Fréttir
24.2.2011
Ný námskeiđ ađ hefjast í Heilsuborg
Heilsuborg er staður þar sem þú getur unnið með heilsuna og fengið aðstoð fagaðila við að tileinka þér heilbrigðan lífsstíl og ná fram betri líðan.
24.2.2011
Tímastjórnun í fimm einföldum skrefum
Flestir stjórnendur eru á því að þeir séu mjög uppteknir en geta yfirleitt ekki nefnt nákvæmlega við hvað. Eftir að hafa verið í krísustjórnun í allan dag fara þeir úrvinda heim, setjast í sófann og sofna með fjarstýringuna í höndunum. Þeir komast varla í sumarfrí og ef þeir fara þá í ferðalag með fjölskylduna geta þeir ekki gleymt vinnunni. Þeir sitja á ströndinni með fartölvuna í kjöltunni á meðan síminn er rauðglóandi.
18.2.2011
Mat á umsóknum
Í næstu viku fara umsóknir í mat til ráðgjafanefndarinnar en umsóknirnar voru 338 talsins að þessu sinni Væntanlega verður styrkjum úthlutað í byrjun apríl en allir umsækjendur frá bréf með afgreiðslu nefndarinnar þegar þar að kemur.
17.2.2011
Um samskipti kvenna á vinnustöđum
Um áraraðir hefur stærsta áskorun kvenna á vinnumarkaðinum verið að komast í gegnum glerþakið og jafna stöðu kynjanna. Þó að glerþakið hafi kannski ekki verið fjarlægt fullkomlega hefur mikill árangur náðst á undanförum áratugum. Fjöldi þeirra kvenna sem skipa áhrifamiklar stöður í fyrirtækjum og stjórnum hefur aukist. Aukinn fjöldi kvenna á vinnustað getur þó einnig skapað nýjar áskoranir, m.a. vegna þess að munur er á samskiptaformi karla og kvenna. Þessi munur ber reglulega á góma og sitt sýnist hverjum.
10.2.2011
Af ţjónustu sem rćđur úrslitum í dag
Mikilvægi framúrskarandi þjónustu í nútímaþjónustufyrirtækjum er algjört. Léleg þjónusta er ávísun á slæmt umtal, fjölda kvartana, óánægju viðskiptavina, óánægju starfsfólks og að lokum færri viðskiptavini. Það þarf ekki að hlusta lengi í fjölskylduboðum til að taka eftir því að þjónustan er ofarlega í hugum fólks.
8.2.2011
Umsóknarfrestur liđinn
Nú er umsóknarfrestur um styrki til atvinnumála kvenna liðinn og bárust 336 umsóknir að þessu sinni en aldrei hafa fleiri umsóknir borist. Nú tekur við vinna við að fara yfir umsóknir og meta þær.
7.2.2011
Álag á umsóknarkerfinu
Við munum svara fyrirspurnum í tölvupósti - asdis.gudmundsdottir@vmst.is
7.2.2011
Útfylling umsókna
Umsækjendur eru minntir á að það þarf að fylla út í alla stjörnumerkta reiti í umsókninni, ef það er ekki gert þá er ekki hægt að senda hana inn.
Algengt er að það gleymist að fylla út styrkupphæð en það er gert í skrefi 4 í umsókn undir liðnum Fjármögnun undir Styrkir til atvinnumála kvenna. Þar er upphæðin sett inn og birtist hún þá sjálfkrafa neðst í umsókninni.
7.2.2011
Síđasti dagur umsóknarfrests
4.2.2011
Umsóknarfrestur rennur út á mánudaginn
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








