Fréttir
11.12.2008
7.ráđ í tímastjórnun - skipulagđu tímann ţinn
Við þurfum að nota tíma til að skipuleggja en hvað er eðlilegt að verja miklum tíma í skipulagningu? Eðlilegt er að gera ráð fyrir 1% af tíma okkar í skipulagningu sem þýðir 5-10 mínútur á dag. Með því að skipuleggja tímann getum við einmitt sparað tíma. Sagt er að mikilvægasti tími dagsins sé þegar verið er að undirbúa hann.
10.12.2008
Koma svo - stefnumót fólks og hugmynda
Ţar sem fólkið með hugmyndirnar og svo fólkið með þekkinguna hittast, spjalla, skoða tækifærin og FRAMKVÆMA SVO!
Laugardaginn 6.desember mættu um 30 - 40 manns til leiks. Myndaðist mikil stemning og við vitum nú þegar af nokkrum verkefnum sem þegar eru komin af stað.
Nú blásum við til leiks í þriðja og síðasta skiptið fyrir jól. Laugardagurinn 13. Desember 2008 - Tími: 10:00 - 12:00
ATH! Nýr fundarstaður: MAÐUR LIFANDI - BORGARTÚNI 24 (fundarsalur)
9.12.2008
Ný námskeiđ Brautargengis
Brautargengi er 70 tíma nám fyrir athafnakonur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Forsenda er að þær hafi viðskiptahugmynd til að vinna með. Kennt er einu sinni í viku í 15 vikna lotu, 4,5 klst. í senn alls 70 tíma námskeið. Á Brautargengi læra þátttakendur um stefnumótun, vöru- og þjónustuþróun, markaðsmál, fjármál, stjórnun auk annarra hagnýtra atriða við stofnun og rekstur fyrirtækja. Þá er sérstaklega farið í kynningu á persónueinkennum frumkvöðla og stjórnenda og hvað þeir þurfa að hafa til að bera til að ná árangri.
8.12.2008
Alda design framleiđir íslenskar flísar
borðplötur, handlaugar og aðrar einingar úr steinsteypu. Einingarnar eru flamleiddar úr íslensku hráefni og steyptar eftir sérstakri aðferð sem gefur þeim hlýlegt, náttúrulegt og lifandi yfirbragð.
Fyrirtækið er í eigu Dagnýjar Öldu Steinsdóttur en Dagný var ein af þeim konum sem hlaut hæsta styrk úr Styrkir til atvinnumála kvenna á dögunum. Hér gefur hún okkur innsýn í fyrirtækið og starfsemina.
5.12.2008
Tengjumst.is kemur ţér á framfćri !!
Tilgangur síðunnar var og er að gefa konum tækifæri á að koma sér, vörum og þjónustu á framfæri bæði á innanlands sem alþjóðamarkaði.
Stofnandi síðunnar, Guðrún Magnúsdóttir, eða Rúna eins og flestir þekkja hana, hefur í tvo áratugi verið með sinn eigin atvinnurekstur, þar af 18 ár verið eigandi og rekið innflutningsverslun á Íslandi. Sem virkur meðlimur í Félagi Kvenna í Atvinnurekstri og formaður alþjóðanefndar þeirra félagsskapar, hefur hún kynnst athafnakonum frá öllum heimshornum, sem allar líkt og hún sjálf, voru með sinn eigin atvinnurekstur. Þær voru að efla tengslanetið sitt, koma sér og fyrirtæki sínu á framfæri á alþjóðlegum kvenna ráðstefnum út um allan heim.
4.12.2008
6.ráđ í tímastjórnun - Settu markmiđ
Ţegar þessari vinnu er lokið er hægt að setja framtíðarsýnina á blað og móta markmið til framtíðar.
3.12.2008
Ert ţú tilbúin ađ taka virkan ţátt í samfélaginu?
2.12.2008
Pistill frá Sirrý: Ábyrgđ okkar í umrćđum
*Árangurslitlum fundum þar sem rætt er um aukaatriði
*Leiðinlegum umræðum í saumaklúbbi
*Neikvæðu tali á kaffistofunni í vinnunni
*Ómarkvissri umræðu í fjölmiðlum
Oft hef ég heyrt svona gagnrýni og líka staðið mig að henni sjálf. En þarna gleymir maður eigin ábyrgð í umræðunni. Við getum lagt eitthvað nýtt til málanna, skotið inn orði sem sveigir umræðuna inn á betra plan. Maður getur vel lagt eitthvað jákvætt til málanna ef svartsýnistalið er of fyrirferðarmikið. Með því að líta á sig sem geranda en ekki fórnarlamb ber maður líka ábyrgð á umræðunni.
1.12.2008
Tengslanet skipta miklu máli
Hver er Sigrún?
Ég er fædd 1960 í Reykjavík og gekk í skóla þar, var stúdent úr Verslunarskólanum og lærði síðan gluggaskreytingar og hönnun tengda sýningum í Kaupmannahöfn. Ég tók próf frá Endurmenntun í Markaðs- og útflutningsfræði og er langt komin með BA í þýsku í Háskóla Íslands. Í haust skellti ég mér í nýtt nám með vinnu sem er Leiðsögumannanám á háskólastigi en það tekur 3 annir og hægt að tengja þýskunáminu. Ég tel það sem ég læri þar koma sér vel í mínu starfi.
28.11.2008
5.ráđ í tímastjórnun - Settu ţér markmiđ !
Hver eru markmið þín?
Hefur þú sest niður og skráð markmið hvað varðar, fjölskyldu, starf, menntun, heilsu, félagslíf, listsköpun, ferðalög osfrv.








