Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Hvađ gćti ég gert til ađ fćra orku og yl í morgundaginn ţinn? - Jóna Björg Sćtran

7.5.2010

Hvađ gćti ég gert til ađ fćra orku og yl í morgundaginn ţinn?

Nú er sumarið komið og Lóan farin að gleðja okkur með nærveru sinni eins og fleiri skemmtilegir og glaðværir fuglar. Þrátt fyrir það að grasið grænki víða og túlípanar blómstri, þá er það ekki sama sagan í hjörtum allmargra landsmanna þessa dagana.  Enn berast okkur fréttir af fyrirtækjum sem hafa hætt eða sagt upp starfsfólki, Eyjafjallajökull dreifir dimmum kornum úr iðrum jarðar, auk annarra ónefndra frétta sem naga fólk að innan, reita landsmenn til reiði þegar þeim finnst sem gengið sé á sjálfsagðan rétt einstaklingsins til að lifa „eðlilegu" lífi. Já, svona er lífið á Íslandi í dag.

                Margir þeirra sem eru atvinnulausir fyllast vonleysi eins og gefur að skilja þegar ógnvekjandi erfiðleikar steðja að.  Í fjölmiðlum er fjallað um fólk sem sé að svindla á kerfinu til að fá sér auka tekjur. Vissulega er eitthvað um þetta en þetta á örugglega við aðeins lítið brot af þeim sem sækja um bætur. Umræða um þessi mál má alls ekki bitna á þeim sem eru heiðarlegir og þurfa virkilega á þessari sjálfsögðu aðstoð að halda. Það er nógu erfitt fyrir nauðstadda að ganga þessi þungu skref til fá mat fyrir fjölskylduna og föt fyrir börnin sín. Ýmsar stofnanir, samtök og einstaklingar, eru að gera frábæra hluti til að halda utan um, byggja upp og styrkja einstaklinga sem þurfa á slíku að halda og vilja leyfa öðrum að veita sér stuðning.  Það er enginn minni maður af því að þiggja nauðsynlega aðstoð. Það er enginn minni maður af því að þurfa að fá að tala við einhvern, að fá einhvern til að hlusta. Það versta af öllu er þegar þeir sem þurfa á aðstoð að halda taka þá ákvörðun að bíta á jaxlinn eilítið lengur, vilja ekki brjótast út úr fínpússaðri og spegilsléttri ímyndinni sem þeir hafa komið sér upp í gegnum árin. Það skal ekkert ná að brjóta þá niður! Þeir eru sterkir! Þeir hafa alltaf geta séð fyrir sér og sínum! Auðvitað reddast þetta allt saman!

                Þessi hugsanaháttur á ekki við lengur. Fólk þarf að vera tilbúið til að taka ofan blessaða grímuna, leggja hana til hliðar og leyfa öðrum að veita því þá nauðsynlegu aðstoð sem viðkomandi er þurfandi fyrir. Það á ekki að vera neinum til skammar að ganga skrefin sem þarf að ganga, ekki eins og málin standa í dag. Þetta er tímabil sem við verðum að ganga saman í gegnum sem þjóð, sem stoltir Íslendingar, sem fólk sem á rétt á því að fá að njóta þess að lifa á mannsæmandi hátt á Íslandi.

                Hvað er að gerast í samfélaginu þar sem þú býrð? Hvað ert þú að gera í málunum í þínu bæjarfélagi? Hvað getur þú lagt af mörkum til að hjálpa hinum? Hvað viltu gera? Hvenær?

                Hverja þekkir þú sem þurfa á uppörvun að halda? Hverja veistu um sem þurfa jafnvel bara eitt innilegt og vel meint bros til að dagurinn verði þeim auðveldari? Hverjum getur þú reynst góður vinur eða góð vinkona? Á hvern hátt getur þú sýnt vináttu þína?  Hér er ég ekki aðeins að tala til þeirra sem eru í „góðum málum" í dag, eru í fullri vinnu og með öruggar tekjur.  Ég er líka að tala til þín sem hefur jafnvel misst vinnuna eða ert á annan hátt í erfiðleikum. Þú getur líka miðlað hinum. Þú ert jafn mikilvægur einstaklingur og hinir sem eru með vinnu. Þú skiptir þjóðfélagið okkar jafn miklu máli. Leyfðu þér aldrei að efast um það eitt augnablik. Það er ýmislegt sem þú getur aðeins veitt öðrum á þinn einstaka hátt. Í hverju ertu bestur eða best? Hvað fannst þér skemmtilegast að fást við þegar þú hafðir aðstæður til að hafa val? Þú áttir jafnvel frístundir og spennandi áhugamál.  Hvernig getur þetta nýst þér í dag? Það hlýtur að vera leið. Ef ekki, þá þarf að riðja þúfunum í burtu, slétta farveginn, leggja nýjan stíg á vit framtíðarinnar.

                Á hvaða hátt getur þú komið góðu til leiðar í þessum málum þannig að þiggjandinn upplifi ekki að hann eða hún sé minni maður fyrir að þiggja aðstoðina, hlýhuginn eða hvað annað sem um er að ræða.  Fólk á að fá að halda virðingu sinni. Fólk á að fá að halda höfðinu hátt þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og veikindi. Við eigum öll sama rétt til að lifa og vera hamingjusöm.

                Veltu því aðeins fyrir þér hvað þú getur gert. Það er aldrei að vita hvenær þú þarft á aðstoð eða hlýhug annarra að halda. Já, ég segi hvenær en ekki hvort, því við erum öll mannleg og það er aðeins mannlegt að þurf á öðrum að halda á lífsleiðinni.

Gangi þér  sem allra best og leyfðu þér að blómstra.

Jóna Björg Sætran, M.Ed.,
http://www.blomstradu.net/
jona@namstaekni.is


Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ég trúi því að við eigum öll möguleika á því að lifa ævintýralegu lífi en það er mikið ævintýri að axla ábyrgð dag eftir dag.
William Gordon

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk