Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Fréttir

24.2.2010

Ţegar kertiđ okkar brennur út og áhugi breytist í áhugaleysi

Eftir Ingrid Kuhlman

Efnahagshremmingar og starfsöryggi leiða oft til streitu og kulnunar. Langvarandi álag getur haft þau áhrif að við verðum svekkt. Okkur virðast vandamálin óyfirstíganleg og við eigum erfitt með að safna orku til að láta okkur aðstæðurnar varða og leysa málin. Þess vegna er mikilvægt að þekkja einkenni kulnunar.

 

19.2.2010

Úthlutun í lok mars

Nú er verið að fara yfir og meta þær umsóknir sem bárust og er gert ráð fyrir að styrkjum verði úthlutað í lok mars. Úthlutunin verður kynnt betur þegar nær dregur en allir umsækjendur fá send bréf um niðurstöður matsnefndarinnar.

18.2.2010

Samtakamátturinn byggist á ţér !

Í fyrri viku fékk ég að sitja sem gestur á aðalfundi kvenfélags nokkurra byggðakjarna í nágrenni Reykjavíkur. Ástæðan fyrir þessu ágæta boði var að ég var þarna nokkurs konar „leynigestur" - hafði verið beðin um að koma og halda fyrirlestur um efnið mitt Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!, ( http://www.blomstradu.net/ ) og ýmsa grunnþætti í Feng Shui fræðunum ( http://www.fengshui.is/ ) þar sem ég starfa sem ráðgjafi.

 

17.2.2010

Bjartsýni: hugsunarstílll en ekki persónueinkenni

Eftir Ingrid Kuhlman
Yfirleitt er litið á bjartsýni sem frekar ómerkilegan eiginleika. Bjartsýnismaður er þá talinn vera sá sem sér það góða í öllu og öllum og horfir á heiminn í gegnum bleik gleraugu - glasið er alltaf fullt hjá honum. 

16.2.2010

Pistlar um umhverfismál

Atvinnumál kvenna hefur fengið liðsauka en á næstunni munu birtast fróðlegir pistlar um umhverfismál frá Guðrúnu Tryggvadóttur sem rekur umhverfisvefinn www.náttúran.is

Kæru kynsystur!
Ţað er skemmtilegt fyrir mig að fá tækifæri til að skrifa pistla inn á þennan ágæta vef Atvinnumála kvenna. Mig langar að byrja á að kynna mig aðeins og segja frá því af hverju ég er nú að byrja að skrifa pistla inn á þennan vef.

15.2.2010

Komdu hugmyndinni ţinni á framfćri !!

Brandit kynningarfundur verður í Hugmyndahúsi háskólanna þann 17.febrúar kl. 20.00 - sjá nánar hér

15.2.2010

Ađ byggja upp viljastyrk og sjálfsaga

Kannastu við þá tilfinningu að langa í göngutúr vitandi það hversu gott það er fyrir heilsuna og hversu dásamlega þér líður eftir á, en verja kvöldinu í staðinn í að glápa á sjónvarpið? Eða að vera meðvitaður um að þurfa að vinna í lokaritgerðinni eða taka matarræðið í gegn en skorta innri kjark og úthald til að breyta venjum þínum?

 

11.2.2010

Gildi ţjónustu fyrir ţig og ađra

Ágæti lesandi.
Nú er all langt liðið frá því að ég sendi frá mér pistil en ég vona samt að þessi skrif mín nýtist þér á einhvern jákvæðan máta. Í millitíðinni hef ég verið erlendis að vinna með Marie Diamond Feng Shui meistaranum mínum sem ég hef minnst á hér í pistlunum. 

8.2.2010

Umsóknarfrestur útrunninn

Á miðnætti rann út frestur til að skila inn umsóknum um styrki til atvinnumala kvenna. Tæplega 300 umsóknir bárust og nú hefst vinna við að fara yfir og meta þær.
Fyrirhugað er að afhenda styrkina í lok mars en nánari upplýsingar verða settar á heimasíðuna þegar nær dregur.

7.2.2010

Mikiđ álag á tölvukerfinu

Mikið álag er nú á tölvukerfinu en ætla má að verið sé að vinna í og senda 250 umsóknir í dag. Við biðjum ykkur því að sýna biðlund, og ef illa gengur að senda umsókn að reyna aftur seinna í dag. Munið þó að umsóknarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld.
Ef upp koma vandamál þá má senda tölvupóst á asdis.gudmundsdottir@vmst.is

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk