Laðaði sú stutta að sér sykursnúðinn - eða hvað? - Jóna Björg Sætran
25.2.2010
Laðaði sú stutta að sér sykursnúðinn - eða hvað?
Sú venja hefur skapast þar á bæ, að fyrst fer foreldrið með kvöldbæn ásamt telpunni, síðan talar foreldrið smávegis við „Guð" og að lokum á telpan stutt spjall við „Guð".Þegar kom að þeim hluta samverustundarinnar að telpan talaði við Guð þá heyrðist eftirfarandi:
„Góði Guð. Getur þú ekki gefið mömmu góða hugmynd ..... eins og til dæmis að fara í bakaríið, það væri svo gaman að fá eitthvað gott. ... bless Guð - Amen"
Næsta kvöld ..... „Góði Guð, gætir þú ekki reynt aftur að gefa mömmu þessa góðu hugmynd með að fara í bakaríið því þetta tókst ekki hjá þér í gær, mig langar svo mikið í eitthvað svona gott - þú veist. Þakka þér fyrir Guð, .... Amen".
Það verður nú að skjóta því hér inn í að móðirin unga átti mjög erfitt með að „halda andlitinu" þegar hún heyrði þessa bæn frá hjarta barnsins.
Og hvað gerðist svo næsta dag þegar móðirin kom úr kennslustund í Háskólanum og var búin að koma báðum börnunum (hnátan á lítinn bróður) fyrir í barnastólunum í bílnum ........... þá allt í einu og af einhverjum dularfullum ástæðum tók bíllinn beygju í átt að verslunarkjarnanum í hverfinu. Þegar bíllinn nam staðar beint fyrir framan bakaríið heyrðist úr aftursætinu „Ha - hvert erum við að fara?" ............ móðirin: „Ja, mér datt nú í hug hvort við ættum ekki að koma við í bakaríinu og fá okkur eitthvað gott með kaffinu? - Eruð þið til í það?"
Þetta sama kvöld, þegar komið var að lokum bænastundar heyrðist þetta frá hnátunni; „Góði Guð, þetta var flott hjá þér, þetta tókst! Mamma fór í bakaríið! Þú mátt alveg gefa mömmu þessa góðu hugmynd aftur - þá ætla ég að fá mér eitthvað annað. Takk Guð, Amen". Síðan kom dálítil þögn .... sem varð lengri - sú litla virtist hugsi og sagði síðan; „og viltu gera það góði Guð, að langömmu minni líði betur? líður henni betur Guð? Er hún engill Guð? .........löng þögn ..... takk fyrir Guð".
Já, svona er lífið, - en hvað getur þetta kennt okkur hinum? Er þetta ekki ágætis vísbending og áminning til okkar um að það skipti máli um hvað við hugsum, hvað okkur dreymir um?
Hvað dreymir þig um að gera? Hvernig vilt þú haga lífi þínu? Hvernig vilt þú verja tíma þínum? Hvaða áhugamál viltu geta leyft þér að stunda? Hvernig viltu rækta sjálfa þig? Hvernig viltu að aðrir komi fram við þig? Hvernig vilt þú vera í augum annarra? Hvernig viltu að þér líði þegar ský dregur fyrir sólu um miðjan dag og þú verður samt sem áður að standa þig vel? Hvernig viltu horfa á sjálfa þig í speglinum? Hvernig væri að leyfa sér að dreyma og dreyma ... og hver veit nema að draumurinn rætist.
Eitt er að láta sig dreyma, annað er að fá drauminn uppfylltan. Mig grunar að þú vitir mæta vel að það getur enginn haft jafn mikil áhrif á að draumurinn þinn rætist og þú sjálf. Þú hefur svo ótrúlega mikið afl, innra afl sem þú hefur jafnvel ekki beislað ennþá, afl sem þú getur nýtt þér til að ná þeim markmiðum sem þú setur þér. Hugsanlega þarftu að byrja á því að finna markmiðin þín, leita að þeim á rykföllnum hillum á háaloftinu eða í kjallaranum, - jú, þau voru þarna einu sinni .......... þú ætlaðir alltaf að halda áfram með þau en lagðir þau samt frá þér á hilluna af því að það voru svo margar skyldur sem kölluðu.
Skyldur og skyldustörf! Mikilvægustu skyldurnar í lífi þínu ættu að vera gagnvart þér sjálfri en ekki gagnvart öðrum! Sjálfselska af hæstu gráðu? Nei, langt frá því! Ef grannt er skoðað þá finnst þér vafalítið að þú hafir nær óteljandi skyldum að gegna gagnvart fjölda fólks. En hvað ef þín nyti ekki við?
Hvað gerist ef þú gleymir því að rækta sjálfa þig og „fórnar" þér endalaust fyrir aðra? Er ekki kominn tími til að þú gerir eitthvað verulega gott fyrir sjálfa þig, ræktir sjálfa þig ögn meira í dag en í gær?
Leyfðu þessum hugsunum að reika um huga þinn og hugleiddu hvað þú ættir allra helst að gera fyrir sjálfa þig. Það þarf ekki að vera kostnaðarsamt, það þarf hins vegar að vera eitthvað sem verður þér til góðs og þar af leiðandi hefur það einnig góð áhrif á aðra sem þér þykir vænt um.
Hannaðu drauminn þinn sjálf. Segðu einhverjum sem þú treystir til að styðja þig og styrkja frá draumnum þínum um bjartari framtíð, um það sem þig langar til að verði að veruleika. Vertu tilbúin til að taka eftir vísbendingum í umhverfinu, haltu áfram að „óska þér" - hugsaðu til framtíðar. Fortíðin er hvort sem er liðin, henni verður ekki breytt og því óþarfi að velta sér um of upp úr henni.
Leyfðu þér að blómstra núna og í framtíðinni og þá fara fleiri að blómstra í kringum þig.
Bestu kveðjur - og gangi þér vel
Jóna Björg Sætran M.Ed.,
Námstækni ehf.
http://www.namstaekni.is/ http://www.blomstradu.net/ http://www.foreverliving.is/ http://www.coach.is/
http://www.fengshui.is/ http://www.photoreading.is/ http://www.coachingcamp.is/








