Samtakamátturinn byggist á ţér ! - Jóna Björg Sćtran
18.2.2010
Samtakamátturinn byggist á ţér !
ágæta boði var að ég var þarna nokkurs konar „leynigestur" - hafði verið beðin um að koma og halda fyrirlestur um efnið mitt Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!, ( http://www.blomstradu.net/ ) og ýmsa grunnþætti í Feng Shui fræðunum ( http://www.fengshui.is/ ) þar sem ég starfa sem ráðgjafi.
Ţetta var hið ánægjulegasta kvöld og umræður í tengslum við fyrirlesturinn minn (sem ég vil nú frekar kalla umfjöllun eða spjall) voru bæði fjörugar og skemmtilegar og drógust því á langinn. Þarna voru saman komnar kátar kvenfélagskonur á aldrinum ca 27 - 80+ ára. Þar sem ég sat og fylgdist með aðalfundinum gat ég ekki annað en fyllst aðdáun á þessum konum. Þarna mættu þær, mislangt að komnar, eftir langan vinnudag við ýmis störf en virtust eiga næga orku eftir til að gefa af sér í hugmyndaauðgi, framsýni og djörfung. Flestar mættu þær með prjóna og margar voru að prjóna húfur á hvítvoðunga í samræmi við afmælisverkefni Kvenfélagasambands Íslands (að mig minnir) sem er að kvenfélagskonur prjóni og gefi húfur á öll börn sem fæðast á Íslandi á þessu ágæta ári 2010. Miðað við afraksturinn hjá þessum hóp má ætla að nógu margar húfur verði til handa hvítvoðungum næstu ára hér á landi. Það vantaði sko ekki kraftinn í konurnar. Fram kom að amk. tvær höfðu ráðið aðra til að prjóna fyrir sig, þarna var ekki til umræðu að taka ekki fullan þátt þó maður gæti ekki af einhverjum ástæðum prjónað sjálfur - þá var bara tekið til sinna ráða.
Mér þótti fróðlegt að heyra um starfsemi kvenfélagsins og framtakssemi á síðasta starfsári og áætlanir um hvernig skyldi nýta kraftana á næstunni. Þarna var ekki spurt um aldur, starfsreynslu, núverandi starfsvettvang og allra síst var talað um tímaskort! Það var nægur tími til að leggja öðrum lið, nægur tími til að sinna því að vinna að góðum málum. Allar voru samtaka, ekki kannski allar alveg sammála - en málin voru rædd og komist að samkomulagi. Þessar konur ætti að kjósa á þing!
Þennan sama dag var grein í einu dagblaðanna um gríðarlega aukningu í kvenfélagi í öðru byggðalagi, hóp sem er enn ört vaxandi og nýtir meðal annars nútíma samskiptatækni á Facebook sem samskipta- og upplýsingamiðil. Fyrir nokkru var viðtal við konu í öðru dagblaði varðandi kvenfélög sem talaði um vaxandi þátttöku kvenna á öllum aldri í kvenfélagi heimabyggðar eða sóknar. Kvenfélögin eru heldur betur komin fram með enn öflugri hætti en áður. Frábært fyrir alla!
Fyrirlesturinn minn dróst á langinn því konurnar tóku þátt í honum með mér af lífi og sál. Þegar ég ók svo heim til Reykjavíkur seint um kvöldið í rigningunni hugsaði til þess með þakklæti að hafa fengið að upplifa þessa skemmtilegu stemningu sem ríkti á kvenfélagsfundinum. Ég fór að velta því fyrir mér hve það gæti nú verið skemmtilegt að heimsækja fleiri kvenfélög í sömu erindagjörðum, kvenfélög út um allt land. Mér var líka hugsað til þess tíma í „gamla daga" þegar ég var í sveit á Vatnsnesinu og kynntist kvenfélagi í fyrsta sinn. Sú minning kemur líka oft upp í hugann þegar ég ætla að vera myndarleg og baka pönnukökur eða bollur og tek fram vanilludropa eða kardimommudropa úr eldhússkápnum. Í sveitinni var nefnilega sendingin með mjólkurbílnum í byrjun júlí, kassinn með kökudropaglösunum frá Kvenfélaginu, merki um það að nú skyldi bakað og bakað fyrir veislur sumarsins, fermingarkirkjukaffið, kosningakaffið, rúningskaffið, erfidrykkjurnar, Jósefínuhátíðina og stórafmælin. Kökudropaglös = kvenfélag = Hnallþórur og staflar af pönnukökum! Mannamót og veislur, fullt af krökkum til að leika við, glaumur og gaman! Já, kvenfélagskonurnar voru samtaka þá og eru samtaka enn í dag.
