Beint á leiđarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Fréttir

4.2.2010

Símatími - ađstođ vegna umsókna

Ţann 7.febrúar rennur út umsóknarfrestur um styrki til atvinnumála kvenna og eflaust margar sem að eru að ljúka við umsóknir sínar um helgina. Starfsmaður atvinnumála kvenna verður með símatíma  um helgina þar sem hægt verður að fá aðstoð og upplýsingar og verður hægt að hringja í síma 582-4914 milli 12-14 laugardag og sunnudag. Einnig verður tölvupóstum sem berast svarað á þeim tíma.

3.2.2010

Brandit - kynningarfundur

Kynningarfundur um vinnustofu Brandit verður í Eldhrímni, Borgartúni 14, fimmtudaginn 4.febrúar kl. 18.00.

Á Brandit vinnustofu lærir þú hvernig þú átt að kynna þig, halda ræðu, ná fókus, hanna þitt kennimerki og fleira.

Sjá nánar hér

3.2.2010

Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnám fyrir konur í Skagafirđi

Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur og/eða vinna að sjálfsstyrkingu annarra.

 

28.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna

Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir til okkar varðandi það hvaða konur geta sótt um. Taka skal fram að styrkirnir eru fyrir allar konur en að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á að ná til atvinnulausra kvenna sem hafa hug á því að hefja atvinnurekstur og eru með góða viðskiptahugmynd.

Allar konur sem uppfylla skilyrði sem sett eru geta sótt um styrki.

26.1.2010

Kynningarfundir ţann 29.janúar.

Kynningarfundir fyrir atvinnulausar konur sem hafa hug á því að sækja um styrki verða á eftirfarandi stöðum næstkomandi föstudag.

22.1.2010

Treystir ţú ţér eđa öđrum - eđa er alls engum treystandi?

Um daginn vitnaði ég í Marie Diamond, Feng Shui meistara, einn af mentorunum mínum.  Hún talar um að einkunnarorðin fyrir nýbyrjað ár séu Umbreyting - Traust - Þjónusta.  Þá ræddi ég um „umbreytingu" og í dag skulum við líta aðeins á traustið.

 

19.1.2010

Styrkir Byggđastofnunar

Minnum á að umsóknarfrestur um styrki Byggðastofnunar til markaðssetningar á handverki og hönnun erlendis er til 1.febrúar næstkomandi.

Sjá nánar auglýsingu hér

19.1.2010

Leiđbeiningar um útfyllingu umsókna

Hér má finna glærusýningu með leiðbeiningum um útfyllingu umsóknareyðublað vegna styrkja til atvinnumála kvenna.

Sjá hér

18.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar.

15.1.2010

Óţarfa hrćđsla

Pistill eftir Sigríði Arnardóttur www.sirry.is Sirrý

Við íslendingar erum uppfullir af óþarfa hræðslu. Á námskeiðum sem ég held: ,,Framsækni - Að tjá sig af öryggi" ræðum við um sviðsskrekk og fólk í öllum stéttum og störfum greinir frá því að það óttast  viðbrögð annarra þegar það kveður sér hljóðs á fundum, í fjölmiðlum eða í ræðupúlti. 

Póstlisti

Hér er hægt að skrá sig á póstlista og fá sendar fréttir af verkefninu. Fylgstu með !!


Speki dagsins

Ekkert hamlar jafn mikið góðum samskiptum þínum við annað fólk, eins og ósætti við sjálfan þig. - Honore De Balzac

Atvinnumál kvenna á facebook
Atvinnumál kvenna á twitter

Stćkka og minnka texta

Auđlestrarhamur Stćkka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk