númer tvö innan tiltekins tíma heldur en markmiðinu sem þú númeraðir númer eitt. Næst berðu þá saman markmið númer tvö og þrjú. Ef markmið númer tvö er enn það sem er mikilvægara þá berðu það saman við markmið númer fjögur. Svona heldur þú áfram og finnur þá að lokum hvað skiptir þig mestu máli að byrja að vinna að því að ná. Síðan getur þú valið fleiri markmið eftir þessari sömu aðferð.
Er einhver efi í huga þér um að þú getir valið rétt? Þá er gott fyrir þig að hugsa til þess að það skiptir e.t.v. ekki mestu máli á hverju þú byrjar. Hvers vegna? Jú, það er frekar einföld ástæða - sem mörgum yfirsést samt vegna þess að þeir vilja hafa alla hluti svo flókna. Hvers vegna ættum við að gera einföld mál eitthvað flókin? Það er algjör óþarfi. Já, alveg rétt, ástæðan er einfaldlega sú að „Allt hefur áhrif!" Eitt hefur áhrif á annað. Ef þú hugsar bara snöggvast út í hvaða þættir í lífi þínu hafa áhrif á daglegt líf þitt. Þar sem við lifum í raunveruleika en ekki í draumheimum, þá getum við líklega orðið sammála um að lífið er margslungið og margþætt. Það er fátt eða ekkert eingöngu jákvætt eða neikvætt. Það eru skin og skúrir, gleðitár og sorgartár, ást og reiði (jafnvel smá hatur .... sem vonandi breytist svo fljótlega aftur í samúð og svo skilning á því að sá sem beitir þig einhverju ranglega gerir sér ekki grein fyrir því að þú ætlar ekki að láta það hafa þau áhrif á þig sem viðkomandi ætlaðist líklega til, þú tekur ekki á móti slíku lengur).
Lokaorðin eru því þau að ef þú átt þér markmið og tekur ákveðna stefnu, þá kemur brátt í ljós að sigur á einu sviði hefur áhrif á það næsta. Ef þér gengur vel með eitt, þá verður svo miklu auðveldara að fást við annað. Þú vex og dafnar innra með þér. Þú styrkist á allan hátt og verður sterkari fyrir og átt því auðveldara en annars til að vinna stærri sigra, eða sigrast á erfiðari málum.
Til að ná öðrum árangri en hefur fengist hingað til þarf að breyta aðferðum og jafnvel hátterni. Þú þarft jafnvel að prófa að gera allt aðra hluti en þú gerir venjulega. Hér er ég alls ekki að tala um að þú hlaupir frá öllum daglegum „skyldum" - nei nei, heldur að þú leyfir þér, eða jafnvel þvingir þig til að fara örlítið út fyrir þægindahringinn. Hvers vegna? Jú, vegna þess að það gæti verið merki þess að þú sért í raun að kynnast einhverju nýju í fari þínu, færni og ferskleika. Þú getur nefnilega svo miklu meira en þú hefur gert hingað til! Hverju getur þú hreinlega „umbreytt" í lífi þínu, í þeim tilgangi að njóta þín betur svo þú getir náð meiri árangri í hverju sem þú svo ákveður. Stundum er vilji allt sem þarf, vilji til að virða eigin óskir og framfylgja þeim í stað þess að hlusta á hvað öðrum þykir mikilvægast að þú nýtir tíma þinn í.
Í næstu viku skulum við svo fjalla um einkunnarorð númer tvö, traust! Já, rétt til getið, hér er á ferðinni smá „umbreyting" í pistlaskrifunum, komið ákveðið þema, einkunnarorðin þrjú fyrir 2010!
Góða skemmtun og gangi þér sem allra best.
Leyfðu þér að Blómstra árið 2010. Njóttu þess að vera þú!
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, menntunarfræðingur, markþjálfi o. fl.
Námstækni ehf. http://www.namstaekni.is/ og http://www.blomstradu.net/
jona@namstaekni.is