Samtakamátturinn er mikill - og ekki síst hjá konum sem vilja láta gott af sér leiða. Ein kona getur gert ýmislegt, tvær meira sitt í hvoru lagi - en miklu meira þegar þær fara að vinna saman. Núna er mikið leitað eftir því að fólk taki höndum saman og virki afl hugar og handa, fólk leiti lausna á hvers kyns vanda sem hrjáir landann. Leitað er eftir nýjum hugmyndum til að ná lengra á sviði velgengni og vellíðunar, leitað leiða til að gera landið okkar byggilegra og vænlegra fyrir börnin okkar, barnabörn og aðrar komandi kynslóðir.
Allt þetta byrjar hjá þér! Já, hjá þér! Ef þú vilt taka þátt í að skapa eitthvað jákvætt þá þarft þú nefnilega að leggja eitthvað af mörkum sjálf; hugsa > og svo að framkvæma. Þú getur gert ýmislegt út af fyrir þig - en þú getur orðið svo miklu öflugri sem einstaklingur með því að tengjast tengslaneti sem vinnur að góðum málum og tekið þátt í að gera þeirra starf að þínu, taka þátt í að efla samtakamáttinn. Hvað langar þig að gera? Hvers konar málefnum langar þig til að leggja lið? Hvers vegna? Hvað gefur það þér í innri gleði og auknum innri styrk að vita til þess að það sem þú hefur gert hefur orðið til þess að einhverjum öðrum var hjálpað?
Ekki gleyma samt þér, því allt það góða sem þú vilt láta af þér leiða stendur og fellur með þér. Til að þú getir dreift gleði og hamingju í kringum þig þarf þér að líða vel. Sjálfstraust þitt þarf helst að vera í nokkuð góðu lagi til að þú getir til lengdar hjálpað öðrum. Gleðin þarf að ríkja innra með þér til að þú eigir auðveldara en annars með að dreifa gleði og kærleika í kringum þig. Nú, ef staðreyndin er sú að sjálfstraustið og sjálfsímyndin sé eitthvað rykfallin þessa dagana, þá skaltu samt ekki láta það á þig fá heldur leiða hugann að því hvar þú getir sett eitthvað jákvætt og uppbyggilegt á vogarskálarnar hjá öðrum. Þú ert nefnilega alveg einstök persóna, enginn getur veitt öðrum það sama og þú - á þann hátt sem þú er fær um. Það getur enginn komið í staðinn fyrir þig, alls enginn.
Allt er orka samt og orka skapar orku. Ef þú ert þreytt, hvort heldur sem er á líkama eða sál, þá skaltu hafa í huga hvað það er mikilvægt að byggja upp jákvæða orku. Þó ástandið sé etv. miður gott hjá þér þá getur þú vafalítið fundið í huga þér annan aðila þar sem aðstæður eru enn verri. Það er örugglega margt í lífi þínu sem er jákvætt og mjög þakkarvert, hugsaðu aðeins um það. Hvað getur þú svo gert til að bæta eigið ástand, eigin aðstæður? Hvað getur þú gert til að safna meiri orku til að geta öðlast meiri kraft til að gera það sem hugur þinn stendur til?
Já, orka skapar orku. Fórstu í göngutúrinn þinn í gær? En í fyrradag? Hvað lætur þú ofan í þig? Áttu hund eða kött? Hvers konar mat gefur þú gæludýrunum þínum? Ruslfæði eða gæðamat? Hvað með vítamín og önnur bætiefni? Lýsi? Hvað með brosið þitt blíða? Fékk einhver að sjá það í dag? Ef ekki - teygðu þig þá í spegilinn og brostu þínu allra blíðasta, kinkaðu kolli og tjáðu persónunni í speglinum væntumþykju þína. Mundu svo eftir göngutúrnunum í dag, brostu til þeirra sem þú mætir og sendu dökkbleik hamingjuský yfir til húsanna sem þú gengur fram hjá. Bjóddu heiminum góðan og gleðilegan dag og njóttu þess að vera þú sjálf!
Megir þú eiga gleðiríkan dag og njóta þess að brosa til annarra til að auka gleði þeirra!
Með bestu kveðju
Jóna Björg Sætran, M.Ed.
jona@namstaekni.is
http://www.blomstradu.net/ http://www.fengshui.is/ http://www.coach.is/ http://www.foreverliving.is/ http://www.namstaekni.is/








