Vöruţróun
Vöruþróun
Afkoma fyrirtækja byggist á þeirri vöru sem það framleiðir og selur. Vara - það sem uppfyllir þarfir eða óskir viðskiptavina okkar eða markhóps. Hér erum við jafnt að ræða um áþreifanlega vöru eins og bók eða óáþreifanlega vöru eins og þjónustu. Hér er semsagt ekki gerður greinarmunur á þjónustu - eða framleiðslufyrirtæki.
Vinna við að móta nýja vöru er nefnt vöruþróunarferli sem hefst við það er vöruhugmynd verður til og lýkur þegar hugmyndin er orðin markaðshæf vara.
Aukin samkeppni fyrirtækja hefur orsakað miklar breytingar á því hvernig fyrirtæki nálgast vöruþróun og kristallast í styttri líftíma vöru, kröfu um aukinn hraða við þróun vöru og þróun vöru á réttan hátt.
Í bæklingnum Vöruþróun frá Impru hér að neðan má lesa meira:
http://www.nmi.is/files/%7B4e65a54c-a806-4354-a883-3b429f1d0856%7D_v%C3%B6ru%C3%BEr%C3%B3un.pdf
Ţjónusta
Ţjónusta skiptir æ meira máli í rekstri fyrirtækja. Á það jafnt við um fyrirtæki sem kalla má hefðbundin þjónustufyrirtæki og fyrirtæki sem framleiða og selja áþreifanlegar vörur. Margar aðferðir eru notað við að meta þjónustugæði, ýmist staðlaðar eða lagaðar að viðfangsefninu hverju sinni. Flestar aðferðirnar eiga það sameiginlegt að lagt er mat á það sem skiptir máli frá sjónarhóli þeirra sem þjónustunnar njóta.
Í bæklingnum Þjónstugæði má lesa meira;
http://www.nmi.is/files/Þjónustugæði-net_1488228432.pdf
Frá hugmynd að vöru
Rit þetta er ætlað uppfinningamönnum, frumkvöðlum og hverjum þeim sem eru með nýjar hugmyndir að vöru eða þjónustu. Í því er fjallað um þau skref sem stíga þarf til ef ætlunin er að kanna gildi hugmyndarinnar og hrinda henni í framkvæmd.
http://www.nmi.is/files/FraHugmyndTilVoru_1268283768.pdf
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








