Jákvćđar tilfinningar verđa besta leiđarljósiđ! - Jóna Björg Sćtran
11.3.2010
Jákvćđar tilfinningar verđa besta leiđarljósiđ!
Reyndu eftir megni að setja jákvæða tilfinningu í öll samskipti þín í dag. Upplifðu í huga og hjarta hvernig allt er í raun eins og það ætti að vera, jafnvel þó svo að við getum ekki alltaf skilið ráðstafanir "almættisins". Bjóddu aðstæður þínar velkomnar, hlúðu að þeim, elskaðu þær og veltu því fyrir þér hvað þær eru að færa þér til þroska og persónulegs vaxtar. Veldu næstu skref. Leggðu þinn eiginn stíg inn í framtíðina. Njóttu ævintýranna á lífsleiðinni! Blómstraðu! og Njóttu þess að vera þú!
Stundum þróast lífið á annan veg en við gerðum ráð fyrir. Þú vaknar einn „góðan" veðurdag og „allt er breytt"! Hvernig er hægt að höndla slíkt? Jú, ef allt væri breytt til betri vegar þá væri það lítið mál, en raunveruleikinn er ekki alltaf þannig. Sú er ekki raunin þegar það er allt í einu komið eitthvað tómarúm í tilveruna, tómarúm sem gerir ekki annað en að stækka og stækka og er farið að taka óþægilega mikið rými, þú kemst varla fyrir lengur sjálf, þú er að verða afkróuð úti í horni.
Stimpilklukkan í vinnunni kallar ekki lengur á að þú drífir þig fram úr, hellir upp á morgunkaffið, komir börnunum fram úr, „gefir á garðann" og komir börnunum af stað í skólannn. Jú, krakkarnir þurfa að mæta í skólann á réttum tíma - en hvað svo? Húsið tæmist, kötturinn fer líka út, þú ert orðin ein eftir í kotinu ............ ekkert bíður þín í dag - þangað til að krakkarnir koma heim.
Þetta var lýsingin hjá konunni sem hafði samband við mig nú nýverið og hafði þá misst vinnuna eftir fjölda ára starf hjá sama fyrirtæki. Allt væri orðið svo ótrúlega tómt, galtómt! Það væri hreinlega bergmál af eigin andardrætti! Til hvers að reyna og reyna og rekast svo bara á eintóma veggi, hindranir og svo enn fleiri hindranir? Hvergi neina vinnu að fá, ekki einu sinni svar við umsóknum. Er maður einskis nýt - og á besta aldri?
Eins og aðstæður eru í dag þá gæti þessi lýsing átt við margar konur, jafnvel þig. Ef svo er, hafðu þá í huga að þrátt fyrir að þú hafir fengið uppsagnarbréf þá er ekki endilega verið að hafna þér sem persónu heldur eru aðrar aðstæður að verki sem hafa þessar afleiðingar. Samdrátturinn hjá viðkomandi fyrirtæki hefur þá mögulega verið slíkur að starfsfólki er sagt upp. Oft á tíðum er ekki alltaf auðvelt að skilja hverjum er sagt upp og hverjir fá að starfa áfram. Stundum borgar sig alls ekki að vera að reyna að skilja slíkt - heldur reyna að skoða frekar næstu skref. Já, það getur verið erfitt að kyngja uppsögninni, en láttu þér ekki svelgjast um of á. Það er miklu vænlegra að slaka aðeins á, hugsa málin til hlítar og velja sér nýja gönguleið inn í framtíðina.
Í dag er boðið upp á fjölda úrræða fyrir þá sem hafa „of mikinn tíma". Vinnumálastofnun, Rauði krossinn og símenntunarstofnanir um land allt eru meðal þeirra sem bjóða upp á ótal námskeið, fræðslu, úrræði og dægradvöl. Skoðaðu hvað þér stendur til boða, ekki útiloka neitt.
Mikilvægasta úrræðið og það dýrmætasta hefur þú þó innra með þér, það fest í eigin mætti, því hvernig þú hugsar um sjálfa þig, lífið og tilveruna. Þú ert sjálf sterkasta aflið til að snúa aðstæðum þér í hag. Þú er ein veist hvað þú vilt, þú berð ábyrgð á lífshamingju þinni, þú ert miklu sterkari en þú hefur oft haldið, þú getur það sem þú vilt, þú ert svo frábær, þú getur valið næstu skref. Vandaðu valið.
Ef þú átt erfitt með að koma þér í gang - búðu þér þá til nokkurs konar stundatöflu. Gerðu yfirlit yfir daginn í dag. Settu þér markmið að gera ákveðna hluti á ákveðnum tímum. Vaknar - börnin - morgunmatur - börnin af stað - setjast niður og hugsa í 10 mín. - út að ganga kl. ___ ..... o. sv.fr.
Ertu búin að fá þér göngutúr í dag? Getur þú skroppið núna, í smá stund? Veldu þér nýja gönguleið. Ef aðeins er um eina leið að ræða, farðu þá í „öfugan" hring. Það eitt að fara nýjar leiðir getur opnað huga þinn fyrir nýjum hugsunum, þú sérð allar aðstæður frá öðru sjónarhorni.
Blómstrandi hugflæðigöngutúrinn
Er vinkona þín líka ein heima af svipuðum ástæðum, já eða frænka þín? Hvernig væri að bjóða henni, eða jafnvel þeim báðum, að koma með þér í „Blómstrandi Hugflæðigöngutúr"? Göngutúr, þar sem þið skoðið hlutina frá nýjum sjónarhornum. Farið nýja gönguleið, skoðið umhverfið, leitið gagngert að því sem þið hafið jú séð áður en kanski ekki veitt raunverulega athygli. Þið byrjið á því að skoða umhverfið á þennan hátt, en farið síðan í að skoða eigin möguleika og færni á annan hátt en þið hafið gert áður.
Hverjar eru sterku hliðarnar þínar? Hverjar telur þú að séu sterkustu hliðar vinkonu þinnar - já og ekki gleyma frænkunni sem þú bauðst líka að koma með. Hverjir eru kostirnir hjá þessum ágætu konum? Hvers vegna eru þær svona sérstakar að þú valdir einmitt að bjóða þeim með þér í göngutúrinn? Hvað finnst þér svo frábært við þær báðar?
Sjáið ykkur sjálfar frá öðru sjónarhorni en venjulega. Setjið jákvæðar tilfinningar í allt ferlið. Hjálpist að við að upplifa tilfinningar gagnvart ykkur sjálfum sem þið hafið etv. hunsað hingað til. Breytið því hvernig þið hugsið í eigin garð. Leyfið ykkur að hlusta á einlægt hrós frá hver annarri. Leyfið hinum að benda ykkur á hvað þið eruð frábærar.
Já, göngutúrinn gæti dregist á langinn. Taktu því vatnsflöskuna með og jafnvel flatbrauð eða brauðbollur. Komdu þeim hinum á óvart, taktu af skarið, brettu upp ermarnar - komdu hugflæðinu í gang. Komum „Blómstrandi Hugflæðigönguhópum" í gang um allt land. Hafðu samband ef þig vantar hugmyndir eða stuðning, http://www.blomstradu.net/ Það væri gaman að fá fréttir af hvernig tekst til, það yrði líka hvatning og stuðningur fyrir hinar!
Blómstrum og njótum þess að vera við sjálfar!
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran, menntunarfræðingur og markþjálfi
Námstækni ehf.
jona@namstaekni.is








