Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Treystir þú þér eða öðrum - eða er alls engum treystandi? - Jóna Björg Sætran

22.1.2010

Treystir þú þér eða öðrum - eða er alls engum treystandi?

Um daginn vitnaði ég í Marie Diamond, Feng Shui meistara, einn af mentorunum mínum.  Hún talar um að einkunnarorðin fyrir nýbyrjað ár séu Umbreyting - Traust - Þjónusta.  Þá ræddi ég um „umbreytingu" og í dag skulum við líta aðeins á traustið.

Hvað eigum við að hafa í huga hvað það varðar?
Skilaboð Marie eru skýr;
* Þó svo að það sé mikill glundroði í kringum þig og óhemju miklar breytingar,  þá getur þú fundið þér öruggt skjól innra innra með þér.  Þú getur treyst á þig, mátt þinn og megin, til að komast út úr erfiðleikunum og nýtt umbreytingarnar allt í kringum þig þér í hag.

* Mörgum stendur ógn af þessum gríðarlegu miklu breytingum sem eiga sér stað bæði á heimsvísu og eins í okkar eigin litla samfélagi. Láttu hræðsluna ekki ná tökum á þér. Haltu áfram á þinni braut. Þér er samt nauðsynlegt að vita hvað sé að gerast í kringum þig. Þú þarft að gera þér sem réttasta mynd af raunveruleikanum - en þú þarft ekki að gera hann að þínu. Fylgstu með fréttunum en lifðu þig ekki um of inn í þá mynd sem þar er dregin upp af „raunveruleikanum".

* Þú hefur mikil áhrif á þínar eigin aðstæður!  Þú getur í raun skapað þann „raunveruleika" sem stendur hjarta þér næst. Leggðu áherslu á að það sem þú vilt að verði að þínum raunveruleika, það hvernig þú vilt hafa þitt líf. Ákveddu hvað þú vilt og einbeittu þér að því að vinna markvisst að því að svo muni verða. Treystu „almættinu" (hvert sem það er í þínu tilviki) til að beina þér á veg farsældar og auðlegðar.
   (Marie Diamond; New Year Letter 2010).

Hvernig treystir þú þér? Telur þú kapp í þig þessa daga þegar á móti blæs? Hvernig talar þú við þig um aðstæður þínar þessa dagana? Er allt á verri veg, allt algjörlega glatað? Til hvers ertu sífellt að velta þér upp úr því? Verður það þá ekki bara verra?

Viltu vinna stærri sigra? Treystir þú þér til að leggja til atlögu við stærri verkefni? Hvað gerist ef / þegar þér tekst ekki alveg nægilega vel upp?  Skammast þú þá út í allt og alla í smástund, eða ferðu strax að spá í hvað þú getir nú lært af þessari algjörlega óþörfu uppákomu? Er ekki tilvalið að líta á hvert verkefni sem sjálfstæða tilraun til að ná lengra, gera betur, láta sér líða betur?

Er það ekki einmitt þannig sem við hvetjum litlu krílin áfram þegar þau eru að byrja að læra eitthvað nýtt, eins og t.d. að læra að ganga. Við hvetjum þau óspart til að toga sig aftur upp, taka lítil skref og halda áfram - og svo allt í einu eru framfarirnar orðnar svo verulegar  að við förum að hlakka til að taka þátt í Íþróttaálfahlaupinu næsta sumar og ákveðum að panta treyju og medalíu á litla krílið!

Hvað gerir þú þegar bestu vinir þínir eru í vanda staddir - eða eru „langt niðri" af einhverjum ástæðum? Hvort nuddar þú þá salti í sár þeirra og gerir lítið úr því sem vinirnir hafa verið að gera í sínum málum - eða hvetur þú þá til að bera höfuðið hátt, leita sér leiðsagnar og reyna aftur?

Ég leyfi mér að vera all viss um að þegar um er að ræða fjölskyldu þína eða vini sem eru í vanda, þá sért þú boðin/-n og búin/-n til að rétta fram hjálparhönd eða hlustandi eyra. Þá átt þú vafalítið auðvelt með að finna leiðir til að gera betur næst. Passar þetta ekki nokkuð vel?

En, hvernig er það svo með þig? Ert þú reiðubúin/-n til að takast á við krefjandi verkefni sem kalla á að þú þarft að færa þig ögn út fyrir þægindahringinn þinn? Treystir þú þá á þig til að gera meira og betur?
Þorir þú að viðurkenna að þú sért ekki með alveg öll svörin á reiðum höndum?  Það er enginn alvitur og eins og dæmin margsanna þá er engin svo klár að hann eða hún geti komið sér út úr hvers konar vanda til lengdar. Allir þurfa leiðsögn í einu eða öðru formi, já, meira að segja þú líka, allavega í einstaka tilvikum!

Hvernig væri að treysta stundum líka öðrum meira en þú gerir í dag? Þarft þú að gera allt sjálf/-ur til að tryggja að hlutirnir séu gerðir eins og á að gera þá? Treystir þú öðrum til ábyrgðaverka?  Treystir þú öðrum til að vera vinir þínir? Ertu kannski búin/-n að ákveða fyrirfram að þeir vilji örugglega og líklega alls ekki  vera vinir þínir?

Hvaða fimm einstaklinga umgengst þú mest þessar vikurnar? Treystir þú þeim til að hafa hvetjandi áhrif á framtíð þína? Það er oft sagt að þessar fimm persónur geti haft afar mótandi áhrif á allt þitt líf. Því skiptir svo miklu máli hvaða fólk þú umgengst mest. Á þetta fólk sér markmið um bjartari framtíð? Einangrun er ekki góð til lengdar. Að vísu hafa allir gott af því að fá að vera út af fyrir sig af og til, þó ekki sé nema til að hlusta á þögnina. Hinsvegar er almennt betra að hafa félagsskap af „góðu" fólki, og þá ekki síst fólki sem á sér spennandi en þó all raunsæja framtíðardrauma.

Gefðu þér tíma til að skoða hvernig þú getur treyst þér betur!
Hugsaðu líka út í hvort það sé einhver í fjölskyldunni sem þú ættir að treysta betur. Hafðu í huga að stundum vex ábyrgðartilfinning og ekki síst sjálfsmatið þegar fólk finnur að því er treyst fyrir einhverju sem skiptir aðra máli.

Treystu á betri framtíð og bjartari framtíðarsýn, meiri gleði og kærleika! Traust skapar meira traust!

Treystu þér betur, þú getur svo miklu meira en þú hefur haldið hingað til!
Gangi þér vel,

Bestu kveðjur,
Jóna Björg Sætran, menntunarfræðingur og markþjálfi
Námstækni ehf.
http://www.blomstradu.net/
jona@namstaekni.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk