Fréttir
3.2.2011
Tíu atriði sem geta dregið úr áhrifum kvenna
Þó að glerþakið sé vissulega ennþá til staðar á íslenskum sem erlendum vinnustöðum draga konur sjálfar oft úr möguleikum á meiri starfsframa með tjáskiptum sínum. Þetta er það sem kom í ljós í könnun Catalyst, sem er rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki sem einbeitir sér að málefnum kvenna. Þegar spurt var hvernig konur gæti aukið árangur sinn sagði 61% að konur þyrftu að þróa með sér kröftugri samskiptastíl.
2.2.2011
FKA heiðrar konur
Það var mikið um dýrðir í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í dag þar sem FKA; Félag kvenna í atvinnurekstri afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs.
31.1.2011
Umsóknarvinna
Nú eru fjöldamargar umsóknir komnar í vinnslu. Við ítrekum ábendingar okkar um að lesa leiðbeiningar um útfyllingu umsókna vel og vandlega.
31.1.2011
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur
Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt
í einkalífi og starfi. Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.
28.1.2011
Þakklæti - leið til fyllra lífs

Þakklæti er ekki málefni sem er mikið rætt í íslensku samfélagi. Það má líka gera því skóna að íslenskur menningarheimur og arfleifð ýti frekar undir þá tilhneigingu að þykja fínt að vera sinn eigin herra og engum háður.
26.1.2011
Aðgengi fyrir alla
auðveldara um vik að velja aðgengilega staði á Íslandi. Harpa er eigandi fyrirtækisins Aðgengi sem sinnir ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi aðgengismál fatlaðra.
25.1.2011
Vandið til verka!
Nú eru komnar yfir hundrað umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna og margar enn í vinnslu. Við viljum minna ykkur á að vanda til verka og fylla út í alla þá reiti sem í umsókninni eru og við eiga. Umsóknir sem eru illa útfylltar og unnar fara ekki í mat til ráðgjafanefndarinnar.
Sjá má skriflegar leiðbeiningar um útfyllingu umsókna hér og stutt myndband um gerð umsókna hér.
25.1.2011
Leyniskyttur, fýlupúkar, vitringar og nöldrarar
Af erfiðum einstaklingum á vinnustöðum
Eyþór Eðvarðsson
Flestir þekkja einhverja erfiða einstaklinga. Fæstir viðurkenna að þeir séu erfiðir í samskiptum enda væri sú hugsun næstum óbærileg.
21.1.2011
Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknareyðublaðs
Hér má finna stutt myndband um útfyllingu umsóknareyðublaðsins. Við bendum umsækjendum á að ef þær ætla að sækja um fleiri þætti en gerð viðskiptaáætlunar að fylla þá út tvær umsóknir. Aðra vegna viðskiptaáætlunar og hina vegna annara þátta. Þetta er vegna þess að umsóknirnar eru metnar á annan hátt eftir því sem við á.
20.1.2011
Hannar færanlegan skjólvegg
þá hugmynd að hanna færanlegan skjólvegg en á hinu vindasama Íslandi blæs vindurinn oft úr öllum áttum. Við fáum að heyra hér um þessa frábæru hugmynd.
Póstlisti
Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!
Speki dagsins
Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac








