Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Fréttir

21.9.2010

Hvað er heilbrigt líf?

Umræðan um heilbrigt líf er oft misvísandi þannig að erfitt er að átta sig á hvað er heilbrigt og hvað ekki. Hvað má og hvað ekki. Hér kemur hornsteinninn að heilbrigðum lífsstíl eins og við leggjum upp í Heilsuborg.   

20.9.2010

Námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og sveitarfélögin Blönduósbæ , Skagaströnd og Húnaþing vestra kynna námskeiðið Sóknarbraut á Blönduósi og Hvammstanga. Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja þar sem þátttakendur vinna með eigin hugmyndir eða fyrirtæki.

20.9.2010

Heilsa og vellíðan í fyrirrúmi hjá Heilsuborg !

Nýr samstarfsaðili Atvinnumála kvenna er Heilsuborg en á síðunni okkar munu birtast pistlar frá þeim fagaðilum sem þarf starfa um málefni sem snerta heilsu og vellíðan.  Okkur langaði til að vita meira um fyrirtækið og starfsemi þess og litum í heimsókn.

17.9.2010

Tístarar athugið !

Atvinnumál kvenna er komið á Twitter og mun tísta þar inni,  eltið okkur á Twitter!  Einnig er hægt að deila efni af heimasíðunn á Twitter. Smellið á hnappinn "Deila á Twitter" og greinin flyst yfir á ykkar svæði. Smellið á hnappinn "Atvinnumál kvenna á Twitter" og þið fylgið okkur.

17.9.2010

Átak til atvinnusköpunar

Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfand frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. 

16.9.2010

Um 22 þúsund frumkvöðlar á Íslandi

11,4% Íslendinga á aldrinum 18-64 ára, eða um 22 þúsund manns, taka þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall frumkvöðla í þeim hagkerfum sem við berum okkur saman við. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM), sem er umfangsmesta samanburðarrannsókn í heimi á frumkvöðlastarfsemi.

16.9.2010

Er farið að hausta innra með þér?

Já, nú er heldur betur farið að hausta. Appelsínurauðum og gulum laufblöðum fjölgar ört, golan er komin á fleygiferð, rigningardroparnir eru orðnir ákveðnari þegar þeir falla á andlitið og nú dugar ekki lengur að vera á stuttermabol í gönguferðum með hundinn. 

15.9.2010

Heiður - seið hún kunni - grunnnámskeið fyrir 21 öldina

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikill hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu meðal Sama.

14.9.2010

Lífsvefurinn - sjálfsstyrking kvenna í starfi og einkalífi

Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Nú stendur yfir skráning á námskeið er hefst þann 16. september á Akureyri. 

14.9.2010

Að þekkja og véfengja svartsýnishugsanir

Ingrid Kuhlman
Hægt er að læra að verða bjartsýnni með því að nota tækni sem byggist á hugrænni atferlismeðferð (Rational Emotive Behavior Therapy) sem Albert Ellis kom fram með árið 1962.
 

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk