Fréttir
31.10.2008
Hreindýralandiđ er fyrir austan!
30.10.2008
Hvers vegna kaupir einhver vöruna okkar?
Pistill um markaðsmál
Kaupferlið
Samkvæmt markaðsfræðunum þá fer ákveðið ferli af stað áður en við kaupum vöru og verður til þess að annaðhvort kaupum við hana eða ekki.
Fjórir þættir byggja upp þetta svokallaða kaupferli en það er í fyrsta lagi athyglin, svo áhuginn, löngun og aðgerðin sjálf. Við skulum nú skoða þessa þætti hér nánar.
29.10.2008
Ný könnun SA um horfur á vinnumarkađi
Af vef Vinnumálastofnunar
Samtök atvinnulífsins gerðu nýlega könnun meðal sinna aðildarfyrirtækja um uppsagna- og ráðningaráform. Meginniðurstaðan er að horfur á vinnumarkaði hafa versnað töluvert frá því fyrr á árinu, en um helmingur fyrirtækja hefur þó ekki sagt upp starfsfólki á árinu né hyggur á uppsagnir á þessu ári. Í frétt á vef SA um könnunina segir m.a.:
Um fjögur af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hafa haldið að sér höndum í ráðningum á árinu og hyggjast halda óbreyttum starfsmannafjölda til áramóta. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Stjórnendur 14% fyrirtækja sjá fyrir sér fjölgun starfsfólks á árinu en 48% þeirra hafa fækkað starfsfólki eða hyggjast gera það. Horfur á vinnumarkaði hafa versnað frá því í júlí þegar sambærileg könnun var gerð. Þá sáu 48% stjórnenda fram á óbreyttan starfsmannafjölda innan ársins, 31% fækkun og 21% fjölgun.
28.10.2008
Kannt ţú ađ fara međ tímann ţinn?
Tíminn er dýrmætasta auðlind okkar en oft sú sem við förum verst með. Það er ekki hægt að geyma tímann né síður að gefa hann öðrum. Allir fá jafnmiklum tíma úthlutað en er samt sem áður sá sjóður sem mestur skortur er á. Ef við getum ekki stjórnað tíma okkar þá er næsta víst að við eigum í erfiðleikum með að stjórna öðru í lífi okkar.
Dagurinn í dag er sá fyrsti af þeim sem þú átt eftir að lifa og því er tækifærið núna að bæta úr skipulaginu!
Á næstunni munu birtast hér ráð í tímastjórnun sem eiga að gera þér auðveldara um vikið að skipuleggja tíma þinn. Þessar ráðleggingar eru úr bókinni 30 áhrifarík ráð sem bæta tímastjórnun og margfalda árangur eftir Thomas Möller.
27.10.2008
Veistu hver markhópurinn ţinn er?
Pistill um markaðsmál
Markhópar
Til að selja vöruna okkar eða þjónustuna verðum við að ákveða hverjum við ætlum að selja eða með öðrum orðum, við verðum að skoða markhópana okkar og ákveða út frá þeim hvernig við náum til þeirra. Hér á eftir verður fjallað um hvernig við getum flokkað markhópana okkar og greint með tilliti til þess hvort hann uppfylli okkar markaðssetningu.
Hvað er markhópur ? Það er hópur einstaklinga sem að við getum flokkað niður út frá ákveðnum þáttum svo sem aldri, þjóðfélagsstöðu, lífsstíl eða vörunotkun svo eitthvað sé nefnt.
Ţað er fyrirtækið sem að skilgreinir markhópinn út frá sínum þörfum og því er það ekki svo að hópurinn upplifi sig sem einn hóp.
24.10.2008
Morgunverđarfundur um launamismunun
Launamismunun - hvað gerist nú?
Rannsóknastofa í vinnuvernd stendur fyrir morgunverðarfundi mánudaginn 27. október kl. 8.30 til 10.00 á Grand Hótel, Hvammi.
23.10.2008
Tćkifćrin eru til stađar !!
Hér að neðan má sjá frétt á VIsi.is um ráðstefnuna Hugspretta - landnám nýrra hugmynda sem haldin var nýlega en það var Klak ásamt Innovit og stúdentafélög háskólanna sem stóðu að henni.
Víst er að oft var þörf en nú er nauðsyn á því að virkja alla krafta til nýsköpunar í atvinnulífinu !
Lesa meira:
http://www.visir.is/article/20081022/VIDSKIPTI0803/801037397/1091
23.10.2008
Grein úr Viđskiptablađinu: Menntastofnanir opna dyr vegna ađstćđna á vinnumarkađi
Á vef Fréttablaðsins má finna eftirfarandi frétt um ósk Samtaka Atvinnulífsins til menntastofnana og háskóla um að opna dyr sínar vegna þess fólks sem er að missa vinnuna.
22.10.2008
Ţjónustu og upplýsinganet Félagsmálaráđuneytis
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt ţjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Um er að ræða sérstakt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall. Sjá nánar á vefsvæði ráðuneytisins.
21.10.2008
Hafdís rekur skólavistun á Dalvík
Fyrir 13 árum var mitt yngsta barn að hefja skólagöngu. Þá var Dalvíkurskóli tvísetinn. Vegna þessa voru margir foreldrar í vandræðum með gæslu fyrir börnin sín hluta úr degi, þar á meðal ég. Ég tók því að mér 7 börn úr bekknum hans og var með þau þar til skóli hófst kl. 12:45. Árið eftir voru aftur lítil börn að hefja skólagöngu, foreldrar í sömu vandræðum og ég árið áður og tók ég þau að mér. Svona gekk þetta ár eftir ár þar til ekki var lengur pláss á mínu heimili fyrir þessa starfsemi, eða í 8 ár.








